Skessuhorn


Skessuhorn - 12.02.2020, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 12.02.2020, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRúAR 2020 25 úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála kvað 23. janúar síð- astliðinn upp úrskurð í máli sem snertir breytingar á íbúðarhúsinu Egilsgötu 6 í Borgarnesi, en hús- inu var fyrir nokkrum árum breytt í þrjár stúdíóíbúðir á neðri hæð og eina íbúð á efri hæð og þar er rekið gistiheimili. Í úrskurði nefndarinn- ar segir: „Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Borgarbyggð frá 2. apríl 2019 um að samþykkja umsókn um byggingarleyfi til að breyta húsnæði á lóð nr. 6 við Eg- ilsgötu í þrjár stúdíóíbúðir á neðri hæð og eina íbúð á efri hæð.“ Mál þetta á sér allnokkra forsögu en það var fyrirtækið Ikan ehf., sem er til húsa við Egilsgötu 4, sem krafðist þess að ákvörðun bygging- arfulltrúa Borgarbyggðar um breyt- ingar á húsinu við Egilsgötu 6 yrði felld úr gildi. Tengja steyptar tröpp- ur húsin saman. Í niðurstöðu nefnd- arinnar segir: „Er ekki útilokað að kærandi eigi lögvarinna hagsmuna að gæta vegna hins kærða bygging- arleyfis og hefur honum áður verið játuð kæruaðild á þeim grundvelli fyrir nefndinni vegna sömu breyt- inga, svo sem rakið er í málavaxta- lýsingu.“ Þá segir jafnframt: „Að framangreindu virtu uppfyllir hið kærða byggingarleyfi ekki áskilnað 11. gr. mannvirkjalaga um að bygg- ingarleyfi sé í samræmi við bygg- ingarreglugerð.“ Framangreint mál úrskurðar- nefndar um umhverfis- og auð- lindamál er númer 24/2019. mm Bændasamtökin, í samstarfi við Búnaðarsamtök Vestur- lands, boða til þriggja funda sem hér segir: Vegamótum á Snæfellsnesi í dag, mið- vikudaginn 12. febrúar kl. 13.30, Þverholtum á Mýr- um (bústjórahúsinu) í kvöld, miðvikudaginn 12. febrú- ar kl. 20.30 og í fjárhúsun- um á Hesti fimmtudaginn 13. febrúar kl. 13.00. „Guðrún Tryggvadóttir, for- maður Bændasamtakanna mætir á fundina en þeir eru fyrst og fremst hugsaðir sem óform- legir spjallfundir þar sem vonandi sem flestir tjá hug sinn varðandi landbúnaðinn, hvort heldur sem er varðandi vandamál hans eða tækifæri. Þá má ætla að væntanlega uppstokkun félagskerfisins beri á góma,“ segir í tilkynn- ingu frá BÍ og Búnaðarsam- tökum Vesturlands. mm Lengi vel voru pandabirnir í út- rýmingarhættu en þökk sé alþjóð- legu verndunarátaki á síðustu ára- tugum hefur þessum dýrum fjölg- að. Árið 2016 var ástand panda- birnastofnsins endurmetinn á Rauða lista IUCN og stofninn var færður upp frá „í útrýminga- hættu“ yfir í „viðkvæmur.“ Heim- urinn virðist elska pöndur og marg- ir fylgjast vel með gleðifréttum eins og þeim sem komu frá hollenskum dýragarði nýlega þegar myndir náðust af tveimur pöndum í sínum fyrstu ástaratlotum saman. Í tvö ár hafði hópur líffræðinga, dýragarða- starfsfólks og kínverskir pönduráð- gjafar unnið saman að því að kynna pöndurnar Wu Wen og Xing Ya fyrir hvor annarri. Þegar stund- in rann upp var spenna í loftinu en sérfræðingar, almenningur og fjöl- miðlar fögnuðu kátt þegar allt gekk loksins vel hjá pöndunum. Ég tel að það sé margt líkt með pandabjörnum og Íslendingum. úti í hinum