Feykir - 26.06.2019, Qupperneq 11
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU OG LÍKAMSRÆKT FEYKIS:: Hæll
Feykir spyr...
Hvað á að gera í
sumarfríinu?
Spurt á Facebook
UMSJÓN Eysteinn Ívar
„Ég ætla að vinna í breytingum
á húsi fjölskyldunnar.“
Vignir Kjartansson
„Ferðast um landið með
fjölskyldunni og fara í tvö
brúðkaup.“
Sigurður Ingi Pálsson
„Ég ætla að skella mér í
sumarbústað með mínu fólki og
fyrst og fremst NJÓTA ! “
Steinunn Gunnsteinsdóttir
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Krossgáta
Tilvitnun vikunnar
Mér er sama hvort þú hatar mig eða elskar mig, svo lengi sem ég fæ
þig til að hugsa. – Madonna
Sudoku
Ótrúlegt – en kannski satt...
Harry S. Truman var 33. forseti Bandaríkjanna og gegndi embætti
frá 1945 til 1953. Hann tók við stjórnartaumunum á mjög
viðkvæmum tímapunkti, undir lok síðari heimsstyrjaldarinnar.
Ótrúlegt, en kannski satt, þá stendur S-ið í nafninu ekki fyrir neitt.
.
„Ég ætla bara að slaka á og
njóta lífsins, kíki að sjálfsögðu
á einhverjar bæjarhátíðir, verð
allavega að elta Stjórnina á
Hofsós og á Þjóðhátíð.“
Telma Björk Gunnarsdóttir
Brynjar Ægir Ottesen og Guðný Kristín Guðnadóttir tóku við
búi á Bálkastöðum 1 í Hrútafirði á síðasta ári þar sem þau
stunda sauðfjárbúskap en meðfram því vinnur Guðný Kristín
á leikskólanum Ásgarði á Hvammstanga. Þau hjón eiga fjögur
börn. „Auðvitað eldum við mest lambakjötið okkar góða,
þetta er í miklu uppáhaldi hjá flestum á heimilinu. Síðan er
auðvitað alltaf gott að fá sér góðan eftirrétt eða góða böku í
kaffinu,“ segja þau Brynjar og Guðný.
Grillað lamb
með ostasósu
og rabbar-
barabaka
( FEYKIR MÆLIR MEÐ ) frida@feykir.is
Guðný Kristín Guðnadóttir og Brynjar Ægir Ottesen. MYND ÚR EINKASAFNI
AÐALRÉTTUR
Grillað úrbeinað
lambalæri
Lærið útflatt á álpappír og
kryddað með:
2-3 msk Best á lambið kryddi
1 msk sinnepsfræ
1 tsk salt
½ tsk svartur pipar
Aðferð: Nokkrum hvítlauksrifjum
er stungið í lærið víðs vegar. Lærinu
er pakkað inn í álpappír og skellt á
grillið. Með þessu er mjög gott að
bera fram ofnbakað grænmeti,
ferskt salat og rjómaostasósu.
Rjómaostasósa
½ líter rjómi
1 piparostur
1 mexicoostur
1 nautakraftsteningur
1 tsk worchestershire sósa
Aðferð: Best er að rífa ostinn út í
rjómann, síðan er öllu blandað
saman og látið malla saman í potti
þar til allt er vel bráðið.
EFTIRRÉTTUR
Rabbarbarabaka
Fylling:
700 g rabbarbari
100 g púðursykur
50 g salthnetur
100 g Nóa kropp
Deig:
350 g hveiti
150 g haframjöl
100 g púðursykur
200 g mjúkt smjör
Aðferð: Hráefnunum í fyllinguna
blandað vel saman í eldföstu móti.
Öðru innihaldi hnoðað saman og
sett yfir rabbarbarablönduna. Bakað
í ofni við 200°C í 35 mínútur.
Þetta er æðislegt nýkomið úr
ofninum með þeyttum rjóma eða ís.
Verði ykkur að góðu!
Við skorum á Kolfinnu Rún
Gunnarsdóttur og Jón Marel
Magnússon á Hvammstanga.
25/2019 11
Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum.
FEYKIFÍN AFÞREYING
Líkamspartur einn ég er.
Til útilegu gleymdu ei mér.
Æ mig geymir Árnesþing.
Oddvæddur ég klakann sting.