Skessuhorn


Skessuhorn - 12.02.2020, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 12.02.2020, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRúAR 2020 23 S K E S S U H O R N 2 02 0 Breyting á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 Eyri Svínadal Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti þann 12. desember 2019 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í aðalskipulaginu er ekki gert ráð fyrir frekari uppbyggingu á frístundarsvæðum en orðið er. Unnin hafa verið drög að flokkun landbúnaðarlands þar sem land er flokkað í fjóra flokka. Land sem breytingin tekur til er í flokki II sem telst vera gott ræktunarland og styður nýtingu góðs landbúnaðarlands. Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta haft samband við skipulags- og umhverfisfulltrúa Hvalfjarðarsveitar, skipulag@hvalfjardarsveit.is Sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar S K E S S U H O R N 2 02 0 Breyting á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 Jarðstrengslagnir Vatnshamarslínu 2, Akraneslínu 2 Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti þann 12. mars 2019 tillögu að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að Vatnshamarslínu 2 er breytt úr loftlínu í jarðstreng á milli mastra 4 og 24. Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta haft samband við skipulags- og umhverfisfulltrúa Hvalfjarðarsveitar, skipulag@hvalfjardarsveit.is Sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar Krabbameinsfélag Borgarfjarð- ar var stofnað 14. febrúar 1970 og eru því á föstudaginn liðin 50 ár frá stofnun félagsins. Fyrstu stjórn félagsins skipuðu þau Aðalsteinn Pétursson læknir á Kleppjárns- reykjum, Valgarð Björnsson læknir í Borgarnesi, Sigríður Guðmunds- dóttir frá Einarsnesi, Kristín Pét- ursdóttir frá Skeljabrekku og Hún- bogi Þorsteinsson sveitarstjóri. Á þeim 50 árum sem félagið hefur verið starfrækt hefur markmiðið verið að styrkja og styðja við bakið á þeim sem þurfa á lyfjameðferð að halda vegna krabbameins. „Lífslík- ur þeirra sem greinast með krabba- mein á lífsleiðinni hafa meira en tvöfaldast og efla þarf því stuðn- ing við meðferð og úrræði fyrir þá sem lifa með afleiðingum krabba- meinsmeðferðar. Nýtt kjörorð fyrir krabbameinsfélagið er einnig Nýjar áskoranir - nýjar leiðir,“ segir Anna Dröfn Sigurjónsdóttir, formaður Krabbameinsfélags Borgarfjarðar, í samtali við Skessuhorn. „Hafa má í huga að einn af hverjum þremur greinist með krabbamein einhvern- tímann á lífsleiðinni. Helstu fjár- öflunarleiðir Krabbameinsfélagsins eru félagsgjöldin og sala minning- arkorta.“ Nýtt merki Krabba- meinsfélagsins Nú hefur nýtt merki, eða lógó, Krabbameinsfélagsins litið dags- ins ljós en það á að endurspegla þá fjölbreyttu starfsemi sem félagið og aðildarfélög þess standa fyrir í dag. „Nýja merkið stendur fyrir hlutverk félagsins; stuðning, rannsóknir, for- varnir og málsvarahlutverk. Merkið táknar jafnframt samstöðu og sam- einingarkraft og getur einnig vísað í landsfjórðungana,“ útskýrir Anna Dröfn. Í tilefni afmælisins verður Krabbameinsfélag Borgarfjarð- ar með ýmsa viðburði á afmælis- árinu, m.a. kaffi á sjálfan afmælis- daginn, föstudaginn 14. febrúar á milli kl. 16 til 18 í sal Brákarhlíðar. Þar verður happdrætti, afmæliskaka og tónlistaratriði í boði. „Sunnu- daginn 1. mars ætlum við að halda Karlahlaup Mottumars í Borgar- nesi í samstarfi við hlaupahópinn Flandra þar sem öllum sem vilja býðst að hlaupa fimm km. Hlaup- ið hentar bæði reyndum hlaupur- um og þeim sem kjósa að fara hæg- ar yfir, hvað sem þátttakendur velja sér. Allur ágóði af hlaupinu rennur til Krabbameinsfélagsins. Allir þátt- takendur fá sokkapar með skráningu ásamt tímatökuflögu,“ segir Anna Dröfn. Sunnudaginn 19. apríl kem- ur Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabba- mein og aðstandendur í Borgarnes með perluviðburð þar sem perluð verða armbönd sem nýtast Krafti í fjáröflun. Þá verða ýmis fræðsluer- indi haldin á árinu. Lykkja fyrir lykkju Krabbameinsfélag Borgarfjarðar, í samstarfi við Framköllunarþjón- ustuna og Ístex, hefur einnig farið af stað með verkefnið Lykkja fyrir lykkju. Þar gefst fólki kostur á að sækja band í poka til að prjóna úr því sokka og skila svo pokanum aft- ur með leistunum í til Framköllun- arþjónustunnar. „Þannig er hægt að styrkja félagið án þess að láta pen- inga af hendi rakna. Þessir sokk- ar verða svo settir í pakka sem af- hentir eru á Landspítalanum þeim á aldrinum 18-45 ára sem greinast með krabbamein,“ útskýrir Anna Dröfn og bætir því við að þessa skemmtilega verkefni muni standa yfir allt afmælisárið. „Markmiðið er að safna að minnsta kosti 50 pör- um af sokkum og afhenda Krafti í lok árs.“ Þá vill Anna Dröfn minna á að alltaf er opið fyrir nýtt stuðn- ingsfólk í félagið og þeir sem vilja leggja félaginu lið eða koma ábendingum til þess geta haft samband á netfangið: krabba- meinsfelagborgarfjardar@gmail. com. arg Krabbameinsfélag Borgarfjarðar 50 ára Nýtt merki Krabbameinsfélagsins. Ný stjórn Krabbameinsfélags Borgarfjarðar var kosin í lok síðasta árs. Hana skipa f.v: Guðríður Ringsted ritari, Hafdís Brynja Guðmundsdóttir meðstjórnandi, Anna Dröfn Sigurjónsdóttir formaður, Jómundur Hjörleifsson meðstjórnandi og Guðrún Helga Andrésdóttir gjaldkeri. Fyrsta stjórn Krabbameinsfélags Borgarfjarðar var skipuð Valgarði Björnssyni lækni í Borgarnesi, Sigríði Guðmundsdóttur frá Einarsnesi, Aðalsteini Péturssyni lækni á Kleppjárnsreykjum, Kristínu Pétursdóttur frá Skeljabrekku og Húnboga Þorsteinssyni sveitarstjóra. Ljósm. af Tímarit.is Sokkar sem prónaðir voru fyrir verkefnið Lykkja fyrir lykkju. Ljósm. Anna Dröfn Sigurjónsdóttir. Anna Dröfn og tvær vinkonur hennar fengu sér allar húðflúr af bleiku slaufunni. Ljósm. Anna Dröfn Sigurjónsdóttir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.