Morgunblaðið - 15.05.2020, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2020
60 ára Edda er Skaga-
stelpa, fædd og uppal-
in á Akranesi en býr í
Kópavogi. Hún er heil-
brigðisgagnafræðingur
á Landspítalanum og
hefur tekið ýmis nám-
skeið sem tilheyra
starfinu.
Maki: Angantýr Valur Jónasson, f. 1955,
bankamaður í Landsbankanum.
Börn: Óttar, f. 1982, Ágúst, f. 15.5. 1985,
Elín Edda, f. 1987, Ingunn Ýr, f. 1993, og
Víkingur, f. 1997. Barnabörnin eru orðin
níu.
Foreldrar: Ársæll Jónsson, f. 1928, d.
1988, húsasmíðameistari, og Margrét
Ágústsdóttir, f. 1928, d. 1994, matráður í
Landsbankanum á Akranesi. Þau voru
búsett þar.
Edda Hafdís
Ársælsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur haldið spennunni inni og
verður að hleypa henni út með einhverjum
hætti. Komdu eins fram við alla sem þú
umgengst.
20. apríl - 20. maí
Naut Leggðu eyrað við hjálparbeiðnum
annarra og leggðu þitt af mörkum sem þú
framast getur. Þú færð þakkir frá fólki sem
þú áttir síst von á.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það gengur ekki að skella skuld-
inni á kerfið því þú ert einn af þegnunum.
Sýndu þroska og leggðu þitt fram til að
leysa málin.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Forðastu þá sem eru stöðugt að
etja mönnum saman til þess að skapa
samkeppni. Börnin þín koma þér skemmti-
leg á óvart og kvöldið verður skemmtilegt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Hjartað slær hraðar þegar þú hugsar
um hana/hann. Taktu næsta skref, ekki
bíða eftir að þú rekist á viðkomandi. Hafðu
samband.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú kemst þú ekki lengur hjá því að
koma skikki á hlutina. Hlustaðu með lík-
ama og sál, svo þú getir skilið og læknað
gömul sár.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ekki pína sjálfa/n þig til þess að gera
eitthvað sem þér hugnast ekki. Þér verður
boðið starf sem þú hefur alltaf þráð.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Sígandi lukka er best og það
hefur sannast á starfsferli þínum. Þú færð
undarlega tilfinningu gagnvart manneskju
sem þú kynnist. Vertu á varðbergi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þér hættir til að vera með leik-
araskap þegar persónuleg málefni þín ber
á góma. Ekki missa móðinn þó útlitið sé
svart, það birtir alltaf til aftur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ættir að nota daginn til að
velta langtímamarkmiðum þínum fyrir þér.
Fólk tekur eftir hversu opin og glöð per-
sóna þú ert.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nú skiptir öllu máli að bregðast
rétt við aðstæðum. Vertu viðbúin/n því að
þurfa að rjúka í verkefni sem kemur óvænt
upp. Fólk kann að meta hreinskilni þína.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Orð þín eru áhrifaríkari en þú gerir
þér grein fyrir. Geymdu tossalistann undir
koddanum. Ekki efast um hæfileika þína.
sumur, þar sem ég var allt í senn;
framkvæmdastjóri veiðihússins og
leiðsögumaður.“
Arkitektúrinn
Þegar Magnús kom heim frá fram-
haldsnámi í Sviss fékk hann vinnu hjá
Byggingarstofnun landbúnaðarins.
Þar starfaði hann í tvö ár en árið 1980
þarf ekki að fjölyrða um með hvaða liði
hann heldur í enska boltanum. Magn-
ús var síðan eitt ár við vinnu í Düssel-
dorf í Þýskalandi og svo eitt ár í ETH
Zürich í Sviss veturinn 1977-1978.
„Um það leyti sem arkitektanámið
hófst fékk ég sumarvinnu hér á landi
sem leiðsögumaður í laxveiði í Laxá í
Leirársveit. Entist sú vinna alveg í tíu
M
agnús Hákon Ólafsson
er fæddur 15. maí
1950 í Reykjavík.
„Ég fæddist á Bar-
ónsstígnum, í rúminu
hjá ömmu, en var ekki orðinn sex mán-
aða gamall þegar fjölskyldan flutti í
nýtt hús á Laugateignum í Laugarnes-
hverfinu og þar ólst ég upp.“
Að loknu námi í Laugarnesskóla fór
Magnús í Gaggó Vest og síðan í
Menntaskólann í Reykjavík. „Ég lék
með Herranótt í leikritinu um Bubba
kóng og sáldraði snjónum yfir Davíð
Oddsson á sviðinu. Mér er líka minn-
isstætt að hafa tekið þátt í framkvæmd
á hinu fyrsta fiðluballi seinni tíma á Sal
í MR og einnig, ásamt Pétri Maack, að
setja upp fyrstu sjoppuna innan
veggja MR. Þarna var framkvæmda-
stjóragenið eitthvað farið að segja til
sín. Við Pétur sáum um reksturinn á
sjoppunni í tvo vetur, en hún nefndist
Verslunarbústaðurinn Guðjón. Það var
Þórarinn Eldjárn sem kom með þetta
ágæta nafn á sjoppuna en Guðjóns-
nafnið er tengt við Guðjón Samúles-
son, arkitekt og húsameistara rík-
isins.“ Magnús varð stúdent 1970 og á
því 50 ára stúdentsafmæli.
