Fréttablaðið - 23.12.2020, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 23.12.2020, Blaðsíða 4
Viðburðarík fjölskyldusaga um ólgu hernámsáranna á Seyðisfirði þegar allt breyttist og lífsháskinn vofði yfir. Kristín Steinsdóttir, höfundur Ljósu, segir hér frá trúverðugum og skemmti- legum sögupersónum af einstakri hlýju og næmni. Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga til jóla | www.forlagid.is LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA VIÐSKIPTI Gildi lífeyrissjóður, næst- stærsti hluthafi Skeljungs með um tíu prósenta hlut, ætlar ekki að sam- þykkja yfirtökutilboð sem fjárfest- ingafélagið Strengur – sem hjónin Ingibjörg Pálmadóttur og Jón Ásgeir Jóhannesson og Sigurður Bollason fara meðal annars fyrir – hefur gert í allt útistandandi hlutafé félagsins. Á r ni Guðmu ndsson, f ram- kvæmdastjóri Gildis, segir í samtali við Fréttablaðið að „aðalástæðan fyrir þeirri ákvörðun sjóðsins er sú að við teljum verðið vera of lágt.“ Yfirtökutilboðið, sem rennur út í fyrstu viku nýs árs, var sett fram 9. nóvember og hljóðaði upp á 8,315 krónur á hlut, en við lokun markaða í gær stóð gengið í 8,65 krónum. „Við teljum,“ útskýrir Árni, „að það séu ýmis tækifæri til staðar í félaginu og það liggja fyrir tvö sjálf- stæð verðmöt sem gefa til kynna að virði Skeljungs sé talsvert meira en felst í yfirtökutilboðinu.“ Árni segir að sú kynning sem Strengur hafi birt á yfirtökutilboði sínu í Skeljung „sé að mati sjóðsins ekki trúverðug og gefi ekki rétta mynd af stöðu og rekstrarhorfum félagsins. Þannig er til dæmis ekkert vikið að því hvaða áhrif faraldurinn hefur haft á reksturinn á árinu.“ Í greinargerð sem þrír óháðir stjórnarmenn Skeljungs birtu vegna yfirtökutilboðs Strengs á mánudag kom fram að stjórnin teldi nær ómögulegt að leggja sérstakt mat á það hvort vænlegt sé fyrir einstaka hluthafa að samþykkja tilboðið eða hafna því. Hver og einn hlut- hafi yrði að meta með sjálfstæðum hætti tilboðsverðið og eftir atvikum leita sér sérfræðiráðgjafar. Árni gagnrýnir greinargerðina og telur að ekki sé verið að gæta nægjanlega vel að hagsmunum allra hluthafa, eins og stjórnarmönn- unum ber að gera. „Stjórnin hefði mátt koma með betra, sjálfstætt mat sitt á tilboðinu og þannig gæta að jafnræði hlut- hafa gagnvart upplýsingum. Svona vinnubrögð eru að okkar mati ekki til þess fallin að auka tiltrú almenn- ings á hlutabréfamarkaði þegar gerð eru yfirtökutilboð í skráð félög.“ Spurður hvernig Gildi sjái fyrir sér framhaldið, verandi hluthafi í félagi þar sem einn fjárfestahópur kann mögulega að ráða yfir 50 pró- senta hlut, segir Árni erfitt að segja fyrir um það á þessari stundu. Á meðal yfirlýstra áforma Strengs er að Skeljungur verði skráður af markaði. „Við munum klárlega leggjast gegn því að félagið verði tekið af hlutabréfamarkaði.“ – hae Gildi samþykkir ekki yfirtökutilboð Strengs í Skeljung  Stjórnarmennirnir þrír hefðu mátt koma með betra, sjálfstætt mat sitt á yfirtökutilboðinu. Árni Guðmunds- son, fram- kvæmdastjóri Gildis lífeyrissjóðs O R K U M Á L Ork a nát t ú r u nna r (ON) fullyrðir að Landsnet hygli Landsvirkjun umfram aðra raf- orkuframleiðendur í fyrirhugaðri kerfis áætlun áranna 2020 til 2029. Þetta kemur fram í umsögn ON um kerfis áætlunina, sem birt hefur verið á vefsíðu Orkustofnunar. ON vísar til þess að í umsögn Orkustofnunar um samtengingu flutningskerfis suðvestur- og norð- austurhluta landsins, komi fram að einn viðskiptavina hafi ítrekað beiðni sína um að auka f lutnings- getu milli landshlutanna, en þar er vísað til Landsvirkjunar. Um er að ræða svæði þar sem virkjanir með meira en 1.000 megavött af upp- settu afli eru staðsettar. Landsvirkjun á allar virkjanirnar sem um ræðir. Takmarkanir núver- andi f lutningskerfis draga hins vegar úr möguleikum á afhendingu rafmagns sem nemur um 300 gíga- vattstundum á ári. „Getur Landsvirkjun kraf ist þess að Landsnet styrki f lutnings- kerfið, á kostnað allra notenda, svo [Landsvirkjun] geti þannig selt 300 gígavattstundir á ári, eða meira, til annarra kaupenda?