Feykir


Feykir - 09.01.2019, Blaðsíða 9

Feykir - 09.01.2019, Blaðsíða 9
Perla Ruth Albertsdóttir, handknattleikskona frá Eyjanesi í Hrútafirði, leikmaður Selfoss og íslenska kvennalandsliðsins, var valin íþróttamaður USVH árið 2018. Einnig var Perla valin íþróttakona Sveitarfélagsins Árborgar. Glæsilegur árangur hjá Perlu, ekki síst þar sem þetta er í annað sinn sem hún hlýtur þessa sæmd hjá sömu aðilum. Perla Ruth æfir og spilar handknattleik með Umf. Selfoss í Olís deildinni þar sem liðið endaði í 6. sæti deildarinnar sl. vor sem er besti árangur liðsins í sögu félagsins og var Perla í stóru hlutverki í liðinu í vörn og sókn. Perla endaði það tímabil með 105 mörk í 19 leikjum ásamt því að fiska mikið af vítaköstum og vera lykilleikmaður í varnar- leik liðsins. Perla komst einnig með liði Selfoss í 8 liða úrslit bikarkeppni HSÍ. Í öðru sæti í kjöri íþrótta- manns USVH varð Helga Una Björnsdóttir hestaíþróttakona hjá Þyt og í þriðja sæti Salbjörg Ragna Sævarsdóttir körfuknattleikskona hjá Kefla- vík. Feykir hafði samband við Perlu og lagði fyrir hana nokkrar spurningar og byrjaði á að spyrja hvort það hafi komið á óvart að vera valin íþróttamaður tveggja sveitarfélaga annað skiptið í röð? -Já, bæði og. Það er hellingur af frábæru íþróttafólki tilnefnt til svona verðlauna, svo það er alveg frábært og maður verður alltaf jafn hissa og glaður að vera valin best af þeim öllum. En svo veit ég að ég er búin að vinna vel fyrir þessu, leggja mig 100% fram allt árið og gera allt sem ég mögulega get, svo ég veit alltaf að þetta er möguleiki. Perla segir það mikinn heiður að bera þessa titla og í því fólgin mikil hvatning að gera enn betur, og ná ennþá lengra á árinu 2019. Hún segir árið 2018 hafa gengið mjög vel hjá sér og hún tekið skref upp á við á öllum sviðum og er hún virkilega spennt að taka næstu skref 2019. Hvað er framundan? -Fram- undan með Selfossi er seinni hluti tímabilsins í Olís deildinni, en deildin er gífur- lega jöfn þetta árið og geta öll lið tekið stig hvert af öðru, svo seinni hlutinn verður æsi- spennandi og margir mikil- vægir leikir framundan. Framundan með íslenska landsliðinu er umspil um HM sæti (sem við unnum okkur fyrir í forkeppni í nóvember) og spilum við þá leiki í maí á móti Spáni. Svo þangað til spilum við nokkra æfingaleiki og undir- búum okkur fyrir þetta gífur- lega mikilvæga verkefni. Ef umspilsleikirnir við Spán vinnast þá komumst við á HM í desember 2019. Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri? -Vil þakka innilega fyrir þennan heiður að vera kosin íþróttamaður ársins, annað árið í röð, er virkilega þakklát og stolt. Íþróttamaður USVH 2018 Perla Ruth íþróttamaður tveggja sveitarfélaga annað árið í röð Perla Ruth Albertsdóttir, með viðurkenningu sem íþróttamaður USVH. MYND: USVH Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, hefur skipað starfs- hóp sem gera skal tillögur að stefnumótandi áætlun um málefni sveitarfélaga. Formaður starfshópsins er Valgarður Hilmarsson, fyrrverandi sveitarstjóri Blönduósbæjar og sveitarstjórnarmaður til margra ára. Í starfshópnum eru annars vegar tveir fulltrúar skipaðir af ráðherra, þau Valgarður og Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi í Akureyrarbæ, og hins vegar tveir fulltrúar skipaðir af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, þau Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, og Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og bæjarstjóri í Hveragerði. Þá munu starfa með hópnum