Á sínum yngri árum æfði Magnús
glímu hjá Ungmennafélaginu Vík-
verja. Komst hann í „landsliðið“ í
glímu og fór m.a. í sýningarferð til
Kanada árið 1967, þá 17 ára gamall. Á
glímuárunum var Magnús einnig í
Lúðrasveit verkalýðsins. „Ég spilaði
m.a. við hliðina á Jóni Múla Árnasyni
en Sigursveinn D. Kristinsson kenndi
mér á trompet.“
Á menntaskólaárunum var Magnús
á kvöldnámskeiðum í Myndlista- og
handíðaskólanum hjá Þorsteini Gunn-
arssyni arkitekt og fleirum. „Þar byrj-
aði löngunin í að læra um form, rými
og hreyfingu. Í sjötta bekk í mennta-
skóla fórum við Gísli Kristinsson arki-
tekt að læra finnsku og ætluðum að
fara síðan til Finnlands.“ Síðan kom í
ljós að Háskólinn í Helsinki myndi að-
eins taka við öðrum hvort sem báðir
myndu standast inntökupróf. Þá hætti
Magnús við og fór að vinna hjá Gesti
Ólafssyni arkitekt. Síðan tók við fimm
ára háskólanám í Liverpool, Bítlaborg-
inni. Þá átti samnefnt knattspyrnulið
sín fyrstu gullaldarár og þess vegna
var auglýst starf arkitekts á Verk-
fræði- og teiknistofunni á Akranesi.
Magnús sótti um og fékk starfið. Hann
flutti því á Akranes og hefur búið þar
síðan.
„Ég þraukaði á teiknistofunni í
nokkur ár en ákvað árið 1985 að stofna
mína eigin stofu. Það gekk brösuglega
fyrstu þrjú til fjögur árin en síðan fóru
hjólin að snúast. Ég gat ráðið til mín
starfsfólk eftir verkefnastöðu hverju
sinni en að mestu leyti hefur rekstur
arkitektastofunnar byggst á mér sjálf-
um,“ en MarksSTOFA ehf. er nú 35
ára.
Í kringum 1990 fóru stóru verkefnin
að skila sér og frá þeim tíma hefur
Magnús komið að hönnun fjölmargra
bygginga víða um land. Samanlagt eru
þetta um mörg þúsund fermetrar und-
ir þaki en meðal mannvirkja má nefna
Fjölbrautaskóla Vesturlands, grunn-
og leikskóla á Akranesi, heilsugæslu-
stöð á Akranesi, Jaðarsbakkalaug,
nemendaíbúðir á Bifröst, hesthús og
reiðskemmu á Hólum í Hjaltadal,
skátaheimili í Reykjavík, Þjóðskjala-
safnið við Laugaveg, veitumannvirki í
Magnús H. Ólafsson arkitekt – 70 ára
Ljósmynd/Carsten Kristinsson
Matarveisla í London Magnús ásamt Sólveigu systur sinni og hennar fjölskyldu og enskri vinafjölskyldu árið 2008.
Þúsundir fermetra undir þaki
Oddfellowbræður Bragi Magnússon og Magnús H. Ólafsson.
50 ára Theodór er
Skagamaður, fæddur
og uppalinn á Akra-
nesi og býr þar. Hann
er með meistaragráðu
í veðurfræði frá Há-
skólanum í Björgvin
og er verkefnastjóri á
Veðurstofunni og veðurfræðingur hjá
Rúv.
Maki: Kristrún Dögg Marteinsdóttir, f.
1973, deildarstjóri í Grundarskóla.
Börn: Ester Lind, f. 1996, tvíburarnir
Viktor og Marteinn, f. 2001, og Birkir
Hrafn, f. 2010.
Foreldrar: Hervar Gunnarsson, f. 1950,
fv. formaður Verkalýðsfélagsins á Akra-
nesi, búsettur í Reykjavík, og Ester Lind
Theodórsdóttir, f. 1950, sjúkraliði, búsett
á Akranesi.
Theodór Freyr
Hervarsson
Fjarþjónusta
fyrir betri heyrn
ReSound Smart3D
Afgreiðslutími 9:00-16:30 • Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Við bendum þeim á sem komast ekki í heyrnarþjónustu til okkar
að nýta sér forritið ReSound Smart3D í snjalltækjum
og fá þar heyrnartækin sín fínstillt og uppfærð.
Með fjarþjónustunni er snjalltæki notað til að senda
heyrnarfræðingum beiðni um að breyta stillingu ReSound Linx 3D
og Quattro heyrnartækjanna.
Við svörum eins fljótt og auðið er.
Nánari upplýsingar er á finna á www.heyrn.is eða í síma 534 9600.
Þessi duglegu börn, Kolbrún Júlía
Fossdal og Guðmundur Már Þórðar-
son, héldu tombólu á Akureyri í vet-
ur, fyrir samkomubann, og gáfu
Rauða krossinum við Eyjafjörð af-
raksturinn, 2.891 krónu. Rauði
krossinn þakkar þeim kærlega fyrir.
Hlutavelta
Til hamingju með daginn