Feykir - 09.01.2019, Blaðsíða 10
Hér í upphafi skal lesendum Feykis
þökkuð samfylgdin á nýliðnu ári og
óskað velfarnaðar á árinu 2019.
Í skrifum mínum undanfarið hef ég
látið hugann reika og tæpt á ýmsu er
varðar samfylgd hests og þjóðar. Ég hef
nú afráðið að í þessari grein og þeim
næstu einskorði ég umfjöllunina við
frásögur og fróðleik um hin fjölþættu
hlutverk sem íslenski hesturinn hefur
innt af hendi í gegnum aldirnar eða nú
í dag. Kennir þar ýmissa grasa og æði
margt er þar breytt.
Hestarnir hafa á öllum öldum
Íslandsbyggðar haft sérstöðu meðal
búpenings þjóðarinnar og ekkert hús-
dýranna stóð manninum nær en
hesturinn. Ísland hefði líka vafalaust
verið óbyggilegt án hans og var hann því
þjóðinni þarfasti þjónninn. Þannig
nýttist hann til ferðalaga um veglaust
land sem reið- og vinnuhestur, auk þess
að vera burðardýr og dráttarhestur eftir
að hjólið kom til sögunnar. Hesturinn og
þjóðin hafa þannig átt órofa samleið og
íslensk þjóðmenning og hestamennska
eru samþætt. Jafnframt hefur verið
unnið afrek í virkri stofnvernd, þar sem
gömlu landkyni eins og íslenski hestur-
inn vissulega er, hefur verið fundið nýtt
hlutverk í nútímanum og viðgangur
þess þannig tryggður til framtíðar.
Okkur sem nú lifum er gjarnt að
vanmeta margt í fortíðinni og kannski
ofmeta annað. Eitt af því sem gjarna er
vanmetið eru þau samskiptakerfi sem
þó voru, þrátt fyrir allt og allt, til staðar.
Jafnframt því að við eigum oft erfitt
með að setja okkur í þau spor að fyrri
tíðar fólk hafði sínar þrár og langanir,
rétt eins og við sem nú lifum. Póstkerfið
er eitt þessara samskiptakerfa og hafði
meðal annars það hlutverk að fullnægja
þrám og löngunum fólks. Og til að
póstkerfið virkaði gegndi hesturinn
lykilhlutverki.
Reglulegt póstskip mun hafa byrjað
siglingar milli Íslands og Kaupmanna-
hafnar árið 1778 en sett hafði verið
konungleg tilskipun um póstþjónustu
hér á landi árið 1776. Í framhaldinu var
byggt upp skipulegt kerfi póstleiða um
landið og fyrsta póstferðin var farin
1782. Póstferðir voru mismargar eftir
póstleiðum, oft þrjár til fjórar á ári en á
nítjándu öld var þeim fjölgað um
helming.
Konunglegir embættismenn, svo-
kallaðir landpóstar, með lúður og
merki sáu um póstflutningana. Starf
þeirra var mjög erfitt og krafðist hreysti,
seiglu og útsjónarsemi. Þeir urðu að
vera ratvísir og áræðnir en um leið
hyggnir og skynsamir; kunna að
hrökkva frekar en stökkva og hafa
andlegan styrk til að bíða af sér veður
og ófærð frekar en vaða út í foraðið.
Þeir urðu líka að vera traustir, höfðu
enda undir höndum einkabréf og
ábyrgðarskjöl margvísleg sem fólgin
voru í pósttöskunni sem þeir reiddu
um öxl og margvísleg verðmæti voru í
koffortum hestanna. Síðast en ekki síst
urðu þeir að vera hestamenn, ekki í
merkingunni að hafa einhvern svaka
áhuga á hestum sem slíkum eða vera
einhverjir reiðsnillingar, heldur í
merkingunni að kunna virkilega vel
með hesta að fara, hyggja að og tryggja
þarfir þeirra og velferð; í fóðri sem og
að varna meiðslum og gæta þess að
ofreyna þá ekki, nema líf lægi við og
grípa þá til viðeigandi ráðstafana í
framhaldinu.