stóra heimi með 7,5 milljörðum mannfólks má segja að ef ástand Íslendingastofnsins væri skilgreint í þessu samhengi séum við mögulega í útrýmingarhættu. Ef við teljum saman alla núlif- andi Íslendinga þá eru við rétt um 0,005% af öllu mannkyni. Það er ekki mikið og ekki varð það betra þegar ég skoðaði nýlega samfélags- miðlana. Þar sá ég fólk deila frétt- um af nýjustu fæðingartíðnitölum og skrifa með hástöfum að frjósemi íslenskra kvenna hefur aldrei verið minni! En þetta er auðvitað bara leikur með skilgreiningar og kannski er það best fyrir jörðina að við séum ekki að fjölga okkur of mikið. Samt sem áður hefur mér stundum liðið eins og pandabirni þegar útlend- ingar sem ég þekki kynna mig fyr- ir öðrum útlendingum, sérstaklega hérna í Níger. Það kemur fyrir að þessi samtöl hljómi eins og það sé verið að kynna sjaldgæft dýr fyr- ir áhorfendum í sirkus: „Komið og sjáið eina Íslendinginn í Níger, afkomandi víkinga frá eldspúandi eyju rétt hjá Norðurpólnum, það eru bara þrjúhundruð og eitthvað þúsund af þeim til í heiminum!“ Oftast brosi ég nú bara, leiðrétti stundum algengan misskilning um Ísland og síðan hugsa ég ekki um þetta meira. Nýlega kom það hins vegar upp að vinir mínir hérna fréttu að það væri kominn ann- ar Íslendingur til Nígers, einhver sem væri hérna bara í stuttri vinnu- ferð. Pöndusamlíkingin kom mér til hugar þegar fjöldi fólks hafði samband við mig til að segja mér þessar spennandi fréttir og gantast með líkurnar á að það séu tveir Ís- lendingar í Níger! Með ákafa sögðu þau að þau myndu gera allt sem þau gætu til að láta okkur hittast. Ég sagði að þetta væru auðvitað ágætis fréttir, en ég reyndi kurteisislega að útskýra fyrir fólki að ég hefði alveg hitt Íslendinga áður og það væri nú ekkert brjálæðislega nauðsynlegt fyrir okkur að hittast, sérstaklega ef það væri vesen fyrir alla að skipu- leggja stað og stund. Ég hugsaði einnig með mér að það væri örugg- lega margt annað mun áhugaverðra fyrir þennan landa minn að gera hér í Níger en að hitta einhver gaur úr Borgarnesi. En nei, sam- eiginlegu vinir okkar voru alveg handvissir um að það yrði að leiða þessa tvo sjaldgæfu Íslendinga sam- an. Líkt og fyrir Wu Wen og Xing Ya var allt skipulagt og svo vorum við kynntir fyrir hvor öðrum. Best að taka það fram að blessunarlega var enginn að ætlast til þess að við myndum makast. En að öllu pöndugamni slepptu þá var alveg frábært að hitta þenn- an Íslending, þennan Sölva Karls- son. Við hittumst á Cap Banga eyj- unni í ánni Níger, settumst niður með drykk í hönd og spjölluðum saman. Það tók okkur ekki langan tíma að finna þessa hefðbundnu ís- lensku tenginu, eitthvað sem flest- ir kannast við þegar Íslendingar hittast í útlandaferðum. Við kom- umst að því að hann og æskuvin- ur minn, Heiðar Lind Hansson úr Borgarnesi og fyrrum blaðamaður á Skessuhorni, leigðu saman hús- næði í London fyrir einhverjum árum. Þetta gladdi útlensku vinina hérna alveg gríðarlega mikið enda staðfesting á því hvað Ísland sé lítið og krúttlegt, og að þar þekkja auð- vitað allir alla. Það var að sjálfsögðu gaman að vita að hann þekkti blessaða Heið- ar, en áhugaverðast af