Fréttablaðið - 02.12.2020, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 02.12.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 5 5 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Má vera kúrudýr um jólin? VIÐSKIPTI „Það hefði reyndar verið heppilegra að gera breytingu í þessa veru fyrir nokkrum árum – það hefur verið ljóst nokkuð lengi að 3,5 prósenta viðmiðið var of hátt – heldur en nú þegar ríkissjóður þarf á miklu fjármagni að halda,“ segir Friðrik Már Baldursson, prófessor í hagfræði við Háskólann í Reykja- vík. Markaðurinn hefur ábyggilegar heimildir fyrir því að innan fjár- mála- og efnahagsráðuneytisins sé unnið að því að skoða mögulegar breytingar á uppgjörskröfunni, sem er einnig kallað ávöxtunarvið- mið. Íslenskir lífeyrissjóðir þurfa að núvirða skuldbindingar sínar miðað við 3,5 prósenta vexti umfram verðbólgu samkvæmt lögum. Lítill áhugi lífeyrissjóða á ríkis- skuldabréfum hefur vakið upp spurningar um uppgjörskröfuna sem er sögð of há. Lækkandi vaxta- stig samhliða óbreyttri uppgjörs- kröfu leiðir til þess að lífeyris- sjóðirnir horfa fram á fórnarskipti. Meiri ávöxtun fylgir að jafnaði meiri áhætta, og til að ná þessu 3,5 prósenta viðmiði þurfa sjóðirnir því að taka meiri áhættu en áður. „Þegar hagkerfið er komið inn í allt annað vaxtaumhverfi kemur sífellt betur í ljós hversu úrelt þetta viðmið er,“ segir Daníel Svavarsson, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans. Breyting á uppgjörskröfunni er hins vegar vandasamt verk og við- kvæmt á vettvangi stjórnmálanna enda felur breytingin í sér að gífur- leg verðmæti eru færð á milli kyn- slóða. – þfh / sjá Markaðinn Uppgjörskrafan úrelt Lítill áhugi lífeyrissjóða á ríkisbréfum vekur spurningar um uppgjörskröf- una. Sögð of há við núverandi vaxtaumhverfi. Rætt um breytingar á henni. 3,5% raunávöxtun þurfa sjóðirnir að nota til að núvirða skuld- bindingar. VIÐSKIPTI Landsvirkjun leggur til að íslenska ríkið komi upp sam- bærilegu endurgreiðslukerfi vegna kostnaðar stóriðjufyrirtækja við kaup á mengunarkvótum og Norð- menn hafa haldið uppi frá árinu 2013. Stórhækkandi verð á ETS-kolefn- iseiningum á síðastliðnum tveimur árum eykur líkur á að mengandi iðnaður færist til svæða þar sem kröfur í umhverfismálum eru væg- ari en í Evrópu. „Stórnotendur raf- orku á Íslandi kaupa nú þegar ETS- einingar á markaði vegna losunar þeirra hér á landi. Íslenska ríkið fær ákveðinn hluta þeirra greiðslna. Norðmenn hafa nýtt sér heimild til að láta hluta af söluandvirði þessara eininga renna til orkufreks iðnaðar. Þá leið gætum við líka farið,“ segir Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðar- forstjóri Landsvirkjunar. – thg / sjá Markaðinn Stóriðjan fái endurgreiðslur DÓMSTÓLAR Yfirdeild Mannrétt- indadómstóls Evrópu staðfesti í gær dóm réttarins í Landsréttarmálinu sem kveðinn var upp í mars í fyrra. Dómurinn var skipaður sautján dómurum og var niðurstaðan ein- róma. Fyrri niðurstaða var á þá leið að með því að hafa ekki skipað dóm- ara við Landsrétt í samræmi við landslög hefði íslenska ríkið brotið í bága við ákvæði Mannréttinda- sáttmálans um réttláta málsmeð- ferð. Þegar skipað var í Landsrétt í fyrsta sinn gerðist þáverandi dómsmálaráðherra brotlegur, að mati dómsins, við reglurnar sem um skipunina giltu með því að hafa tekið fjögur dómaraefni af lista hæfnisnefndarinnar og sett önnur dómaraefni inn í staðinn án þess að leggja sjálfstætt mat á eða afla frek- ari gagna um dómarareynslu þeirra sem fjarlægð voru. – aá / sjá síðu 4 Staðfestu fyrri dóm MDE Íslenska kvennalandsliðið tryggði sér sæti í lokakeppni Evrópumótsins sem fram fer í Englandi sumarið 2022. Það hófst með baráttusigri á liði Ungverja í Búdapest, 0-1. Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði sigurmarkið um miðjan síðari hálf leik. Þar með komst Ísland í hóp þriggja liða með bestan árangur í öðru sæti riðlanna. Sjá nánar á síðu 12. MYND/MLSZ.HU

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.