Læknablaðið - des. 2020, Blaðsíða 35
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 593
Nú er bráðum ár liðið frá frægum fundi
Læknaráðs Landspítala með heilbrigðis
ráðherra í janúar 2020 og því tilefni til að
staldra við og minnast þessa fundar, sér í
lagi í ljósi liðinna atburða. Ráðherra sagði
svo eftirminnilega að það væri ,,töluverð
áskorun fyrir ráðherra að standa með
Landspítala þegar koma ályktanir á færi
bandi sem tala um það að þessi stofnun
sé nánast hætt við“ og gagnrýndi um leið
umsagnir frá starfsfólki spítalans þar sem
frekar sé verið að tala starfsemina niður
en byggja upp. Ályktanirnar sem ráðherra
vísar til eru meðal annars ályktun Lækna
ráðs frá janúar 2020 þar sem áhyggjur eru
tíundaðar af aðstæðum á bráðamóttöku
Landspítala er varða álag, sýkingavarnir
og öryggi. Aðrar ályktanir hafa fjallað um
ófullnægjandi húsnæði og óhóflegt álag á
mörgum deildum spítalans og hafa læknar
oft boðið fram aðstoð sína og sérþekkingu
við að finna lausnir. Síðan fundur ráðherra
með Læknaráði var haldinn hefur margt á
daga okkar drifið.
Læknaráð lagt niður
Frá fundinum eftirminnilega hefur heil
brigðisráðherra lagt niður 50 ára gamalt
Læknaráð. Alþingi samþykkti nú í júní
síðastliðnum frumvarp heilbrigðisráðherra
um breytingar á lögum um heilbrigðis
þjónustu og var þar fellt út ákvæði um að
við heilbrigðisstofnanir starfi læknaráð
og þess í stað skuli vera eitt sameiginlegt
fagráð fagstétta heilbrigðisstarfsfólks
á hverri stofnun, forstjóra til ráðgjafar.
Þetta fagráð, sem mögulega mun aðeins
innihalda einn lækni, mun aldrei koma í
stað Læknaráðs sem hefur verið vettvang
ur okkar lækna, bæði almennra lækna
og sérfræðinga, fyrir faglega umfjöllun
um starfsemi spítalanna. Þrátt fyrir að
hafa margt til málanna að leggja, veigra
margir læknar sér við að taka opinberlega
þátt í umræðunni og tjá sig í fjölmiðlum.
Undirrituð vill meina að það sé vandamál
hversu mikið virðist oft þurfa til þess
að læknar tjái sig í fjölmiðlum um brýn
málefni. Þar hefur Læknaráð Landspítala
verið nauðsynlegur vettvangur lækna
spítalans til að koma áhyggjum sínum á
framfæri, sem miðað við yfirlestur álykt
ana síðastliðinna ára hefði verið fullt til
efni fyrir stjórnmálamenn til að hlusta á
og bregðast við.
Samningslausir læknar í heimsfaraldri
Frá fundinum eftirminnilega hefur farsótt
herjað á landsmenn og samningslausir
læknar staðið í stórræðum. Læknar hafa,
líkt og aðrir heilbrigðisstarfsmenn, smitast
í vinnu sinni við að sinna COVID19 sjúk
um, og nýverið kom Landakotsskýrsl an
út sem fjallaði um alvarlega hópsýkingu á
Landakotsspítala sem 98 kórónuveirusmit
eru rakin til, þar af voru 46 sjúklingar
og 52 starfsmenn. Í skýrslunni sést svart
á hvítu hvernig aðbúnaðurinn og húsa
kosturinn er alls kostar ófullnægjandi
fyrir spítalastarfsemina sem fram fer á
Landakoti, en þetta á þó ekki einungis við
um Landakot. Læknar hafa vakið máls á
þessu síðastliðin ár og jafnvel áratugi, á
meðan við bíðum eftir nýjum spítala sem
hefur verið alltof lengi að rísa.
Takk fyrir ykkar framlag, læknar!
