Skessuhorn - 12.02.2020, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRúAR 202010
Starfshópur hefur skilað til mennta-
málaráðherra tillögum um mark-
mið, hlutverk, framkvæmd og fyr-
irkomulag samræmdra könnunar-
prófa í grunnskólum. Í tillögun-
um felst umtalsverð stefnubreyting
frá núverandi fyrirkomulagi sam-
ræmdra prófa í grunnskólum. Lagt
er til að í stað þeirra verði þróuð ný
matstæki í ýmsum námsgreinum
með áherslu á fjölbreytt, stutt og
hnitmiðuð rafræn próf og verkefni.
Í niðurstöðu hópsins er lagt til
að nýja fyrirkomulagið verði kall-
að matsferill. Áhersla verði lögð á
leiðbeinandi námsmat sem komi til
móts við fjölbreytta kennsluhætti
og einstaklingsmiðað nám og leið-
sagnarmat. Skólar og nemendur
hafi valfrelsi um að nýta sér prófin
með þeirri undantekningu að skól-
um beri að leggja fyrir ákveðin próf
í íslensku og stærðfræði. Gefa eigi
kost á sveigjanlegri fyrirlögn prófa
í matsferlinum.
Þá leggur starfshópurinn til að
skilgreindur verði námsmatsrammi
sem veiti ítarlegar upplýsingar um
markmið og hlutverk alls skipulagðs
námsmats á mismunandi skólastig-
um. Með slíkum ramma deili allir
sömu sýn á tilgang námsmats og
tímasetningar þess, birtingu niður-
staðna og í hvaða röð ólíkir náms-
þættir væru kannaðir. Góð reynsla
er af notkun slíkra námsmatsramma
í nágrannalöndunum.
„Ég fagna tillögum hópsins og
tel jákvætt að þar er samhljóm að
finna með áherslum í annarri um-
bótavinnu á vettvangi ráðuneytis-
ins, til dæmis varðandi mikilvægi
starfsþróunar kennara. Samræmt
námsmat er mikilvægt verkfæri til
þess að efla menntakerfið – til að
hvetja nemendur og gefa þeim til-
finningu fyrir því hvar þeir standa,
fyrir kennara til þess að mæla ár-
angur af sínum aðferðum og
áherslum og fyrir skólastjórnend-
ur og menntayfirvöld til þess að
fylgjast með þróun mála. Við verð-
um hins vegar að tryggja að mat sé
gagnlegt öllum, um það ríki sátt og
skilningur og að áherslur þess séu
í samhengi við áherslur aðalnáms-
skrár. Við viljum stuðla að skýrri og
skjótri endurgjöf fyrir nemendur og
kennara, tillögur hópsins geta stutt
það markmið okkar,“ segir Lilja Al-
freðsdóttir, mennta- og menning-
armálaráðherra.
mm
Hafin er söfnun meðal einstak-
linga, fyrirtækja og stofnana í
Borgarbyggð fyrir lyftu til að setja
í ferðaþjónustubíl fatlaðra í sveit-
arfélaginu. Snjólaug Soffía Óskars-
dóttir hefur undanfarin tvö ár leyst
af við akstur á bílnum og segir hún
í samtali við Skessuhorn að brýn
þörf sé fyrir að koma lyftu í bíl-
inn til að auðvelda aðgengi fatlaðra
og aldraðra sem ferðast með hon-
um jafnt að sumri sem vetri. Lyfta
af þessu tagi kostar um 850 þúsund
krónur með ísetningu. Soffía hefur
nú hrundið af stað söfnun og fengið
Kvenfélag Borgarness sem bakhjarl
söfnunarinnar, en kvenfélagið legg-
ur m.a. til söfnunarreikningsnúmer
sem hægt er að leggja inn á.
„Ég hef leyst af á þjónustubíl
fyrir fatlaða undanfarin tvö ár og
hef svo sannarlega fundið mikla
þörf fyrir því að lyfta sé í þessum
bíl til að auðvelda öllum sem bæði
nota þjónustuna og veita hana. Ég
hef ekið bílnum bæði að sumri sem
vetri og finn vel þörfina fyrir að bíl-
linn sé búinn lyftu. Til dæmis getur
snjóað inn í rampinn á bílnum og
verður hann þá sleipur og þar af
leiðandi hættulegur. Auk þess felst
mikið öryggi í að hafa lyftu, bæði
fyrir farþega og bílstjóra. Þjónus-
tubíllinn er frekar hár og því getur
verið erfitt að komast upp í hann
með góðu móti og tekið á í sumum
aðstæðum. Lyfta myndi sannarlega
létta öllum lífið,“ segir Soffía.
Reikningur verkefnisins er: 0326-
26-3121 kt. 700169-4809 (Kvenfé-
lag Borgarness)
mm
Hefðbundin þingstörf liggja niðri
þessa vikuna enda kjördæmavika.
Þingmenn flestra flokka eru því á
faraldsfæti, heimsækja fyrirtæki,
halda fundi, ræða við kjósendur og
taka púlsinn á þjóðlífinu. Skessu-
horn heyrði í morgun hljóðið í
nokkrum þeirra síðastliðinn mánu-
dagsmorgun.
