Fréttablaðið - 02.12.2020, Síða 26

Fréttablaðið - 02.12.2020, Síða 26
Grasrótarstigið sýnir sig í því að það er 5 til 7 prósent kosn- ingaþátttaka í formanns- kjöri í stærstu stéttarfélögunum. Halldór Benjamín Þorbergsson, fram- kvæmdastjóri SA 29.11.2020 MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is Miðvikudagur 2. desember 2020FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL | Þórður Gunnarsson SKOÐUN KRINGLUNNI • SÍMI 568 9400 • BYGGTOGBUID.IS VERÐ ... 7.495 JBL BLUETOOTH HEYRNARTÓL VERÐ ÁÐUR ....44.995 JÓLATILBOÐ ...29.995 VERÐ ÁÐUR ....16.495 JÓLATILBOÐ ...12.995 VERÐ ...17.995 VERÐ ...24.995 JBL BLUETOOTH HÁTALARI SVARTUR Fæst í mörgum litum VERÐ ... 9.795 VERÐ ... 7.995 VERÐ ... 5.995 VERÐ ... 7.995 VERÐ ... 6.995 GRILLPANNA 27x23cm HÁTALARI MEÐ HÁTALARA FLÖKTANDI LED HOM-HELIOSBTBLACK/WHITEHOM-HELIOSBLACK/WHITE 120 LED perur sem geta líkt eftir eldi HOMELINE HELIOS IGNIS LJÓS APOLLO 96 SVART BLUETOOTH EVA TRIO SÓSU POTTUR 1,1 LÍTER PÖNNUSETT TNS 24 og 28cm ELDFÖST MÓT Cerise 26+32cm 2stk 16 cm Creme STEYPUJÁRNS SKAFTPOTTUR VERÐ ÁÐUR ....27.995 JÓLATILBOÐ ...19.995 VERÐ ...99.995 Hrímhvít hrærivél með glerskál MATVINNSLUVÉL VERÐ .....9.995 GEORGE FOREMAN HEILSUGRILL 28x17 cm grillflötur 1650w JBL FLIP5BLACK Fæst í mörgum litum VERÐ ... 5.495 ARIETE VÖFFLUJÁRN EKTA BELGÍSKAR VÖFFLUR KAI PUREKOMACHI2 HNÍFASETT VERÐ ... 8.995 3stk SCHOU KJÖT HITAMÆLIR ÞRÁÐLAUS VERÐ ÁÐUR ....5.495 JÓLATILBOÐ ...4.495 VERÐ ...13.995 VERÐ .....9.995 KRULLUBURSTI REVLON VOLUMIZER PRO VERÐ .....9.995 VERÐ .....7.495 VERÐ .....7.495 HÁRBLÁSARI BABYLISS 2100W AC MÓTOR MEÐ HLEÐSLU PHILIPS 1000 SERÍA SHIATSU NUDDKODDIMEDISANA VERÐ ÁÐUR ....39.995 JÓLATILBOÐ ...29.995 PARIS POTTASETT Fissler gæði MAGNAÐ JÓLATILBOÐ 5 stk 7 BOLLA SVÖRT FRÍ HEIMSENDING SENDUM HVERT Á LAND SEM ER ÞEGAR VERSLAÐ ER Í VEFVERSLUN OKKAR FYRIR MEIRA EN 10.000 JÓLABÚÐIN ÞÍN Ein auka skál fylgir! ARTISAN 156 Centerhotels högnuðust um 112 milljónir króna árið 2019. Til samanburðar nam hagnaðurinn 314 milljónum króna árið áður. Arðsemi eiginfjár var 14 prósent. Eigið fé var 843 milljónir króna við árslok og eiginfjár- hlutfallið 46 prósent. Tekjurnar jukust um þrjú prósent á milli ára og voru 4,6 milljarðar króna. Hótelsamsteypan er í eigu S&K eignarhalds- félags sem var með fjóra milljarða í eigið fé við lok árs í fyrra og eiginfjárhlutfallið 91 prósent. Ferðaþjónusta glímir við mikinn vanda því fáir ferðamenn koma til landsins vegna COVID- 19. „Félagið vinnur nú að samningum við kröfu- hafa sína hvað varðar húsaleigu og annan fast- an kostnað á árinu 2020,“ segir í ársreikningi. Húsaleiga hækkaði um 44 prósent á milli ára og nam 1,6 milljörðum króna í fyrra. Centerhot- els greiddi tengdum aðilum 1,4 milljarða króna í leigu árið 