öllu var þó að heyra frá Sölva hvað hann væri að gera hérna úti í Níger. Hann vinn- ur fyrir alþjóðlegu samtökin Search for Common Ground sem eru með verkefni á átakasvæðum út um allan heim, og meðal annars í Diffa hér- aðinu hérna í Níger. Hann var að heimsækja það svæði fyrir samtökin sín, þau eru þar með verkefni sem felst í því að búa til tækifæri fyrir ungt fólk til að taka þátt í friðar- uppbyggingu. Við heima á Íslandi höfum kannski heyrt af þessu Diffa svæði í fréttunum, þetta er eitt af þeim svæðum þar sem hryðjuverka- samtökin Boko Haram hafa komið sér fyrir og herja nú á íbúa héraðs- ins og nágrennis. Sölvi útskýrir fyr- ir mér vinnuna sína og að hann hafi lært að flest ungt fólk þarna á svæð- inu vill alls ekki taka upp vopn eða ganga til liðs við þessa hryðjuverka- menn. Unga fólkið vill bara lifa sínu venjulega lífi og flest þeirra vilja hafa einhver jákvæð áhrif á samfé- lagið sitt. Hans vinna er svo einmitt að hjálpa þessu unga fólki með því að koma í heimsókn og leiðbeina teymi fólks við að byggja upp æsku- lýðsstarf þarna á svæðinu. Þegar ég spurði Sölva um framtíð Diffa svæðisins og framtíð Nígers, þá talaði hann um að auðvitað væru hér erfiðleikar sem fólk væri að tak- ast á við, og að sumir af þessum erf- iðleikum væru mögulega ástæður þess að samtök eins og Boko Haram hefðu náð sér á strik hérna í landinu. En hann sagði líka að hann hefði fulla trú á því að með tíð og tíma myndi heimafólki takast að leysa úr þessum erfiðleikum. Hér væri mikill vilji til að vinna úr þessum átökum og finna friðsamlegar leiðir inn í framtíðina. Það gladdi mig að heyra hvað hann var jákvæður því þetta fór saman við mína upplifun af Níger, bæði landi og þjóð. Mikið vona ég að þetta æskulýðsverkefni muni ganga vel. Þarna á eyjunni í ánni ræddum við saman á meðan sólin hvarf með litadýrð í eyðimerkurrykmökkinn við sjóndeildarhringinn. Þarna voru tveir menn, af sjaldgæfum stofni og langt frá heimaslóðum, sammála um að þeir yrðu að hvetja fólkið heima á eldspúandi eyjunni rétt hjá Norð- urpólnum að koma í heimsókn til Nígers, því þetta væri alveg yndis- legt land. Geir Konráð Theódórsson. Sveitarfélagið Snæfellsbær hef- ur á liðnum árum beitt sér fyr- ir að varmadæluvæða húsnæði í eigu sveitarfélagsins, enda jarð- hita ekki að finna á þessum slóðum. Eitt þessara húsa er félagsheimil- ið Klif í Ólafsvík en þar voru fyr- ir nokkrum árum plægð niður rör fyrir varmadælu í fjöruna austan við húsið. Ekki vildi betur til en svo í vestanátt nýverið, sem fylgdi brim og stjórsjór, að rörin losnuðu upp. Flest þeirra hurfu á haf út, en öðr- um skolaði á land. Í liðinni viku var tekin sú ákvörðun að plægja hluta af rörunum niður í vatnið við Hvalsá og sækja með því móti nýtanlega orku úr vatninu. Það var B.Vigfús- son ehf. sem sá um verkið ásamt starfsmönnum Snæfellsbæjar. þa Pstiill - Geir Konráð Theódórsson Íslenskar pöndur hittast á eyju í Afríku Íslensku pandabirnirnir í Níger; Geir Konráð og Sölvi. Plægðu niður ný rör fyrir varmadæluna í Klifi Grasrótarfundir Bændasamtakanna á Vesturlandi Fella úr gildi byggingarleyfi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.