Morgunblaðið - 15.05.2020, Síða 27

Morgunblaðið - 15.05.2020, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2020  Miklar sviptingar urðu í Formúlu 1 í gær því Daniel Ricciardo mun ganga í raðir McLaren fyrir næstu leiktíð frá Renault, en hann kom til franska liðs- ins frá Red Bull fyrir síðasta keppn- istímabil. Ástralinn mun taka við af Carlos Sainz sem hefur verið stað- festur sem arftaki Fernandos Alonsos hjá Ferrari. Sainz hefur verið hjá McLaren síðan á síðasta ári.  Þýska deildakeppnin hefur staðfest að heimilaðar verði fimm skiptingar í stað þriggja hjá hverju liði í leik í þeim níu umferðum sem eftir er að spila í tveimur efstu deildum karlafótboltans þar í landi. Aðeins má þó skipta þrisv- ar á meðan leikur er í gangi. FIFA hefur heimilað aðildarþjóðum að beita þess- ari reglu til bráðabirgða í þeim til- vikum þar sem eftir er að ljúka tíma- bilinu 2019-20. Keppni í Þýskalandi hefst á ný á morgun eftir tveggja mán- aða hlé vegna kórónuveirunnar.  Gelson Fernandes, landsliðsmaður Sviss í knattspyrnu um árabil, til- kynnti í gær að hann myndi leggja skóna á hilluna að tímabilinu loknu í Þýskalandi en þar leikur hann með Eintracht Frankfurt. Fernandes hefur leikið um 400 leiki í efstu deildum Þýskalands, Frakklands, Portúgals, Ítalíu, Englands og Sviss en hann lék með ensku liðunum Manchester City og Leicester á sínum tíma.  Heiko Herrlich, knattspyrnustjóri Alfreðs Finnbogasonar hjá Augsburg, verður ekki á hliðarlínunni er liðið mætir Wolfsburg á morgun í fyrstu umferð þýsku 1. deildarinnar í tvo mánuði. Herrlich braut strangar ör- yggisreglur félaga í þýska fótbolt- anum. Allir leikmenn og þjálfarar verða að vera í sóttkví á hóteli fyrir leiki, en Herrlich fór út í búð og keypti sér tannkrem og handáburð. For- ráðamenn deildarinnar fréttu af atvik- inu og hafa meinað Herrlich að vera á hliðarlínunni á laugardag. Herrlich fær væntanlega að stýra Augsburg er liðið mætir Schalke 24. maí næstkomandi.  Sænski handknattleiksmaðurinn Kim Ekdahl du Rietz hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna í annað sinn á ferlinum. Ekdahl hefur ákveðið að ljúka háskólanámi í Hong Kong sem hann hóf fyrir þremur árum. Leikmað- urinn hefur leikið með Lugi, Nantes, Rhein-Neckar Löwen og PSG á ferl- inum. Hann varð tvívegis Þýskalands- meistari með Löwen og þá vann hann til silfurverðlauna með Svíþjóð á Ól- ympíuleikunum 2012 í London.  Knattspyrnufélögin Juventus og Chelsea gætu skipt á leikmönnum í sumar. Maurizio Sarri, knatt- spyrnustjóri Juventus, sem stýrði Chelsea tímabilið 2018-19, er sagður hafa mikinn áhuga á að vera með ítalska miðjumanninn Jorginho í sínu liði á ný en þeir komu saman til Chelsea frá Napoli sumarið 2018. Sarri er sagður tilbúinn til að láta bosn- íska miðju- manninn Miralem Pjanic fara til Chelsea í skiptum fyrir Jorg- inho. Eitt ogannað KÖRFUBOLTI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Körfuknattleikskonan Danielle Rod- riguez hefur mögulega spilað sinn síðasta leik á ferlinum en hún hefur leikið hér á landi frá árinu 2016 þeg- ar hún gekk til liðs við Stjörnuna í Garðabæ og lék þar í þrjú ár. Rodriguez, sem er 26 ára gömul, gekk til liðs við KR síðasta sumar en hún hefur verið einn besti leik- maður Íslandsmótsins undanfarin ár. Hún skoraði 20 stig að meðaltali í vetur en KR fór alla leið í úrslit bik- arkeppninnar þar sem liðið tapaði gegn Skallagrími, ásamt því að vera í öðru sæti úrvalsdeildarinnar þegar tímabilið var blásið af