þau Hermann Sæmundsson, skrifstofustjóri á skrifstofu sveitarfélaga og byggðamála í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, Stefanía Traustadóttir, sérfræðingur á sömu skrifstofu og Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga. Skipunartími starfshópsins takmarkast við embættistíma ráðherra. Sagt er frá þessu á vef samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. /FE Samgöngu- og sveitarstjórnarmál Valgarður Hilmarsson skipaður formaður nýs starfshóps 01/2019 9 Ragnar Þór Jónsson / gítar Væri til í að fara með konuna og börnin á tónleika með Muse ( JÓLA TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is Að þessu sinni er það nokkuð síðbúin Jóla-Tón-lyst sem ber fyrir augu lesenda Feykis en það er Ragnar Þór Jónsson, þingeyskur gítarleikari með heimilisfang á Hofsósi, sem tjáir sig um tónlistina. Ragnar, sem er fæddur 1966, ólst upp í Aðaldal og bjó síðan í 30 ár á Húsavík. Fyrir nokkrum árum kynntist hann síðan Dagmar Ásdísi Þorvaldsdóttur og flutti í framhaldi af því á Hofsós. Spurður út í helstu afrek sín á tónlistarsviðinu segir Ragnar: „Ég hef verið í nokkrum hljómsveitum en í dag er ég í hljómsveit á Húsavík sem heitir SOS og við höfum spilað um allt land á böllum og haldið ótal tónleika. Nú spilum við bara á þorrablótum.“ Hvaða lag varstu að hlusta á? Glugginn í útsetningu Hjálma. Uppáhalds tónlistartímabil? Það er 1980-1990. Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Gömlu rokklögin, er ekki mjög hrifinn af flestu þessu nýja stöffi. Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Íslensk dægurlög. Hver var fyrsta platan/diskurinn/ kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? Man það ekki, sennilega upptaka á kassettu úr útvarpinu. Hvaða græjur varstu þá með? Sambyggt útvarps/kassettutæki Hvað tónlist hlustar þú helst á í jólaundirbúningnum? Öll jólalög. Hvaða músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst nýkomin með bílpróf? Fingraför með Bubba Morthens. Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? Öll lög með SigurRós. Hvenær má byrja að spila jólalögin? 1. des. Uppáhalds jólalagið? Ó, helga nótt í flutningi Egils Ólafssonar, þarf alltaf að heyra það á aðfangadag. Hvert er fyrsta jólalagið sem þú manst eftir að hafa heyrt? Ætli það hafi toppurinn Vinsælast á Playlista Ragnars Þórs: Glugginn HJÁLMAR Bohemian Rhapsody QUEEN Livin On A Prayer BON JOVI Í gegnum holt og hæðir ÞURSAFLOKKURINN Knights Of Cydonia MUSE Fjöllin hafa vakað BUBBI ekki verið lögin af jólaplötu Ómars Ragnarssonar, man ekki hvað hún heitir. Þú vaknar í rólegheitum á jóladags- morgni, hvað viltu helst heyra? Rokk eða popptónlist, hef fengið nóg af jólatónlist síðustu vikurnar. Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? Ég myndi endurtaka Muse á Wembley, þar sem ég get ekki séð Queen, og ég tæki konuna og börnin mín með. Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? Brian May (Queen), hann er svo hrikalega góður gítarleikari. Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út? Queen Greatest Hits, ótrúleg tónlist. Ef þú gætir valið þér að syngja jóladúett með hvaða söngvara sem er, lífs eða liðnum, hver væri það? Væri til í dúett með Ruth dóttur minni og lagið væri I'm Dreaming of a White Christmas. Til vara myndi ég velja Pavarotti. Hvenær eru jólin komin? Þegar ég borða hangikjötið með laufabrauði og jólaöli. Ragnar Þór jólast. MYND ÚR EINKASAFNI SAMANTEKT PállFriðriksson

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.