Morgunblaðið - 15.05.2020, Side 20

Morgunblaðið - 15.05.2020, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2020 ✝ Ástrún Sig-urbjörnsdóttir fæddist 24. mars 1970 í Keflavík. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja 20. apríl 2020. Foreldrar henn- ar eru Sigurbjörn Björnsson, f. 15.6. 1945 og Þóra Þór- hallsdóttir, f. 5.9. 1949. Systkini Ástrúnar eru Sig- urjóna Sigurbjörnsdóttir, f. 4.8. 1966, eiginmaður hennar er Kristinn Karl Ólafs, f. 25.4. 1962, Björn Sigurbjörnsson, f. 7.9. 1976 og Þorgerður Sig- urbjörnsdóttir, f. 18.8. 1982, maki hennar er Valgeir Magn- ússon, f. 21.3. 1984. Sambýlismaður Ástrúnar er Bjarni Ragnarsson, f. 19.9. 1980. Foreldrar Bjarna: Ragn- ar Örn Pétursson, f. 8.5. 1954, d. 29.4. 2016 og Sigríður Sig- urðardóttir, f. 16.8. 1953. Börn Ástrúnar eru Arnar Már Kjart- ansson, f. 3.2. 1991, sambýlis- kona Erika Dorielle Sigurð- um. Hún lauk grunnskólaprófi frá Gagnfræðaskóla Keflavíkur árið 1986. Hún vann í Hrað- frystihúsi Keflavíkur um leið og hún hafði aldur til, fyrst sem sumarstarfsmaður en síðar í fullu starfi allt til ársins 1989 er hún hóf störf hjá föður sín- um sem hlaðmaður og launa- fulltrúi hjá Flugafgreiðslunni ehf. á Keflavíkurflugvelli og síðar hjá Icelandair (IGS) árið 1996. Ástrún var lengi vel eini kvenmaðurinn sem starfaði í hlaðdeildinni og var enginn eft- irbátur annarra starfsmanna. Hún starfaði síðar í Load Cont- rol IGS en endaði starfsferilinn sinn sem flokkstjóri í hlaðdeild hjá IGS. Það átti betur við hana að vinna úti með strákun- um. Hún kynntist Bjarna þegar hún vann hjá IGS og hófu þau að búa saman árið 2010. Hún hlúði að börnum Bjarna sem þau væru sín eigin. Útför Ástrúnar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 15. maí 2020, klukkan 13 að viðstödd- um nánustu ættingjum og vin- um. Athöfninni verður streymt á facebooksíðu Bjarna Ragn- arssonar og verður opin öllum á þeim tíma sem útförin fer fram. Slóð á streymið: https:// www.facebook.com/bjarnir1. Stytt slóð: https://n9.cl/r2ka. Slóðina má nálgast á www.mbl.is/andlat. ardóttir, f. 17.9. 1995 og Elvar Þór Magnússon, f. 18.9. 1996. Börn Bjarna eru Stefán Ari Bjarnason, f. 12.6. 2000, Adam Freyr Bjarnason, f. 22.5. 2001 og Birgitta Sól Bjarnadóttir, f. 8.2. 2005. Systkini Bjarna eru Guðrún Björg, f. 15.8. 1974, eiginmaður hennar er Elvar Sigurðsson, f. 14.12. 1972. Ragnar Már Ragnarsson, f. 30.12. 1976, eiginkona hans er Sigrún Helga Björgvins- dóttir, f. 11.10. 1984. Laufey, f. 19.9. 1980, maki hennar er Guðjón S. Ingvason, f. 5.2. 1971. Ástrún ólst upp í Grænás í Njarðvík en flutti á Háaleitið í Keflavík haustið 1979. Ástrún varmjög ung farin að passa börn og vinna, fyrst við að hjálpa til við heimilisstörf og að líta eftir yngri systkinum sínum ásamt börnum Sigurjónu en jafnframt að aðstoða for- eldra sína við að skera af net- Elsku ástin mín. Mikið er erfitt að setjast nið- ur og skrifa til þín þessi orð. Að hugsa til þess að þú sért farin er of erfitt. Ég man svo vel þeg- ar við hittumst fyrst í vinnunni okkar hjá Icelandair … það var auðvelt