Læknablaðið - des. 2020, Blaðsíða 37
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 595
V I Ð T A L
af öðru,“ segir Helga. Tilfellið hafi ratað á
síður Læknablaðsins, orðið að vísindarann
sókn sem leiddi af sér frekari rannsóknir
og loks doktorsritgerð. Hún hafi í kjölfarið
skoðað hormónadrifinn háþrýsting.
„Þar með var ég komin inn í nýrna
hettuna sem leiðir mig áfram í kortisól
skortinn og rannsóknir á honum og en
líka offramleiðslu kortisóls og síðan að
heiladinglinum, sem er stjórnstöð nýrna
hettanna.“ Hún hafi sérhæft sig í þessum
málum á Sahlgrenska og haft áhuga á því
sem skaðaði heiladingulinn.
„Ef heiladingullinn bilar getum við gef
ið öll hormón sem vantar,“ segir hún. „Það
getur breytt lífi einstaklingsins.“ Höfuð
áverkarnir komu því sem afleiðing af
þessu starfi hennar. Hún rannsakaði með
samstarfsfólki sínu alla sem sem komu á
rúmu ári á Landspítala með höfuðáverka.
Það leiddi af sér tvær mastersritgerðir og
grein og önnur er á leiðinni. Þessi vinna
leiddi Hafrúnu Kristjánsdóttur sálfræðing
og Maríu Jónsdóttur taugasálfræðing
á fund Helgu og þær hófu saman stóra
vísinda rannsókn á höfuðáverkum í íþrótt
um.
„Ég trúi að sú rannsókn muni hafa
verulega þýðingu fyrir framtíðina,“ segir
Helga. „Það var ánægjulegt að umræða
um rannsókn okkar leiddi til þess að
íþróttafélagið Breiðablik hætti með skalla
æfingar barna undir 12 ára aldri. Sem
móðir á hliðarlínunni, hafandi átt þrjú
börn í fótbolta, er ég mjög sátt við það,“
segir hún.
Yfir 500 konur óskuðu eftir því að taka
þátt í rannsókninni en ekki 40 eins og þær
reiknuðu með í upphafi. Rannsóknin er
meðal annars styrkt af Rannís og hefur
vakið athygli hérlendis og erlendis. „Við
þrjár erum stoltar af því og ekki síst af
doktorsnemunum okkar,“ segir Helga.
„Svona gerast vísindin.“
Vísindin þurfa sitt pláss
Helga leggur áherslu á að læknar þurfi
tíma til að sinna vísindunum. „Pabbi segir
að vísindavinnan mín sé hobbí, helsta
áhugamálið mitt. Þannig á þetta náttúru
lega ekki að vera. Vísindamenn í læknis
fræði þurfa að geta sest með ferskt höfuð
klukkan 8 að morgni og stundað vísindi
rétt eins og þeir sinna sjúklingum.“ Eyrna
merkja þarf hluta af fjármagni til vísinda
starfa. „Við komumst ekki með tærnar þar
sem nágrannalöndin okkar hafa hælana.“
Læknar þurfi að hjálpa stjórnendum á
spítalanum að breyta vinnumenningunni
sem hér hafi skapast, þar sem áherslan sé
fyrst og fremst á klíníkina. Blaðamaður
spyr hvort ekki megi sækja þekkingu úr
vísindastarfi annarra hingað heim?
„Já og nei, Svíar segja að til þess að
halda uppi góðu heilbrigðiskerfi þurfi ⅓
lækna sem útskrifast að stunda vísindi.
Heilbrigðisþjónusta byggir á vísinda
Helga Ágústa stefnir að því að efla enn Læknablaðið sem
hún segir sameiningartákn lækna. Mynd/gag
„Pabbi segir að vísindavinnan mín sé
hobbí, helsta áhugamálið mitt. Þannig
á þetta náttúrulega ekki að vera.
Vísindamenn í læknisfræði þurfa að geta
sest með ferskt höfuð klukkan 8
að morgni og stundað vísindi rétt eins
og þeir sinna sjúklingum.“