vegna kór- ónuveirunnar. „Ég tók þá ákvörðun á dögunum að ég ætla mér ekki að spila á næstu leiktíð,“ sagði Rodriguez í samtali við Morgunblaðið. „Ég ætla að ein- beita mér að þjálfun því það er nokkuð sem ég hef mikinn áhuga á að leggja fyrir mig. Planið var að fara til Bandaríkj- anna og þjálfa í háskólaboltanum þar en vegna kórónuveirufaraldurs- ins datt það hálfpartinn upp fyrir. Ég ákvað þess vegna að vera áfram á Íslandi og þjálfa af fullum krafti, í það minnsta fram að áramótum, og svo var planið að taka stöðuna aftur í Bandaríkjunum eftir það.“ Þurfti á breytingu að halda Rodriguez tók að sér þjálfun yngri flokka hjá Stjörnunni í vetur og þá hefur hún verið aðstoðarþjálf- ari íslenska U18 ára stúlknalands- liðsins frá árinu 2018. „Mér fannst ég þurfa á smá breytingu að halda og ég hef vitað það ansi lengi að ég vil þjálfa á ein- hverjum tímapunkti á mínum ferli. Þú getur ekki spilað að eilífu, sér- staklega ekki í kvennakörfunni, þar sem ferillinn er mun styttri en í karlakörfunni. Ég hef vaxið jafnt og þétt inn í þjálfarastarfið og ég hef fundið að ástríða mín fyrir því að spila körfubolta hefur aðeins færst yfir í það að þjálfa körfubolta. Mér finnst ég hafa notið mikilla forréttinda sem leikmaður og ég hef fengið frábær tækifæri í gegnum körfuboltann. Sem leikmaður þá snúast hlutirnir mikið um mann sjálfan og þú ert alltaf að reyna að bæta þig og gera þinn leik betri. Sem þjálfari ertu að gefa miklu meira af þér, þú ert að hjálpa öðrum að ná sínum markmiðum og ég vil einbeita mér meira að því.“ Ekkert ritað í stein Rodriguez vonast til þess að skrifa undir áframhaldandi samning við Stjörnuna á næstu dögum en hún myndi þá koma að þjálfun bæði karla- og kvennaliðsins hjá félaginu. „Ég hef átt í viðræðum við nokk- ur lið í efri deildum körfuboltans en ég er mjög ánægð hjá Stjörnunni. Eins og staðan er núna er ég ennþá að kanna mína möguleika en ég á samt von á því að vera áfram í Garðabænum þótt það sé ekkert rit- að í stein með það. Í fullkomnum heimi væri frábært að vera aðstoðarþjálfari hjá Mar- gréti Sturlaugsdóttur í Garða- bænum en það ríkir ákveðin óvissa um það líka hvort liðið verður með í 1. deildinni á næstu leiktíð. Það væri líka gaman að fá að koma eitthvað að þjálfun karlaliðs- ins og hjálpa Arnari en það er of snemmt að segja hvað mun gerast. Það hefur ekki verið skrifað undir neina pappíra en þetta hefur komið til tals og vonandi verður þetta að veruleika.“ Hugurinn leitar í þjálfun Rodriguez, sem er fædd í Banda- ríkjunum, hefur sótt um íslenskan ríkisborgararétt og vonast hún til þess að það gangi í gegn undir lok ársins 2020. „Ef ég skrifa undir samning í Garðabænum sem dæmi þá verður það samningur sem mun gilda út leiktíðina. Ef ég ákveð að spila á nýjan leik þá yrði það í fyrsta lagi eftir þetta tímabil. Ég er á mínu fimmta ári á Íslandi og ég vonast til þess að fá íslenskan ríkisborg- ararétt í lok næsta árs. Ef það geng- ur í gegn opnar það á mun fleiri möguleika fyrir mig hér á landi og ég gæti þá spilað hér sem Íslend- ingur. Ef ég hugsa hins vegar eitt ár fram í tímann, eins og staðan er í dag í það minnsta, finnst mér afar ólíklegt að ég sé að fara að spila aft- ur. Ég tel mun meiri líkur á því að ég muni halda áfram að þjálfa hér á landi eða þá að ég taki næsta skrefið á mínum þjálfaraferli í Bandaríkj- unum.