að taka eftir þér, þú varst svo áberandi glöð og bros- mild og hörkudugleg … gafst okkur strákunum í hlaðdeildinni ekkert eftir. Við urðum fljótt góðir vinir. Svo þróaðist það þannig með árunum sem liðu að við urðum ástfangin og fyrir það er ég endalaust þakklátur því við átt- um saman svo yndislega tíma. Öll ferðalögin, bæði hér heima og utanlands sem við fór- um í saman, svo margar fallegar minningar sem ég mun alltaf geyma í hjartanu mínu. Ég get aldrei þakkað þér nógu mikið fyrir alla ástina og umhyggjuna sem þú gafst mér og börnunum mínum, ástin mín. Þú varst alltaf svo jákvæð, lífsglöð, ævintýragjörn, sjálf- stæð og svo hlý og góð við alla. Ég hef aldrei kynnst jafn sterkri manneskju og þér, það sem þú barðist í gegnum þín veikindi var engu líkt, þú gerðir það svo hetjulega, ástin mín. Ég vildi óska að okkar tími saman hefði verið lengri, en ég verð ævinlega þakklátur fyrir þann tíma sem við áttum saman. Ég mun alltaf sakna þín, elska þig og þú munt alltaf eiga stað í hjarta mínu. Hvíldu í friði, ástin mín eina. Bjarni Ragnarsson. Þú sýndir mér hvað ást er. Hvernig ég gat verið ég sjálfur. Þú ert mín sterkasta kvenfyr- irmynd og sýndir fordæmi um hvernig annast skal fólkið sem maður elskar innilega. Þú kenndir mér að aldrei skal gef- ast upp á sjálfum sér og ástinni sem því fylgir þrátt fyrir erf- iðleika. Þú sýndir mér að kona eins og þú er með ofurkrafta. Hvernig ljúf sál ætlast til þess að blómstra í lífinu sama hversu erfitt það gat orðið. Stóðst við bakið á okkur bræðrum eins og klettur síðan ég man eftir mér. Fyrir þig, móðir, myndi ég gera allt því þú átt það að eilífu inni. Svo ein- læg, brosmild, gullfalleg og barngóð. Bráðskýr og greind er ein af ástæðum þess að ég ber endalausa virðingu fyrir þér og hvað þú stóðst fyrir í gegnum tíðina. Yndisleg vinkona mín, þú ert mér allt – lífið mitt er þér að þakka. Þú átt alltaf stað í hjarta mínu. Eins og sólin lýsir þú upp allt í kringum þig – fyrir það skulda ég þér allt. Sakna þín, ljósið mitt. Elska þig, mamma. Elvar Þór. Elsku ástkæra móðir mín, ég kveð þig með mikla sorg í hjarta, þú sem varst svo góð við allt og alla og tókst öllum opn- um örmum, varst elskuð af öll- um sem þú komst nálægt og það var ljós í kringum þig hvert sem þú fórst, þú áttir það svo ekki skilið að þurfa að berjast í allan þennan tíma við þennan sjúk- dóm en svona getur lífið verið skrítið, það er svo ósanngjarnt að gott fólk sé tekið af okkur svona snemma. En núna hefur þú fengið hvíldina sem þú átt skilið eftir alla þessa baráttu, þú ert ekkert annað en hetja alveg í gegn, þú sýndir aldrei á þér að það væri eitthvað að angra þig og barst þig alltaf svo vel og lést þennan sjúkdóm ekki stoppa þig í einu eða neinu. Hvíldu í friði, elsku mamma mín, ég mun heiðra minningu þína við barnið mitt þegar það fæðist. Þú varst einstök, ég elska þig og mun alltaf gera. Þinn sonur, Arnar Már. Í dag fer fram útför elsku- legrar dóttur okkar Ástrúnar Sigurbjörnsdóttur. Það eru þungbær skref að bera dóttur sína til grafar. Ástrún hafði bar- ist við erfiðan