Það hefur verið mjög gefandi að fylgjast
með baráttu lækna síðastliðna mánuði
í kórónuveiruheimsfaraldrinum. Sér
námslæknar hafa staðið í framlínunni
ásamt hjúkrunarfræðingum og sjúkra
liðum við að sinna COVID19 veikum, og
hafa jafnframt komið að stefnumótandi
ákvörðunum og skipulagningu aðgerða
í faraldrinum sjálfum. Læknar hafa í far
aldrinum sýnt og sannað mikilvægi þess
að læknar komi að stjórnun, stefnumótun
og skipulagi heilbrigðisþjónustu. Starf
lækna í miðju stormsins hefur verið mikið
og óeigingjarnt, og má þar nefna smit
sjúkdómalækna, lungnalækna, gjörgæslu
lækna, almennra lyflækna og sérnáms
lækna. Auðvitað hefur heimsfaraldurinn
haft áhrif á störf flestra lækna. Lófaklapp
hefur heyrst óma víða og þakklæti fólks
þannig sýnt. Ég er þó með hugmynd fyrir
stjórnendur heilbrigðisstofnana að enn
betri þökkum. Hvað með að leyfa læknum
að nýta ráðstefnuréttindi sín fyrir árið
2020, árið 2021? Eðli málsins samkvæmt
hafa fæstir læknar náð að nýta sér þessi
kjarasamningsbundnu réttindi á liðnu
ári. Eins og málin standa munu réttindi
þessi fyrnast um áramótin og óljóst hvert
fjármagnið rennur, sem annars hefði stað
ið straum af þessum ráðstefnukostnaði.
Að lokum væru þó bestu þakkirnar þær
ef loksins yrði samið við lækna svo við
þurfum ekki að takast á við fjórðu bylgju
faraldurs samningslaus.
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A
FAL
Berglind Bergmann
Indriði Einar Reynisson
FÍH
Salóme Ásta Arnardóttir
Jörundur Kristinsson
FSL
María I. Gunnbjörnsdóttir
Guðrún Dóra Bjarnadóttir
LR
Þórarinn Guðnason
Alma Gunnarsdóttir
Stjórn Læknafélags Íslands
sérnámslæknir,
formaður Félags almennra lækna
bergbergmann@gmail.com
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS - MAIN LOGO + 100 YEARS ANNIVERSARY LOGO
Heimsfaraldur, lausir samningar
og glatað læknaráð
Berglind BergmannÍ pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta
þeir eigin skoðanir en ekki félagsins.
Reynir Arngrímsson formaður
DoubleStar™
insúlín glargín 300 ein/mL
PENNINN SEM INNIHELDUR MEIRA
INSÚLÍNMAGN EN NOKKUR
ANNAR GRUNNINSÚLÍNPENNI1-4
EINU SINNI Á DAG FYRIR ALLA5
2/3 minna magn inndælingar en með Lantus6,7
Allt að 160 einingar í einni inndælingu5
Toujeo 300 einingar/ml stungulyf, lausn í áfylltum penna
(DoubleStar)
Heiti virkra efna
Glargíninsúlín.
Ábendingar
Meðferð við sykursýki (diabetes mellitus) hjá fullorðnum, unglingum og börnum frá 6 ára aldri.
Frábendingar
Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna.
Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast
í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is.
Markaðsleyfi lyfsins er háð sérstökum skilyrðum. Lyfinu fylgir fræðsluefni fyrir lækna og sjúklinga
sem sá sem ávísar lyfinu þarf að hafa kynnt sér og kynnt það sem við á fyrir sjúklingi ásamt því
að afhenda honum efni ætlað sjúklingum til varðveislu.
Markaðsleyfishafi
Sanofi-Aventis Deutschland GmbH
Fyrir nánari upplýsingar um lyfið og/eða pöntun á fræðsluefni skal hafa samband við umboðsaðila
á Íslandi sem er Vistor hf., sími: 535-7000.
Texti SmPC var síðast samþykktur
20.01.2020
Ávísunarheimild og afgreiðsluflokkar
R
Leyfilegt hámarksverð í smásölu
Toujeo áfylltir DoubleStar pennar 3 x 3 ml
Sjá verð á heimasíðu lyfjagreiðslunefndar www.lgn.is.
Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga
G
Sanofi · Vistor hf. Hörgatúni 2 · 210 Garðabæ · sími 535-7000 · sanofi@vistor.is
SA
IS
.T
JO
.2
0
.1
0
.0
0
0
2
Heimildir
1 Samantekt á eiginleikum Toujeo, kafli 2, www.serlyfjaskra.is.
2 Samantekt á eiginleikum Lantus, kafli 2, www.serlyfjaskra.is.
3 Samantekt á eiginleikum Levemir, kafli 2, www.serlyfjaskra.is.
4 Samantekt á eiginleikum Tresiba, kafli 2, www.serlyfjaskra.is.
5 Samantekt á eiginleikum Toujeo, kafli 4.2, www.serlyfjaskra.is.
6 Samantekt á eiginleikum Toujeo, kafli 5.1, www.serlyfjaskra.is.
7 Samantekt á eiginleikum Lantus, kafli 5.1, www.serlyfjaskra.is.