Haraldur Benediktsson, fyrsti
þingmaður Norðvesturkjördæmis,
var staddur á fundi í Háskólanum á
Akureyri þegar Skessuhorn heyrði
í honum hljóðið. „Þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins ákváðu að þessu
sinni að fara saman í hringferð um
landið. Við landsbyggðarþingmenn
teljum nauðsynlegt að allur hópur-
inn skilji og skynji vel þær aðstæð-
ur sem við erum að berjast fyrir rétt
eins og við þurfum að vera vel inni
í málefnum þéttbýlisins. Það hef-
ur verið góð reynsla af þessu fyr-
irtkomulagi hjá okkur,“ segir Har-
aldur og bætir við að þessu sinni sé
lögð áhersla á heimsóknir í lítil og
meðalstór fyrirtæki. Hann segir að
ferð hópsins hafi byrjað með fjöl-
mennum fundi í Búðardal síðast-
liðinn föstudag en þaðan hafi leiðin
legið um Strandir og Vestfirði, þá
var farið á Sauðárkrók og víðar um
norðanvert landið. Hann segir að
þetta fyrirkomulag leiði þó til þess
að ekki næst að heimsækja öll hér-
uð á einni viku jafnvel þótt skipu-
lagið sé gott, en hann segir að hóp-
urinn sé stöðugt á ferðinni frá sjö
á morgnana og fram á nótt. „Við
stefnum á að heimsækja Akranes,
Borgarfjörð og Snæfellsnes á næst-
unni, en það verður þó ekki í þess-
ari viku,“ bætir Haraldur við.
Framsóknarfólk var sömuleiðis á
faraldsfæti, en fyrsti fundur á þeirra
vegum var heimsókn Lilju D Al-
freðsdóttur menntamálaráðherra
á Akranes síðastliðinn laugardag.
Að sögn Helga Hauks Hauksson-
ar framkvæmdastjóra flokksins er
þétt dagskrá og fundir þingmann-
anna Ásmundar Einars Daðasonar
og Höllu Signýjar Kristjánsdóttur
verða víða um kjördæmið. Stærsti
fundur á vegum flokksins var í
Borgarnesi í gærkvöldi, þar sem
samgöngumál voru til umræðu.
Guðjón Brjánsson þingmað-
ur Samfylkingar hefur sömuleið-
is verið á faraldsfæti. „Við erum á
ferðinni hér í Húnavatnssýslum
í dag. Er nú á akstri á leiðinni til
Skagastrandar í musku og slæmu
skyggni. Heimsækjum svo Blöndu-
ós og fleiri staði. Við ætlum í þess-
ari ferð okkar að leggja áherslu á
heimsóknir til ferðaþjónustunn-
ar, sprotafyrirtækja og almennt til
þeirra sem eru á kafi í nýsköpun, til
dæmis nýja gagnaverið á Blöndu-
ósi. Á þriðjudag er svo farið víða
um Snæfellsnes,“ sagði Guðjón
þegar rætt var hann á mánudginn.
Hann bætti við að á föstudag sé
m.a. fyrirhugað að vera á ferðinni
í Borgarbyggð.
Lilja Rafney Magnúsdóttir þing-
maður VG í kjördæminu var veð-
urteppt heima hjá sér á Suðureyri
þegar hringt var í hana á mánu-
dagsmorgun. „Hér er í augnablik-
inu ófært bæði landleiðina og með
flugi. Engu að síður er hópur þing-
manna flokksins á ferðinni í kjör-
dæminu, en við skipulögðum bæði
ferð vesturfara og austurfara þessa
vikuna,“ sagði Lilja Rafney. Kol-
beinn Óttarsson Proppé þingmað-
ur VG var í Geirabakaríi í Borgar-
nesi þegar slegið var á þráðinn til
hans laust fyrir hádegi á mánudag-
inn. „Við vorum á Grundartanga
í morgun og erum á leið vestur á
Snæfellsnes. Endum svo í Dölum
í kvöld þar sem gist verður. Svo
er áframhaldandi dagskrá á næstu
dögum hér í kjördæminu og stefn-
an svo sett á Norðurlandið þeg-
ar líður á vikuna,“ sagði Kolbeinn
sem var hluti af vesturfarahóps VG
fólks. mm
Leggja til nýja matstækni í stað
samræmdra prófa
Safnað fyrir lyftu í ferða-
þjónustubíl í Borgarbyggð
Lyfta af því tagi sem nú er hafin söfnun fyrir.
Þingmenn VG ásamt Lísu Kristjáns, Hreindísi Ylfu og Leifi Gunnarssyni í Geirabak
aríi í Borgarnesi í hádeginu á mánudaginn. Ljósm. Bjarki Hjörleifsson.
Þingmenn á faraldsfæti í kjördæmaviku
Haraldur Benediktsson 1. þingmaður Norðvesturkjördæmis hefur ásamt fleirum
verið á faraldsfæti undanfarna daga. Hér er hann staddur í verslun Haraldar
Júlíussonar á Sauðárkróki og ræðir við hinn aldna kaupmann Bjarna Har.
Ljósm. Njáll Trausti Friðbertsson.
Lilja D. Alfreðsdóttir menntamálaráðherra tók daginn snemma á laugardaginn.
Árla morguns var hún í Reykholti og skrifaði undir rannsóknarsamning í Snorra
stofu og klukkan 10:30 var hún mætt að Garðavöllum á Akranesi þar sem boðað
hafði verið til fundar. Ljósm. mm.