sjúkdóm í um sex ár, og í raun unnið margar orr- ustur, en að lokum tapaði hún stríðinu. Ástrún kvartaði aldrei og það var ekki hægt að sjá á henni að hún væri veik, fyrr en síðasta mánuðinn. Ástrún var elskuð af öllum sem þekktu hana, andlit hennar geislaði alla tíð. Elsku Ástrún okkar, við eigum eftir að sakna þín mikið, en við eigum eftir dásamlegar minningar, svo ekki sé talað um drengina þína tvo, þá Arnar og Elvar, svo og ömmubarnið sem mun líta dags- ins ljós innan tíðar. Við trúum því að nú sé Ástrún komin í rósagarðinn og líti þaðan til með okkur. Elsku Bjarni, Arnar, Elvar og Erika, þið eigið alla okkar samúð. Pabbi og mamma. Elsku Ástrún, stóra systir mín, er látin eftir hetjulega bar- áttu við krabbamein. Hún sýndi ótrúlegan styrk og æðruleysi í þessu verkefni sem henni var falið, alltaf svo jákvæð, brosmild og dugleg. Aldrei kom til greina hjá henni að gefast upp eða dvelja í sjálfsvorkunn. Í dag er komið að sárri kveðjustund. Ástrún var mér alltaf góð þegar ég var barn, hún hafði mikla þolinmæði fyrir mér því ég átti það til að skipta mér af öllu hjá henni ef ég hafði tæki- færi til, einnig leyfði hún mér stundum að vera með henni þegar hún var að hitta vini, kannski þurfti hún bara að passa mig og neyddist til að hafa mig með en mín minning er að ég var alltaf velkomin með henni og fann aldrei fyrir að hún nennti mér ekki. Það eru 12 ár á milli okkar og man ég tak- markað eftir því þegar hún bjó heima á Háaleitinu nema þegar hún flutti aftur heim í smástund eftir að hún eignaðist Arnar Má sinn. Alltaf leyfði hún mér að vera hjá sér að dúllast í litla frænda mínum og skipta mér af hlutunum. Í seinni tíð urðum við nánar vinkonur og gerðum margt sam- an, bara við tvær og svo með fjölskyldum okkar. Mér er minnisstætt þegar við fórum saman á ættarmótið á Súðavík 2003, við áttum flug klukkan 18 en þegar við komum til Reykja- víkur var vélin full, við sátum á flugvellinum í hálftíma með krakkana okkar að ákveða hvort við ættum að reyna daginn eftir að komast með eða bara sleppa þessu, en það var ekki í boði hjá Ástrúnu. Hún sagði við mig: „Þorgerður, við keyrum þetta bara, það er ekkert mál, þetta eru svona 6 klukkutímar.“ Það fór pínu hrollur um mig að fara að sitja í bíl með þreytta krakka svona lengi en eins og alltaf þá gerði hún þetta að skemmtilegri ferð, tónlistin í botn og sungum með. Það var allt svo lítið mál hjá henni. Við fórum margar ferðir erlendis og héldum nokk- ur jól og áramót saman. Mikið er ég þakklát fyrir þessar dýr- mætu minningar sem ég mun alltaf geta yljað mér við. Þinn tími er kominn, elsku systir mín, það er svo sárt að þurfa að kveðja þig og sökn- uðurinn er mikill, ljósið í myrkr- inu eru strákarnir þínir, Arnar og Elvar, og ömmubarnið sem von er á. Ég trúi því að þér líði betur á nýjum stað og fylgist með okkur í fjarlægð. Elsku Bjarni og börn, Arnar Már, Erika, Elvar Þór, mamma, pabbi og aðrir ástvinir, megi minningin um elsku Ástrúnu vera ljós sem lifir í hjörtum okkar. