Fjölrit RALA - 06.06.1998, Blaðsíða 59
49
Matjurtir 1997
Lýsing á íslenskum gulrófum
Eva G. Þorvaldsdóttir, garðyrkjukandidat, sá um mat og lýsingu á íslenskum gulrófustofnum
fyrir Norræna genbankann sumarið 1997.
í Norræna genbankanum eru varðveittir 11 stofnar af gulrófum sem safnað var hér á
landi. Sumarið 1997 voru ræktaðar plöntur af þessum stofnum á Korpu og þær metnar sam-
kvæmt leiðbeiningum fyrir gulrófur frá UPOV (Intemational Union for the Protection of New
Varieties of Plants). Auk þessara 11 stofna var lýst þremur öðram fræstofnum, Sandvíkurrófu
og Nesrófu, sem framræktaðar hafa verið á Korpu, og einnig stofni frá Gunnari Vemharðssyni
garðyrkjubónda í Grænuhlíð í Reykjavík.
Sáð var í bakka í gróðurhúsi þann 25. apríl og 28. maí var plantað út 50 plöntum af
hveijum stofni. Rófumar vora teknar upp 6. og 7. september og metnar samkvæmt UPOV.
Alls vora metnar 40 rófur af hveijum stofni. Matið er tvíþætt. Á ofanvextinum var metin
staða, litur, blaðbreidd, blaðlengd o.fl. og á rótinni, litur kjöts og húðar, lögun, lengd og
breidd.
Lýsing á rabarbara ræktuðum á íslandi
Rabarbari hefur verið varðveittur á Rannsóknastofnun landbúnaðarins frá árinu 1978. Hefur
hann verið í landi tilraunasstöðvarinnar á Korpu.
Eva G. Þorvaldsdóttir, garðyrkjukandidat, fylgdist með vexti rabarbarans sumarið
1997 og lýsti fyrir Norræna genbankann.
f safninu era 4 íslenskir klónar, 1 grænlenskur og 12 erlendir. Rabarbarinn var metinn
samkvæmt leiðbeiningum frá UPOV. Einnig var stuðst við einkenni sem Danir notuðu við
lýsingu á rabarbara fyrir NGB árið 1994.
Fylgst var með vexti og þroska plantnanna frá 9. maí til 28. júní, en þá vora plöntumar
hættar að vaxa. Alls vora metin 33 einkenni, þar á meðal litur og stærð blöðku, litur, lengd,
þykkt og staða stilks, auk þess sem þversnið var tekið um miðjan stilk og lögun skráð. Einnig
þéttleiki stilka, blómskipun og fleira.