Skessuhorn


Skessuhorn - 12.02.2020, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 12.02.2020, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRúAR 202024 Í síðustu viku fór fram í Bjarnalaug á Akranesi árlegt innanfélagsmót Sundfélags Akraness sem nefn- ist Bárumótið. Á því keppa krakk- ar á aldrinum 8-12 ára en á eftir er öllum boðið til pizzuveislu. Allir keppendur fá verðlaunapening fyr- ir þátttökuna og stigahæsta stelpan og strákurinn fá farandabikara sem gefnir eru til minningar um Báru Daníelsdóttur. „Mótið gekk mjög vel og mátti sjá miklar framfarir hjá 38 efnilegum sundmönnum sem tóku þátt,“ segir í tilkynningu frá félaginu. Bárumeistarar 2020 eru þau Adam Agnarsson og Alexandra Ósk Hermóðsdóttir. mm/ Ljósm. SA. Konur í Kvenfélagi Ólafsvíkur tóku daginn snemma 10. febrúar síðast- liðinn til að baka sólarpönnukök- ur. Hófust þær handa við bakstur- inn klukkan 04:30 að morgni svo að þær yrðu búnar í tæka tíð með rúmlega 2200 pönnukökur sem pantaðar höfðu verið með morgun- kaffinu. Sólin heiðraði þó ekki bæj- arbúa í Ólafsvík þennan mánudag með nærveru sinni en einhverjir dagar eru síðan hún fór að kíkja aft- ur yfir fjöllin eftir sitt árlega vetr- arfrí. Gekk baksturinn mjög vel hjá þessum kátu kvenfélagskonum sem voru búnar að baka og afgreiða skammtinn ásamt því að ganga frá í eldhúsinu klukkan 10:30. Tók það um fjórar klukkustundir að baka pönnukökurnar. Sólarpönnuköku- baksturinn er ein stærsta fjáröfl- un kvenfélagsins og vildu þær fá að koma á framfæri kæru þakklæti fyr- ir góðar viðtökur á hverju ári. þa Sonja Lind Estrajher Eyglóardótt- ir útskrifaðist með BA gráðu í lög- fræði frá Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 1. febrúar og hlaut hún viðurkenningu fyrir hæstu lokaeinkunn. Sonja er búsett í Borgarnesi ásamt manninum sín- um, Pavle Estrajher, og börnun- um þeirra þremur, sem eru sjö ára, fimm ára og eins og hálfs árs. Hún hefur síðustu ár ekið á milli Borg- arness og Reykjavíkur til að fara í skólann og þess á milli sinnt móð- urhlutverkinu auk þess sem hún hefur undanfarið unnið í verslun- inni FOK í Borgarnesi. Þar að auki fæddist Kristín, yngsta dóttir þeirra hjóna, þegar Sonja var hálfnuð með námið. „Ég lenti í raun á milli kerfa og átti ekki rétt á fæðingaror- lofi né auknu svigrúmi hjá LÍN svo ég neyddist bara til að halda mínu striki í náminu. Ég þakka fyrir að Kristín fæddist í júní, þegar ég var nýkomin í sumarfrí. Tveimur og hálfum mánuði eftir að hún fædd- ist varð ég svo bara að byrja aftur,“ segir Sonja. Hún þakkar fyrir að eiga góða að og kom móðir hennar, Eygló Lind Egilsdóttir, fjölskyld- unni til aðstoðar með að hugsa um litlu stelpuna á meðan hún var í skólanum. „Mamma bjargaði okk- ur alveg. Ég fór í skólann snemma á morgnana og kom svo til baka um hádegi. Þetta var ekki ákjósanlegt en það var því miður ekkert annað í boði fyrir okkur,“ segir Sonja. „Ég setti undir mig hausinn og hélt áfram“ Spurð hvernig það hafi gengið að sinna fullu háskólanámi með þrjú lítil börn, þar af eina nýfædda, seg- ir Sonja að hún geti allavega ekki mælt með því við neinn. „Ég bara setti undir mig hausinn og hélt áfram og reyndi að hugsa ekki mik- ið um það. Ég hafði ekkert val, nema selja húsið mitt kannski,“ seg- ir Sonja. „Það er sérstakt að svona sé kerfið hjá okkur. Áður en ég fór í nám hafði ég verið á vinnumark- aði í 15 ár en svo missir maður öll réttindi við að fara í nám, þó maður hafi borgað af laununum sínum í öll þessi ár,“ bætir hún við. En hvernig nær maður að dúxa við þessar að- stæður? „Að segja að maður hafi dúxað hljómar eins og maður hafi fengið endalaust tíu í einkunn, en það er ekkert verið að gefa marg- ar níur eða tíur í lögfræðinni. Ég er enginn ofurheili með tíur í öllu og kom í raun sjálfri mér á óvart með þessum árangri og get í raun ekkert sagt hvernig ég náði þessu,“ svarar hún og hlær. Fór strax í mastersnám Hvað tekur við hjá Sonju eftir út- skrift? „Ég er byrjuð í masters- námi,“ svarar hún. „Ég áttaði mig á að ef ég myndi ekki fara í það strax myndi ég líklega aldrei gera það. Ég fór í fjölbraut á Akranesi á sínum tíma en hætti svo þar og fór að vinna og þá er bara svo erf- itt að koma sér aftur í nám, þegar maður er kominn á vinnumarkað,“ bætir hún við. Þá segist Sonja hafa komið sjálfri sér á óvart með að hafa yfir höfuð farið i lögfræðinám en á framhaldsskólaárunum var hún mikil listamannatýpa. „Ég fór reyndar á þeim tíma til námsráð- gjafa því ég vildi fá áhugasviðsmat til að hjálpa mér að ákveða hvað ég vildi læra. Á þeim tíma sá ég lítin tilgang með því að vera í skóla, lík- lega vegna þess að ég vissi ekki hvað ég vildi vera. Námsráðgjafinn sagði að það væri til tvær týpur af fólki, A týpa og B týpa, og að ég væri B týpa og það yrði því aldrei neitt úr mér! Ég fékk því ekki þetta áhugasviðs- mat og kannski var það þess vegna sem ég var svona lengi að átta mig á því að lögfræðin átti vel við mig,“ segir hún. arg Bökuðu 2200 sólarpönnukökur Keppendur á Bárumótinu. Adam og Alexandra eru Bárumótsmeistarar Adam Agnarsson og Alexandra Ósk Hermóðsdóttir. Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir útskrifaðist með hæstu einkunn úr BA námi í lögfræði. Dúxaði í lögfræði við HR þrátt fyrir að hafa átt barn þegar námið var hálfnað: Lætur ekki deigan síga og er byrjuð í mastersnámi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.