“ Kom skemmtilega á óvart KR var í öðru sæti úrvalsdeild- arinnar þegar tímabilið var blásið af og Rodriguez viðurkennir að hún hafi ekki saknað körfuboltans jafn mikið og hún átti von á. „Tímabilið var blásið af í mars og á síðustu tveimur mánuðum hef ég hellt mér mun meira út í þjálfunina, frekar en að eyða tíma í ræktinni sem dæmi. Ég hélt að ég myndi kannski sakna þess að halda mér í formi og að æfa driplið en ég hef alls ekki gert það, sem hefur komið mér skemmtilega á óvart. Þegar allt kemur til alls hefur hugur minn einfaldlega breyst mikið á undanförnum vikum og þótt mað- ur eigi aldrei að segja aldrei held ég að það sé nokkuð óhætt að segja að ég hafi spilað minn síðasta leik á ferlinum,“ bætti Rodriguez við. Ástríðan færst yfir í þjálfun  Danielle Rodriguez er hætt sem leikmaður 26 ára gömul  Vonast eftir ríkisborgararétti fyrir árslok  Aðstoðarþjálfari stúlknalandsliðs Íslands Morgunblaðið/Hari Öflug Danielle Rodriguez sækir að körfu Keflvíkinga í leik með KR-ingum á nýliðnu keppnistímabili. Hún var áður í þrjú ár með Stjörnunni. Nokkur stórlið á Ítalíu og Englandi hafa sýnt hinum 18 ára gamla Andra Fannari Baldurssyni áhuga. Andri Fannar lék sinn fyrsta leik með aðalliði Bologna skömmu áður en hlé var gert á ítölsku A-deildinni í fótbolta vegna kórónuveirunnar, en hann er uppalinn hjá Breiða- bliki. Félagið vill gera nýjan samn- ing við leikmanninn, en það gæti reynst þrautin þyngri þar sem Andri hefur heillað stórlið með frammistöðu sinni hjá Bologna að sögn La Gazzetta dello Sport á Ítal- íu. Stórlið á eftir Andra Fannari Ljósmynd/Bologna Bologna Andri Fannar Baldursson er eftirsóttur af stórliðum í Evrópu. Keflvíkingurinn Samúel Kári Frið- jónsson verður ekki með Paderborn er liðið mætir Düsseldorf á morgun í fyrstu umferð þýsku 1. deildarinnar síðan í mars. Steffen Baumgart, knattspyrnustjóri Paderborn, stað- festi á fréttamannafundi að Samúel ætti við meiðsli að stríða. Samúel kom til Paderborn í janúar og var að festa sig í sessi hjá liðinu þegar kór- ónuveiran skall á. Hefur hann spilað þrjá deildarleiki með liðinu, tvo þeirra frá byrjun, en hann lék með Vålerenga og Viking í Noregi áður en hann hélt til Þýskalands. Missir af fyrsta leik eftir hlé Morgunblaðið/Eggert Meiddur Samúel Kári Friðjónsson er að glíma við meiðsli. Ágúst Jóhannsson, þjálfari kvenna- liðs Vals undanfarin þrjú ár, hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins og verður því hægri hönd Arnars Péturssonar þjálfara. Hann verður einnig þjálfari U16 ára landsliðs kvenna. Ágúst, sem áfram þjálfar Val, hefur stýrt kvennalandsliði Færeyja síðustu tvö árin en lét af störfum þar í síðustu viku. Ágúst þekkir vel til því hann þjálfaði kvennalandslið Íslands á ár- unum 2000-2001 og aftur frá 2011 til 2016 en liðið komst á HM 2011 og EM 2012 undir hans stjórn. Ágúst aftur í landsliðsþjálfun Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason Reyndur Ágúst Jóhannsson starfar á ný með kvennalandsliðinu. Oliver Dowden, menningarmála- ráðherra Bretlands, greindi frá því í gær að ríkisstjórnin hefði gefið enska fótboltanum grænt ljós á að byrja á nýjan leik í júní. Dowden fundaði þá með knattspyrnu- yfirvöldum á Englandi. Independ- ent greindi frá því að B-deildin þar í landi gæti farið af stað 13. júní, einni viku á undan ensku úrvals- deildinni. Jón Daði Böðvarsson leikur með Millwall, sem er í átt- unda sæti, tveimur stigum frá sæti í umspilinu um sæti í deild þeirra bestu. Enski fótboltinn fær grænt ljós AFP Toppsæti Liverpool er með 25 stiga forskot á toppi úrvalsdeildarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.