“ segir ON. Í umsögn segir ON jafnframt að verði áformin að veruleika, aukist tekjur Landsvirkjunar um 1,4 millj- arða króna á ári, allt fyrir atbeina uppbyggingar f lutningskerfis sem allir notendur greiða fyrir. „Að mati ON er eðlilegt að þeir sem njóti ábatans greiði fyrir hann, ekki síst í ljósi þess að samkeppni ríkir á raforkumarkaði [...]. Gagn- vart almenningi er þessi afgreiðsla óeðlileg og óásættanleg.“ segir í umsögn ON. Landsvirkjun bregst við umsögn ON í sínu erindi til Orkustofn- unar. Segir Landsvirkjun miður að umræða um kerfisáætlunina snúist um ásakanir sem þessar: „Landsvirkjun telur eðlilegt að Orkustofnun óski frekari skýringa á ofangreindum fullyrðingum ON. Landsvirkjun vill leggja áherslu á að markmið fyrirtækisins er að selja raforku á öllu landinu [...] Eftir því sem er best vitað eru flestir raforku- framleiðendur í landinu með þá stefnu líka,“ segir í umsögn Lands- virkjunar. Undir lok nóvember var greint frá því að Landsnet hygðist hækka gjaldskrá sína til stórnotenda á næsta ári, en sú ákvörðun mætti mikilli gagnrýni. Til að mynda sagði Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ákvörðunina óskiljanlega. Í umsögn Norðuráls um kerfisáætlun Lands- nets segir að „f lutningskostnað þurfi nauðsynlega að lækka til að Ísland verði ekki með öllu ósam- keppnishæft.“ Bjarni Bjarnason, forstjóri ON, sagði í Fréttablaðinu í september að hækkandi f lutningskostnaður raforku myndi á endanum leiða til minni raforkukaupa. Það leiði til þess að Landsnet þurfi að hækka gjaldskrá enn frekar. „Þarna gæti myndast spírall sem ekki endaði vel,“ sagði Bjarni. Í umsögn sinni til Orkustofnunar bregst Landsnet við þessari gagn- rýni og segir fjölda hugsanlegra raforkukaupenda tilbúna, án þess að tilgreina hvaða aðilar það eru: „Hvað varðar áhyggjur af minnk- andi notkun kerfisins, þá erum við hjá Landsneti ekki eins áhyggju- full yfir því að stórnotkun fari minnkandi, en á síðustu misserum höfum við fundið fyrir miklum áhuga nýrra notenda á að tengjast f lutningskerfinu. [...] Það er áhugi fyrir að staðsetja sig víðs vegar um landið og er stærð áhugasamra not- enda allt frá 10 megavöttum upp í 300 megavött.“ – thg@frettabladid.is Landsvirkjun og ON takast á ON heldur því fram að Landsnet gangi erinda Landsvirkjunar í nýrri kerfisáætlun. Áform um tengingu norðausturhluta landsins við suðvesturhluta séu á kostnað allra notenda en gagnist bara Landsvirkjun. Orka náttúrunnar og Landsvirkjun takast á í innsendum erindum vegna kerfisáætlunar Landsnets. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Gagnvart almenn- ingi er þessi af- greiðsla óeðlileg og óásætt- anleg. ON um að allir notendur flutnings- kerfis greiði fyrir tengingu sem er sögð gagnast Landsvirkjun einni FÓTBOLTI Knattspyrnusamband Íslands hefur ráðið Arnar Þór Við- arsson sem nýjan þjálfara A-lands- liðs karla til næstu tveggja ára Arnar er með UEFA Pro þjálfara- réttindi frá belgíska knattspyrnu- sambandinu og á að baki 52 A- landsleik. Aðstoðarþjálfari Arnars verður Eiður Smári Guðjohnsen, en þeir Arnar og Eiður störfuðu einnig saman með U21 landsliðið. – hó Nýir menn taka við landsliðinu DÓMSMÁL Séra Arndís Ósk Hauks- dóttir ber ekki vitni í meiðyrðamáli Jóns Baldvins Hannibalssonar gegn dóttur sinni Aldísi Schram, RÚV og Sigmari Guðmundssyni útvarps- manni. Var þetta úrskurðað í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær. Aldís vildi leiða fram séra Arn- dísi og þrjú önnur vitni: Margréti Schram, Hildigunni Hauksdóttur og Sigríði H. Richards. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður Jóns Bald- vins, krafðist þess að vitnin fjögur yrðu ekki leidd fram, en dómari heimilaði þau þrjú síðastnefndu, sem öll hafa lýst meintum brotum í fjölmiðlum eða í Metoo hópi. Vitnisburður séra Arndísar átti að tengjast ummælum Aldísar um nauðungarvistun á geðdeild. Gagn- rýndi Vilhjálmur þetta í ljósi þess að hún hefði ekki orðið vitni að neinu sjálf heldur aðeins af afspurn. – khg Séra Arndís Ósk ber ekki vitni Aldís Schram í héraðsdómi. 2 3 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.