Á Sögusetri íslenska hestsins er lítil
sýning sérstaklega helguð sögu
landpóstanna, þar er m.a. uppi sama
myndin og fylgir með grein þessari en
hún er af þeim frækna pósti Hans
Hannessyni sem fæddur var í Reykjavík
26. október 1867 og lést, „eftir árangurs-
lausan holskurð við illkynjaðri garna-
flækju aðfaranótt 16. þ. m.“ eins og
komist var að orði í minningarorðum
sem birtust í Vísi 19. janúar 1928. Þar
segir og: „Því kenninafn sitt [Hans
póstur] bar hann með þeim heiðri, að
engum þarf að vera minnkun að, þó
Hans sé nefndur fremstur í flokki
þeirra mörgu dugnaðarmanna, sem
gegnt hafa erfiðustu pótflutningum,
sem nokkurt land í Evrópu hefur af að
segja. Mættu póstar þessa lands taka
Hans sér til fyrirmyndar um margt.“
Ennfremur segir: „Póstflutninga-
mennskan var honum arfur. Hann
byrjaði póstferðir innan við tvítugt,
sem fylgdarmaður Hannesar pósts
föður síns, og í full fjörtíu ár vann hann
að þessu starfi, lengst af á eigin ábyrgð.“
Því næst er rakið í minningarorðunum
á hvaða póstleiðum Hans póstur
starfaði. Fyrst lengi sem póstur norður
um land og framan af allt til Akureyrar
en eftir að siglingar með póst urðu
almennari, s.s. með Faxaflóabátnum
upp í Borgarnes, tók hann við póst-
leiðum um Suðurland, allt þar til
bifreiðastöðvarnar í Reykjavík tóku þá
leið yfir vorið áður en hann lést. Í
greininni er tíunduð mjög öryggi hans
og nákvæmni sem ferðamanns en um
leið harðfylgni og ratvísi og sem
virðingarverðs pósts; stundvísin, en
það heyrði til undantekninga að hann
héldi ekki áætlun í póstferðum sínum
„og voru jafnan fullar ástæður fyrir
slíku,“ eins og segir í téðum minn-
ingarorðum. Um ferðahæfileika Hans
pósts í heild sinni segir: „Hans póstur
má heita fyrirmynd í ferðalögum. Þau
voru þau vísindi, sem hann varði æfi
sinni til að komast til botns í.“ Þá segir
að Hans póstur hafi á hverjum sex
árum ferðast áþekka vegalengd og er
umhverfis jörðina en það um íslenskar
byggðir og óbyggðir, „og á vetri jafnt
sem sumri, án þess að nokkurn tíma
bæri slys að höndum.“
Ekki má gleyma hestunum en um
þann þáttinn segir: „Hans lagði mikla
stund á að hafa jafnan duglega hesta, og
sparaði aldrei neitt til þess, að aðbúð
þeirra væri góð. Söðlasmiðir hér í bæ
munu geta sagt frá því, að hann hafi
verið vandlátur með hnakka og
klyfsöðla.“
Rúsínan í pylsuenda minningar-
greinarinnar, er bautasteinn um hinn
sanna mann, þar segir: „Hans var
hversdagslega fáskiftinn maður, og lét
lítið á sér bera. Hann hafði lífsstarfi að
gegna, og það var honum svo mikið
áhugamál, að hann gaf sig lítt að öðru.
Hann var póstur; það nafn vildi hann
eiga – og átti.“
Hans er hér nefndur til sögunnar
sem „erkitýpa“ landpóstsins, en land-
póstar koma víða við sögu í þjóðlegum
fróðleik og bókmenntum okkar og
frásögur af dugnaði og þreki pósthest-
anna eru þar iðulega tíundaðar.
Á árunum um og fyrir 1950 kom út
ritið Söguþættir landpóstanna í þremur
bindum hjá Bókaútgáfunni Norðra á
Akureyri. Í fræðiritinu Póstsaga Íslands
1776–1873, sem út kom 1996 hjá
Þjóðsögu í Reykjavík, er þessari sögu
gerð nákvæm fræðileg skil. Og hvað
bókmenntirnar varðar er skemmst að
minnast Vestfjarða þríleiks Jóns Kal-
mans Stefánssonar þar sem heljamennið
Jens landpóstur kemur mjög við sögu. Í
Aðventu Gunnars Gunnarssonar er
landpóstar getið, ekki er ólíklegt að
þeim hinum sama hafi þótt lítið til um
ferðaflangs Fjalla-Bensa (hér er að vísu
mjög getið í eyðurnar) og í sögunum
frábæru af Jóni Oddi og Jóni Bjarna
eftir Guðrúnu Helgadóttur er landpósts
og getið, en þá mjög í gamansömum
háðsstíl og lagt er út frá því náttúruviti
að kunna að hrökkva frekar en stökkva.
Kappið er gott en gamalt orðatiltæki
segir; „Allt kann sá er bíða kann.“
Kristinn Hugason
HESTAR OG MENN
Kristinn Hugason forstöðumaður Söguseturs íslenska hestsins
Landpóstar
Póstlest Hans Hannessonar pósts. Ljósmynd: Magnús Ólafsson.
10 01/2019