2019. Árið áður var sú fjárhæð 971 milljón króna. Centerhotels er í eigu hjónanna Kristófers Oliverssonar og Svanfríðar Jónsdóttur. – hvj Centerhotels hagnast um 112 milljónir Kristófer Olivers­ son, forstjóri CenterHotels. Mjög hefur verið gengið á borgaraleg réttindi fólks á undanförnum mánuðum. Lögreglumenn á Suðurlandi réðust um helgina til atlögu við fólk í einkasamkvæmi og hótaði sektar- gjörðum. Ástæðan var sú að ekki var nægilega vel gætt að sóttvarna- hólfaskiptingu, en 30 gestir voru á svæðinu. Haft var eftir einum lögreglumanninum í viðtali á Vísi: „Við reynum að hafa öflugt eftirlit. Það er það sem virðist skipta máli. Því miður eru margir sem reyna að fara léttu túlkunina og finna götin í reglunum. En meiningin er að túlka allt mjög þröngt þannig að við vinnum á þessu, ekki finna hvar eru gloppur og göt og hanga á því.“ Yikes. Þetta minnir aðeins á sögu- þráðinn í stórvirkinu Footloose, þar sem bannað er að dansa og lögreglan eltist við ungt fólk sem dirfist að slá upp dansleik. Einn munurinn er sá að þessi hörmulegi og að hluta til sjálfskapaði veru- leiki okkar í dag er ekkert fyndinn eða skemmtilegur. Ég hefði svo haldið að túlka ætti þröngt heimildir lögreglunnar til að skipta sér af fólki, en öll viðmið um meðalhóf eru svo sem löngu farin út um gluggann. Hérlendis sem erlendis. Leiða má líkur að því að einhver hafi tilkynnt brot á sóttvarnalögum með því að fylla út þar til gert eyðublað á COVID. is. Þetta er kannski það sorglegasta við þetta allt saman – andrúmsloft tortryggni og taugaveiklunar er nú allsráðandi og fólki er egnt upp hvert á móti öðru. Það eru sannar- lega fordæmi fyrir samfélögum þar sem borgararnir eru hvattir til að hafa eftirlit hverjir með öðrum og tilkynna brot samborgara sinna. Slíkum samfélögum hefur sjaldan eða aldrei farnast vel. Þó eru allar þessar aðgerðir kynntar undir formerkjum þjóð- félagslegrar samstöðu. En ef sú samstaða felst í því að fólk þurfi að sætta sig við lögreglueftirlit með mannamótum, í stað þess að höfða til persónulegrar ábyrgðar fólks, þá erum við einfaldlega á rangri leið. Sama hversu göfugur tilgangurinn kann að vera. Kannski er kominn tími til að hætta að tala um fordæmalausa tíma. Þetta ástand hefur nú varað í að verða tíu mánuði og mun líkast til gera það áfram um langt skeið. Það er að segja, ef heldur fram sem horfir. Ef stefna stjórnvalda verður áfram sú að stöðva hópamynd- anir, sama hvaða nafni þær kall- ast, frekar en að læra að lifa með veirunni og aðlagast breyttum veruleika. Mögulega er tími til að venjast því að daglegur fjöldi komufarþega í Leifsstöð verði ámóta og fjöldi gesta á heimili Víðis Reynissonar um helgar. Skulum samt vona ekki. Víðir Reynis International

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.