Feykir - 09.01.2019, Síða 6
6 01/2019
sem hann eignaðist með
ólöglegri áfengissölu. Til þess
keypti hann ein 30 þvottahús í
borginni sem skiluðu kannski
1000 dollurum á dag eftir
þvottahúsreksturinn en frá
þeim lagði hann kannski inn í
bankana 10-20 þúsund dollara
á dag og kom þannig peningum
sínum löglega í umferð.
Eyddum deginum á rölti
í Cusco og ég keypti m.a.
tvær peysur úr alpacaull á
barnabörnin. Sameiginlegur
kvöldverður á veitingastað
þar sem framin var tónlist
og dans og skrípalæti. Ég
drekk helst ekki bjór en hér
er þjóðardrykkur sem kallast
Psico Sur ekki mjög sterkur en
íblandaður einhverju þeytiefni
sem freyðir. Hann reyndi ég
að sjálfsögðu og smakkaðist
vel. Einnig var ég kominn
upp á að neyta drykkjar sem
framleiddur er í landinu og
heitir Inca Cola, gulur á lit eins
og sólin sem Perúar hafa jafnan
dýrkað. Þetta er miklu betri
drykkur en venjulegt Coca
Föstudagurinn 21. september
var rólegheitadagur í bænum
Aquas Calientes. David leið-
sögumaður fór um morgun-
inn upp með þá sem ekki
gátu farið daginn áður vegna
veikinda og örfáir fleiri fóru
öðru sinni. Ég lét fyrri ferðina
duga og rölti svolítið um götur
seinni daginn. Þetta er bara
ferðamannabær með versl-
unum og veitingastöðum en
samt gaman að skoða sig um.
Milljónir fara til Machu Picchu
árlega og umferðin gríðarleg.
Kl. 4:30 var stigið um borð
í lestina sem flutti okkur til
Cusco, fjögurra stunda ferð eða
því sem næst. Frá lestarstöðinni
var tekin rúta en göturnar
sem við ókum voru margar
hræðilega ósléttar og mjög
þröngar en hús víða óhrjáleg
í meira lagi og sóðaskapur
mikill. Villihundar eru margir á
götum, stundum í smáhópum,
stundum einir. Tókum gistingu
á góðu hóteli við þrönga götu
og gamla. Þar er ferhyrndur
húsagarður sem hefur verið
yfirbyggður.
Dagar í Cusco
Næsti dagur var tekinn rólega.
Ferðahópurinn kominn í 3700
m hæð og við þurftum að
aðlagast hæðinni. Gengum
upp á Vopnatorgið, Place
del Armas. Var í félagsskap
með Andra og Hallfríði og
Ragnari Kimbastaðafrænda.
Andri vinur minn hafði
sett buxur sínar í þvott en
gleymdi þar í búnti af seðlum.
Hann uppgötvaði þetta þegar
við vorum að fara út, hafði
samband við afgreiðsluna
og með snarræði tókst að ná
peningunum áður en þeir fóru
í þvottavélina. Við sögðum
að þarna hefði hann ætlað að
reyna peningaþvætti. Hann
greindi þá frá því hvernig
þetta væri til komið með
orðið peningaþvætti. Það var
á dögum Al Capone í Banda-
ríkjunum, þegar bannárin
voru og Al Capone þurfti að
koma í umferð peningum
FRÁSÖGN & MYNDIR
Hjalti Pálsson
Í Feykisblaðinu 28. nóvember 2018 birtist fyrsti hluti frásagnar um ferð mína til Perú
dagana 15.— 30. september síðastliðinn. Skal nú tekinn upp þráðurinn þar sem
frásögn lauk með skoðunarferðinni um eyðiborgina Machu Picchu. Eftir þá upplifun
tókum við gistingu á hóteli í bænum Aquas Calientes og þar borðaður kvöldverður.
Sat þar til borðs með Guðrúnu Bergmann fararstjóra og David perúanska leiðsögu-
manninum, ásamt Ragnari Ásmundssyni sem er tvöfalt systkinabarn við þá
Kimbastaða-bræður, þannig að Ásmundur var bróðir Hjörleifs á Kimbastöðum og
kona Ásmundar var systir Áslaugar, móður þeirra bræðra. Þar kom m.a. upp að
Guðrún kvaðst vera ættuð frá Viðvík, afkomandi Péturs Zophoníassonar ættfræð-
ings sem var langafi hennar. Eftir það töluðum við um okkur Skagfirðingana.
Steinveggirnir mikilfenglegu við Sacayhuaman.
Ferðasögubrot Hjalta Pálssonar
Perú – Inkalandið
í Andesfjöllum II
Cola og flestir sem brögðuðu
hann líkaði vel.
Sunnudagurinn 23. septem-
ber var frjáls í Cusco fram
að hádegi. Þessi borg er 13
gráður og 9 mínútur sunnan
við miðbaug. Fram um 1970
bjuggu þar einungis 35.000
manns en nú búa þar um
630.000 manns. Flugvöllurinn
er nú í henni miðri en var áður
utan við borgina. Fátækra-
hverfin ná upp um allar
hlíðar. Fyrir hádegi skrapp
ég upp á torgið þar sem var
gleði mikil og skrúðganga á
vegum hersins sem stóð 2-3
tíma. Sá part af henni þar sem
hver flokkurinn eftir annan
gekk hring um torgið, allt
frá leikskólabörnum upp í
hermenn eða lúðrasveitir. Þetta
mun oft vera á sunnudögum
á þvísa torgi. Komst þarna í
tæri við skóburstara sem vildi
ólmur bursta skóna mína og lét
ég það eftir.
Mikil ágengd er hér
af sölufólki, indíánar úr
fátækrahverfum borgarinnar
Stytta á aðaltorginu í bænum Aquas Calienten neðan við eyðiborgina Machu Piccu.
Á skiltinu eru ferðamenn boðnir velkomnir til Machu Picchu.
Höfundur með góðum ferðafélögum á veitingastað í Cusco.