Fréttablaðið - 06.01.2021, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 06.01.2021, Blaðsíða 23
GRILLAÐUR – PÖNNUSTEIKTUR – OFNBAKAÐUR Borinn fram með fersku salati, smælki, og citrus beurre blanc. APOTEK Kitchen + Bar Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.is JANÚAR TILBOÐ 1.990 kr. á mann FRÁBÆR Í HÁDEGINU FISKIVEISLA 3 tegundir af ferskasta fiski dagsins Skattheimta á að vera sanngjörn, hvetjandi og gagnsæ. Stefnan er ein-föld og skýr og við hana höfum við staðið undan-farin ár, ekki síst á því nýliðna. Þessi gildi munu áfram ráða för og það er ekki þrátt fyrir yfirstandandi þrengingar, heldur ekki síst vegna þeirra. Þannig felst leiðin út úr kórónukreppunni ekki í auknum álögum á heimili og fyrirtæki, heldur þvert á móti í að létta þeim róðurinn til að komast í gegnum erfiðasta tímann. Í þessum anda hafa nýlegar breytingar verið og nú í upphafi árs taka gildi fjöl- margar skattalækkanir fyrir heim- ili og fyrirtæki, auk nýrra og fram- lengdra hvata. Stöðug lækkun skatta Undanfarið höfum við verið á skýrri vegferð skattalækkana og nú um áramótin tók gildi seinni áfangi breytinga á tekjuskatti ein- staklinga. Þannig lækkaði grunn- þrep tekjuskatts, að teknu tilliti til meðalútsvars, úr 35,04% í 31,45%. Hlutfallið var 36,94% árið 2019. Samhliða hækkuðu þrepamörk upp í miðþrep tekjuskatts úr 337 þúsund krónum á mánuði í 349 þúsund krónur, og þrepamörk í háþrepi úr 945 þúsund krónum á mánuði í 979 þúsund krónur. Með þessu lækkar skattbyrði allra, mest hjá þeim tekjulægstu, og ráðstöfunartekjur aukast veru- lega. Sama markmið býr að baki hækkun á neðri skerðingarmörk- um vegna barnabóta sem tók gildi á sama tíma, en við þær breytingar aukast ráðstöfunartekjur foreldra sem á bæturnar treysta um allt að 15%. Enn fremur hækka skattleysis- mörk erfðafjárskatts úr 1,5 millj- ónum króna í 5 milljónir og munu mörkin framvegis taka árlegri breytingu miðað við þróun vísitölu neysluverðs. Þá lækka krónutölu- gjöld á eldsneyti, áfengi, tóbak o.f l. að raungildi, en hækkun ársins er minni en sem nemur verðbólgu frá síðustu uppfærslu. Loks má nefna að jafnræði hefur nú verið komið á í skattlagningu söluhagnaðar sum- arhúsa og auka íbúða, en um langt skeið hefur söluhagnaður sumar- húsa, ólíkt því sem gildir um aðra fasteign í sömu eigu, verið skatt- skyldur án undantekninga. Hinn skattlagði söluhagnaður hefur svo aftur leitt til bótaskerðingar sem bitnaði sérlega þungt á eldri borg- urum. Hvatar fyrir fólk og fyrirtæki Auk þess að lækka álögur á ein- staklinga hefur vinna síðustu mán- aða ekki síst snúist um að skapa umhverfi þar sem fyrirtæki geta vaxið og ráðið starfsfólk. Þann- ig lækkar almennt tryggingagjald nú tímabundið úr 4,9% í 4,65%, en tryggingagjald í heild lækkar því úr 6,35% í 6,1%. Gjaldið hefur lækkað stöðugt undanfarin ár, en til samanburðar stóð það í 8,65% við upphaf árs 2013 og í 7,35% í upphafi árs 2016. Þá hafa heimildir fyrir launa- greiðendur til að fresta staðgreiðslu opinberra gjalda verið framlengd- ar, auk þess sem þingið samþykkti fyrir jól að auknar endurgreiðslur virðisaukaskatts myndu gilda áfram út árið 2021. Endurgreiðsl- urnar ná til fjölmargra þátta, en þar má nefna vinnu og viðhald við húsnæði, heimilishjálp og bílavið- gerðir. Stuðningur við atvinnulíf ið felst þó ekki einungis í beinum aðgerðum í þágu fyrirtækja, heldur ekki síst í hvötum fyrir almenning til að taka þátt í viðspyrnunni. Í því augnamiði nær frítekjumark vaxtatekna einnig til arðs og söluhagnaðar hlutabréfa skráðra félaga, hvort sem er á aðalmarkaði Kauphallarinnar eða First North markaðstorginu, auk þess sem þakið var hækkað úr 150 þúsund krónum í 300 þúsund nú um ára- mót. Af leiðingin er stóraukinn hvati almennings til að fjárfesta með tilhey randi innspýtingu f y rir atvinnulífið og fjölbreyttari sparn- aðarleiðum fyrir einstaklinga. Með fyrirhugaðri sölu hluta í Íslands- banka í opnu útboði fjölgar svo fjárfestingarkostum almennings enn frekar. Loks má nefna mál sem nú liggur fyrir Alþingi, þar sem lögð er til stóraukin frádráttarheimild frá skatti fyrir fyrirtæki og ný frádrátt- arheimild fyrir einstaklinga vegna framlaga til almannaheillastarf- semi. Með breytingunum stendur til að breikka tekjustofn almanna- heillafélaga og auka á sama tíma frelsi einstaklinga til að ráðstafa fjármunum sínum án milligöngu ríkisins. Hvert renna peningarnir? Að lokum er vert að víkja að gagnsæinu sem áður var nefnt. Það er eðlileg og sjálfsögð krafa að sjá skýra mynd af því hvert fjármunir sem greiddir eru í skatta renna í raun. Það var veruleg framför þegar sundurliðun á greiðslum til ríkisins í formi tekjuskatts annars vegar og til sveitarfélags í formi útsvars hins vegar varð fyrst að veruleika á álagningarseðlum árið 2018. Með rafrænum framtölum og stöðugri stafrænni þróun hjá hinu opinbera eru hins vegar tækifæri til að ganga umtalsvert lengra í upp- lýsingagjöf. Í þessu samhengi má líta til ástralska ríkisins, en á álagn- ingarseðlum sínum sjá þarlendir skattgreiðendur sundurliðun upp- Á eigin skinni  Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahags- ráðherra hæða og málaf lokka sem skatt- greiðslur þeirra renna til niður á dollara. Vinna við sams konar lausn hér á landi er þegar hafin í samstarfi fjármála- og efnahags- ráðuneytisins og Skattsins og ég hlakka til að kynna afraksturinn fyrr en síðar. Á sömu braut Leiðin út úr yfirstandandi þreng- ingum felst ekki í útþenslu hins opinbera, heldur öf lugri verð- mætasköpun atvinnulífsins sem rennir styrkum stoðum undir samkeppnishæft þjóðfélag. Þess vegna ætlum við að halda áfram á sömu braut skattalækkana og stuðningsúrræða á nýju ári. Með öf lugum stuðningi og hvetjandi umhverf i mun einkaframtakið taka myndarlega við sér og við- snúningurinn verður hraður sam- hliða því sem birtir til á næstu mánuðum. Afraksturinn finnum við öll, á eigin skinni. Leiðin út úr yfir- standandi þreng- ingum felst ekki í útþenslu hins opinbera, heldur öflugri verðmætasköpun atvinnulífsins sem rennir styrkum stoðum undir samkeppnishæft þjóðfélag. 9M I Ð V I K U D A G U R 6 . J A N Ú A R 2 0 2 1 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.