Skessuhorn


Skessuhorn - 12.02.2020, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 12.02.2020, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 7 . tbl. 23. árg. 12. febrúar 2020 - kr. 950 í lausasölu sími 437-1600 Söguloft Landnámsseturs Næstu sýningar Auður og Auður laugardagur 15. febrúar kl. 20:00 laugardagur 22. febrúar kl. 20:00 sunnudagur 23. febrúar kl. 16:00 Öxin – Agnes og Friðrik laugardagur 15. febrúar kl. 16:00 sunnudagur 16. febrúar kl. 16:00 Miða- og borðapantanir á landnam.is/vidburdir eða á landnam@landnam.is arionbanki.is Núna getur þú sett þér markmið í sparnaði í Arion appinu Tíminn vinnur með þér í sparnaði Tilboð gildir út febrúar 2020 Franskar og sósa fylgir með tilboði Grilled chicken thighs 1.790 kr. Stjórn Ísfisks hf. hefur óskað eft- ir að félagið verði tekið til gjald- þrotaskipta. „Ljóst er eftir 39 ára samfellda starfsemi Ísfisks hf. að komið er að leiðarlokum. Ísfiskur hefur verið framleiðslu- fyrirtæki á fiski allan þennan tíma án þess að vera með útgerð eða kvóta. Félagið var lengst af til húsa í Kársnesinu í Kópa- vogi en flutti alla starfsemi sína á Akranes 2018. Hjá fyrirtækinu störfuðu á Akranesi um fimm- tíu manns þegar mest var og því ljóst að brottfall þess er mikið áfall fyrir atvinnulíf í bæjarfélag- inu. „Stjórn Ísfisks er svekkt yfir þessum málalokum og harm- ar þau í ljósi stöðu atvinnulífs og þess umhverfis rekstrar sem stjórnvöld hafs sett okkur í um áratuga skeið. Reynt var í nokkra mánuði að loka fjármögnun á fé- laginu en út af stóð að það gekk ekki að fjármagna fasteign- ina sem starfsemin flutti í fyrir nokkru. Leitað var til nokkurra aðila með það, en án árangurs,“ segir í tilkynningu frá stjórn. „Ísfiskur vill þakka starfsfólki sínu þolinmæði og samstöðu í okkar garð. Einnig bæjarstjórn á Akranesi, bæjarstóra og sam- félaginu öllu sem tók okkur vel. Við hörmum að hafa brugðist ykkur,“ segir í tilkynningu frá stjórn félagsins. Sjá nánar viðtal við Albert Svavarsson framkvæmdastjóra á bls. 18. mm Á nýju ári má segja að illa hafi gef- ið til að sækja sjó á Breiðafirði, nær stöðug brælutíð og röð lægða. Afla- brögð hafa þó verið góð þá sjald- an hefur verið hægt að róa. Síðast- liðinn föstudag fóru vindhviður í 39 metra á sekúndu um miðbik dags- ins. Sú mæling var gerð um borð í Esjari SH þegar skipverjar voru á heimsiglingu á föstudaginn. Margir bátar voru þá enn á sjó og barning- ur að ná til lands enda hvassara en spáð hafði verið. Allir komu þeir þó heilir til hafnar. af Ísfiskur í þrot Egill SH að koma að landi í Ólafsvík í hávaðaroki síðdegis á föstudaginn. Ljósm. af. Menn sæta lagi og lenda því stundum í brælum Skipverjar á Esjari SH eru hér að landa í Rifi. Gaf vel yfir bátinn á meðan á löndun stóð. Ljósm. af. Á mánudögum er yfirleitt löndunar­ dagur skipa í Grundarfirði. Afleit veð­ urspá var þá og heimaskipin Runólfur, Sigurborg og Farsæll lágu bundin við bryggju, en aftastur í röðinni við bryggjuna var Jón á Hofi ÁR. Ljósm. sk.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.