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Ég elska þig út í eitt, elsku hjartað mitt. Þín systir, Þorgerður. Elsku frænka, elsku hjarta, fallegust í gegn. Fyrsti kaffibollinn bragðast klárlega ekki eins án þín, en þeir hafa verið ófáir í gegnum árin. Morgunspjallið var alltaf best þó ég þyrfti að bíða aðeins þar sem þú svafst stundum lengur en ég. Minningabankinn okkar var hálffullur þar sem við höfum verið duglegar að fylla á hann, en við áttum samt svo mikið eftir. Ferðirnar erlendis að elta smá sól og kannski fá sér eins og einn öllara. Ekki þurfti mikið að plana það hjá okkur heldur stukkum við bara af stað með bros á vör og sól í hjarta. Fyrsta ferðin okkar kemur upp í hugann þar sem ég var nú ekki á leiðinni neitt þegar þú kíktir í heimsókn. Áður en kvöldið var liðið var búið að kaupa miða og ekki nema 4 tímar í brottför. Lífið er núna sagðir þú alltaf og er það svo rétt, mín kæra. Seturnar á pallinum með stelpunum, sama hvaða tíma dags því alltaf var það okkar tími. Minningarnar eru svo margar og munum við hafa þær í hjörtum okkar um ókomna tíð, því þú munt alltaf vera með okkur. Strákarnir þínir, elsku frænka. Það var sama hvað spjallað var um, alltaf barst tal- ið að strákunum. Missir þeirra er svo mikill og munum við gera okkar besta til að halda utan um þá. Elsku Bjarni, Arnar Már, Elvar Þór, Sigurbjörn, Þóra, systkini, Melkorka, vinir og fjöl- skyldumeðlimir. Sporin verða þung en minningin þín lifir í hjörtum okkar allra. Hvíldu í friði, elsku vinkona, og við sjáumst seinna. Ég elska þig. Sigurbjörg Sigurðardóttir. Elsku fallegi engill, þín verð- ur sárt saknað og minning þín mun alltaf eiga stað í hjarta mínu. Þú ert fyrirmynd mín því þú gafst aldrei upp sama hversu sársaukafull og erfið þessi veiki var. Á mínum erfiðu dögum mun ég hugsa til þín og reyna að finna það jákvæða í öllu, al- veg eins og þú gerðir öll þín erf- iðu ár. Ég mun aldrei gleyma þínu gullfallega brosi og skemmtilega og fyndna per- sónuleika. Einnig er ég svo þakklát fyrir sumarbústaðaferð- irnar og útilegurnar sem við fjölskyldan fórum í saman og svo auðvitað stendur upp úr Flórídaferðin sem var yndisleg. Elsku Ástrún mín, hvíldu í friði, elsku engill, þú átt það inni eftir þessa erfiðu baráttu. Sjáumst síðar þegar minn tími hér er bú- inn, elska þig, elsku fallega Ást- rún mín. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Þín frænka, Laufey Lind. Elsku Ástrún, þegar ég kem inn í fjölskylduna fyrir um 16 árum sá ég strax hverskyns demantur þú varst. Alltaf þegar maður hitti þig tókstu á móti mér með opinn faðminn og þitt einstaka bros, alltaf tilbúin að hjálpa mér og systur þinni alveg sama hvað það var. Ég er óend- anlega þakklátur fyrir allar samverustundirnar okkar og ekki síst allar utanlandsferðirn- ar okkar saman, Glasgow verður ekki eins án þín. Þá er Tenerife- ferðin sem við fórum í saman ég, Þorgerður, þú og Bjarni mjög minnisstæð, gleymi seint hlátrinum þegar ég og Bjarni mættum á rafskutlunum og tók- um ykkur systur á rúntinn um strendur Tenerife, frábær stund! Takk fyrir allt, elsku Ást- rún. Hetja varst til hinstu stundar heilbrigð lundin