Morgunblaðið - 15.05.2020, Síða 25

Morgunblaðið - 15.05.2020, Síða 25
Kópavogi, Reykjavík og Borgarfirði og þannig mætti lengi telja. Þá var Magnús einn fjögurra aðalhönnuða Hvalfjarðarganga og hefur verið aðal- hönnuður Norðuráls á Grundartanga frá upphafi, eða frá 1997. Norðurál er langstærsta hönnunarverkefni sem Magnús hefur staðið að. „Þegar ég var í námi þá sérhæfði ég mig í iðnaðarbyggingum, meðal ann- ars í landbúnaði. Eitt stykki álver er í raun ekkert annað en stórt og gott fjós. Kýrnar eru á básunum, kerin sjálf, og það þarf að hlúa að þeim. Kerin fá súrál og kýrnar fá hey. Fer- illinn er í sjálfu sér keimlíkur og bæði fyrirbærin skila frá sér sinni afurð.“ Magnús hefur hannað og þróað byggingarkerfi úr timbri sem kallast Rammahús. Í 10 ár hefur mikið sam- starf verið við BYKO þess vegna en kerfið er að mestu leyti unnið í verk- smiðju í eigu BYKO í Lettlandi. „Byggingar sem ég hef komið að munu standa í áratugi eða árhundr- uð.“ Magnús hefur einnig gaman af annars konar sköpun. Eldamennska er eitt helsta áhugamálið hans og hef- ur hann tekið að sér fjölmennar matarveislur, ekki aðeins fyrir Odd- fellowsystkini, þar sem hann hefur verið virkur frá 1993, heldur marga aðra hópa. „Það er mikil samsvörun á milli arkitektúrs og matargerðar. Byggingar eiga langan líftíma en í matargerð eru búin til listaverk sem eru etin á korteri.“ Fjölskylda Systkini Magnúsar: Gunnar Stein- grímur, f. 31.5. 1945, Elín Jóna, f. 11.9. 1946, d. 28.11. 2014, Þórdís Hrefna, f. 28.5. 1948, Ragnhildur, f. 6.1. 1955, d. 15.6. 2013, Örn, f. 21.3. 1958, og Sól- veig, f. 16.7. 1964. Foreldrar Magnúsar voru hjónin Ólafur Guðmundsson, f. 27.3. 1923, d. 6.6. 1981, birgðavörður hjá Strætis- vögnum Reykjavíkur, og Björg Magnea Magnúsdóttir, f. 18.12. 1921, d. 10.7. 1980, húsfreyja í Reykjavík. Magnús Hákon Ólafsson Guðrún Einardóttir húsfreyja í Stóra-Nýjabæ Steingrímur Steingrímsson bóndi í Stóra-Nýjabæ í Krísuvík Guðrún Hansína Steingrímsdóttir húsfreyja í Nýlendu Magnús Bjarni Hákonarson útvegsbóndi í Nýlendu við Hvalsnes Björg Magnea Magnúsdóttir húsfreyja í Reykjavík Guðný Einardóttir húsfreyja í Nýlendu Hákon Tómasson útvegsbóndi í Nýlendu Guðríður Guðmundsdóttir húsfreyja á Þrándarstöðum Jón Vigfúson bóndi á Þrándarstöðum í Kjós Jóna Ólafsdóttir saumakona og húsfreyja í Reykjavík Guðmundur Jónsson sjómaður og verkamaður í Reykjavík Helga Bjarnadóttir húsfreyja á Vindási Ólafur Einarsson bóndi á Vindási í Kjós Úr frændgarði Magnúsar H. Ólafssonar Ólafur Guðmundsson birgðavörður hjá Strætó DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2020 Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 hafðu það notalegt vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÁTTU BRAUÐRIST SEM RISTAR 24 SNEIÐAR?” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera með þér sama hvað peningum líður. OFURSTI, ÞARNA KOMA STÖKK- BREYTTU RISAHVOLPARNIR! ÞETTA ER SLATTI AF DAGBLÖÐUM BREIÐIÐ YFIR ALLT! VIÐ VERÐUM AÐ VERJA BORGINA! EN HVERN- IG? VITRINGUR! SVO ÞÚ ERT KOMINN NIÐUR AF FJALLINU, BÚINN AÐ RAKA AF ÞÉR SKEGGIÐ OG KOMINN Í ÖNNUR FÖT! ÞÚ LÍTUR VEL ÚT!! HRÓLFUR! HVERNIG ÞEKKTIR ÞÚ MIG? „ÞEGAR ÞIÐ DEILIÐ LÍFSREYNSLUSÖGUM YKKAR MEÐ HÓPNUM SJÁ FLEIRI AÐ ÞEIR ERU EKKI ÞEIR EINU SEM EKKI HAFA EFNI Á EINKAMEÐFERÐ.” HÓP- MEÐFERÐ Pétur Stefánsson skrifar á Leir ámiðvikudag, - „að gefnu til- efni“: Kvíðinn hann er bölvað böl sem brýtur mann og pínir. Þessi svarta sálarkvöl sjúka hugsun brýnir. Kvíðinn er magnaður melur, sem mörgum hér veldur pín. Huga manns kúgar og kvelur, og kreistir uns rökhugsun dvín. Og bætir síðan við: „Þetta er nokkuð sem enginn ræður við og allir verða fyrir einhvern tíma á ævinni. Hann getur verið þrálátur, en með hjálp góðra lækna og lyfja, vina og vandamanna má halda hon- um niðri með nokkrum árangri.“ Atli Játvarðarson skráir á Boðn- armjöð: „Ráðin koma að sunnan og svona virka búvörusamningarnir í stuttu máli“: Plantað trjám í mó og mel af mörgum vöskum höndum. Stórum bætt við stekk og sel hvar stoltir réðu löndum. Svo fór allt á verri veg við það reiddust goðin. Staðarprýðin stórkostleg stýfð og niður troðin. Bót á láði lögð í salt lauf af trjánum bitið. Bölvar landið blautt og kalt, bóndinn missir vitið. Sjaldan lífið laust við synd landið allt að grána. Blómin étur bústin kind á bakkanum við ána. Rétt er að rifja upp „Barkarólu“ eftir Hrólf Sveinsson: Síra Sigmundur poki sigldi til hafs í roki; það lá við grand er hann lenti í strand í skafli upp undir Oki. Síra Jón Oddsson Hjaltalín (1749- 1835) í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd orti og kallaði „Valdafíkn“: Allir þeir sem upp í völdin klifra minnist þess að hefð og hrós hverfult er sem norðurljós. Niður fellur flest ágæti jarðar, ofur rýrt á efstu stund eins og fölnað lauf á grund. Um ágirndina kvað síra Jón: Ýmsir glápa á ábatann, ærna girnast dali; niður hrapar hæverskan, hungruð gapir fépyngjan. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Kvíðinn og búvörusamningarnir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.