Fjölrit RALA - 06.06.1998, Page 69

Fjölrit RALA - 06.06.1998, Page 69
59 Fræ1997 Frærækt (132-1144) Fræ var hirt af eftirtöldum stofnum í ágúst og september 1997. Beringspuntur: Tumi var sleginn í stórreit. Vallarsveifgras: Eiríkur rauði (RlPop 8905) var sleginn í stórreit. Eiríki rauða og Tuma var sáð í nýja stórreiti. Hnausasafn grasstofna, sem mynda stofnfræ, er nú varðveitt á Geitasandi og fræ tekið af þeim stofnum sem fræ bera ár hvert. Frærækt belgjurta í fjölgunarreitum á Rangárvöllum eru nú innlendur hvítsmári og fjallalykkja. Einnig var fræuppskera mæld í hvítsmárayrkinu HoKv9238 svo og í umfeðmingsflekki sem plantað var í sumarið 1993. Borið var á reitina 15 kg P og 30 kg K á ha. Sæmilega góð frævun varð hjá þessum tegundum en hart frost í annarri viku september tók fyrir frekari fræþroska. Fræið er því illa þroskað. Fræuppskera var mæld á fjölgunarreitum og niðurstaðan er eftirfarandi: kg/ha 8 16,6 4 6,6 Innlendur landgræðsluhvítsmári Hvítsmárinn HoKv9238 Fjallalykkja Umfeðmingur Fræverkun (132-1170) Allt fræ sem safnað er af starfsmönnum RALA er hreinsað í fræhreinsunarbúnaði sem nú hefur verið komið fyrir á Korpu. Rófufræ var hreinsað fyrir fræræktarbónda. Lerkifræ var hreinsað og flokkað 1995 fyrir Skógrækt ríkisins og Héraðsskóga. Það fræ sem ekki náðist úr könglum með hefðbundnum aðferðum náðist með því að tæta könglana niður og hreinsa eftir það. Birkifræ var hreinsað fyrir Landgræðslu ríkisins. Verkun víðifræs (132-9356) Hafið er rannsóknaverkefni í samvinnu við Rannsóknastöð Skógræktar Ríkisins að Mógilsá og Landgræðslu ríkisins þar sem markmiðið er að nýta innlendan víði í landgræðslu. Hlutur RALA er að finna aðferðir til að safna, verka og geyma víðifræ í meira en eitt ár. Rannsóknimar hófust í júlí 1997 með fræsöfnum og verkunartilraunum. Frærækt innlendra landbótaplantna (132-9346) Verkefnið hófst með sáningum á belgjurtum í þrjár tilraunir á Suðurlandi, þar sem ætlunin er að kanna áhrif áburðargjafar og vorblómstrandi plantna. Fylgst með afráni skordýra á fræi og smáplöntum. Frævarar sem heimsóttu belgjurtimar vom greindir til tegunda. Frærannsóknir (185-1105)

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.