aldrei brást. Vinamörg því við þig funda vildu allir, glöggt það sást. Minningarnar margar, góðar mikils nutum, bjarminn skín. Bænir okkar heitar hljóðar með hjartans þökk við minnumst þín. (María Helgadóttir.) Þinn mágur, Valgeir. Ég kynntist Ástrúnu fyrir 19 árum þegar við sátum námskeið í hleðslueftirliti (load control) hjá Icelandair vorið 2001, þá báðar búnar að vinna í öðrum deildum innan félagsins, ég í farþegaafgreiðslu og hún í hlað- deild. Ég fann strax að hún var einstök, enda glæsileg og hafði mikla útgeislun. Nærvera henn- ar og viðmót gagnvart öðrum var alveg einstakt. Það var al- veg sama hver átti í hlut, hún lét öllum líða vel. Það var ein- mitt þetta sem laðaði alla að henni, hún var alltaf hress og það var alltaf gaman að vera í kringum hana. Ég var svo heppin að koma inn í hennar vinkonuhóp, sem var alveg einstakur, þó svo að ég væri nokkru eldri, en við átt- um eftir að bralla margt saman og það voru þessar gæðastundir okkar sem voru alltaf svo ljúfar. En lífið getur líka verið erfitt og vil ég trúa því að við höfum hjálpað hvor annarri í gegnum erfiðu tímana. Ástrún átti erfitt með að tjá sig þegar kom að erf- iðleikum, hún var nefnilega þessi sterka og þrjóska persóna sem lét ekkert buga sig og hélt áfram með bros á vör, og þannig var einmitt viðhorf hennar í gegnum veikindin. Hún talaði mikið um strákana sína, Arnar og Elvar, og var ótrúlega stolt af þeim, enda mjög líkir móður sinni, með þetta ljúfa og glaða viðmót, og var eftirsjá hennar alla tíð hvað hún hefði verið mikið frá þeim vegna vinnu þegar þeir voru yngri. En hún talaði einnig um hvað hún var heppin þegar Bjarni kom inn í líf hennar. Bjarni var hennar stoð og stytta í gegnum allt þeirra samband en hún var líka alveg einstök stjúp- manna barna hans. Lífið er stundum óréttlátt og núna kveð ég góða vinkonu. Við Ástrún áttum svo mikið eftir að gera; allar ferðirnar sem við vorum búnar að tala um að fara í saman með vinkonunum og matarklúbbnum. Takk elsku vinkona fyrir að hafa komið inn í líf mitt, en minningin um þig mun lifa áfram. Elsku Bjarni, Arnar, Elvar, Sigurbjörn og Þóra, systkini, stjúpbörn og fjölskylda, ég votta ykkur mína dýpstu samúð og megi guðsenglar styrkja ykkur á þessum erfiða tíma. Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. (Úr Hávamálum) Þín vinkona, Sigrún Björgvinsdóttir (Sissa). Ástrún Sigurbjörnsdóttir  Fleiri minningargreinar um Ástrúnu Sigurbjörns- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og systir, SIGRÚN INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR sendiráðsritari, lést föstudaginn 8 maí. Kristján Þór Sigurðsson Hallgrímur F. Hallgrímsson Maria Moth Hallgrímsson Rós Kristjánsdóttir Þorsteinn B. Friðriksson Kristján Máni Þorsteinsson Elínborg Jónsdóttir Ástkær systir okkar, KARÓLÍNA SVEINSDÓTTIR, Mørkhøjvej 77, Kaupmannahöfn, lést 7. apríl. Bálför hefur farið fram og ösku hennar komið fyrir í Sundby-kirkjugarðinum, Kaupmannahöfn. Bjarni Gunnar Sveinsson Snorri Sveinsson Ásgeir Sveinsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.