Skessuhorn - 12.02.2020, Síða 4
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRúAR 20204
Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 3.280 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.840. Rafræn áskrift kostar 2.570 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.370 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Úr torbæ
til tæknilausna
Upp eru runnir athyglisverðir tímar þar sem þróun í tækni og vísindum er
gríðarleg. Störf breytast og önnur munu hverfa. Til dæmis er fyrirsjáanlegt að
afgreiðslustörf í verslunum og veitingastöðum heyri brátt sögunni til. Nú þeg-
ar má sjá þess merki. Helgi gamli í Góu, sem á KFC veitingastaðina, ríður á
vaðið hér á landi og býður nú viðskiptavinum sínum að gera matarpöntunina
á snertiskjám í anddyri kjúklingastaðanna, greiðslan fer svo í gegnum app sem
viðkiptavinir eru með í símunum sínum sem tengdir eru við mannlausan við-
skiptabanka. Afgreiðslufólkið tínir svo matarpöntunina í bréfpoka og orðalaust
hafa viðskiptin átt sér stað á einni mínútu. Sjálfsafgreiðslukerfi taka einnig yfir
í matvöruverslunum og þess er ekki langt að bíða að ef fólk vill fá hefðbundna
„lifandi“ afgreiðslu í verslun, mun það þurfa að borga sérstakt þjónustugjald
fyrir, líkt og þjónustugjöldin í bankanum (þar sem mannshöndin kemur reynd-
ar hvergi nærri).
Ef allar þær tæknibreytingar sem við nú upplifun eru teknar saman í einni
setningu er svarið fjórða iðnbyltingin. Í skjóli tækniframfara leita fyrirtæki sí-
felldrar hagræðingar og hér á landi munu þessir hlutir gerast hratt. Ekki ein-
vörðungu vegna þess að við erum nýjungagjörn þjóð, heldur ekki síður vegna
þess að eigendur fyrirtækja, hvort sem það eru verslanir, veitingastaðir eða aðr-
ir, munu innleiða alla þá tækni sem hugsast getur til að spara laun. Jafnvel þótt
grunnlaun í þjónustu séu lág í samanburði við önnur störf, þá eru launatengd
gjöld og almennur kostnaður við að hafa fólk í vinnu sífellt að hækka. Háar
greiðslur í lífeyrissjóði, tryggingagjald, sumarbústaðagjöldin sem verkalýðs-
félögin innheimta og önnur áunnin efnisleg og huglæg réttindi hafa hækkað
svo um munar. Þannig þarf atvinnurekandi í dag að bæta við fimmtíu aurum
við hverja krónu sem hann greiðir starfsmanni í laun. Skal því engan undra að í
þjónustu leiti menn leiða til að fækka fólki og draga úr launakostnaði.
Ég sat síðastliðinn laugardagsmorgun áhugaverðan fund sem Lilja D Al-
freðsdóttir menntamálaráðherra hélt á Akranesi. Henni varð tíðrætt um hið
dýnamíska starfsumhverfi. Sagði hún okkur Íslendinga vel í sveit setta til að
takast á við verkefni morgundagsins hvað tækniframfarir varðar. Hér er fólk í
eðli sínu lausnamiðað. Benti hún á að lykillinn að framþróun samfélagsins væri
að börn og ungt fólk hefði gott vald á íslensku máli og öðrum tungumálum,
því þá væri því einfaldlega allar götur greiðar. Með góðu valdi á móðurmál-
inu náum við að tileinka okkur nýjungar, lesa okkur til. Tungumálið er þannig
leiðin til sjálfsbjargar og síðar til að viðhalda góðri stöðu á alþjóðavettvangi.
Því leggur ráðherra áherslu á það í starfi sínu að styrkja íslenskuna sem skil-
virkasta tækið í framþróun samfélagsins. En hún beindi einnig orðum sínum
að foreldrum og kennurum í skólum. Sagði hún okkur verða að auka aga og
benti sem dæmi á þá staðreynd að það tekur að jafnaði 12 mínútur að fá þögn
í íslenskum grunnskólabekk. Þessar tólf mínútur nýtast því ekki til kennslu.
Kannski þess vegna erum við ekki að mælast lágt í alþjóðlegum PISA könnun-
um. Lilja áréttaði að íslenskir kennarar gegni mikilvægasta starfi samfélagsins.
Þeir standi hins vegar frammi fyrir stórum áskorunum einmitt vegna tækninn-
ar. Þeir þurfa sífellt að uppfæra eigin þekkingu svo ekki væri nema til að halda
í við börnin sem geta „googlað“ nánast hvað sem er. Af þeim sökum þurfi Ís-
lendingar að hlúa vel að menntakerfinu sem lyklinum að aukinni velsæld.
Kannski felst sú velsæld einmitt í að við afgreiðum okkur sjálf í versluninni
og unga fólkið sem þar stóð áður vaktina, verður í betur launuðum störfum
við eitthvað allt annað í framtíðinni. Allavega er þetta allt býsna athyglisverð
og hröð þróun miðað við að einungis eru um sjö áratugir frá því síðasti Íslend-
ingurinn fæddist í torfbæ.
Magnús Magnússon.
Matvælastofnun barst tilkynning
frá Arctic Sea Farm laugardag-
inn 1. febrúar um gat á nótarpoka
einnar sjókvíar Arctic Sea Farm við
Eyrarhlíð í Dýrafirði. Í tilkynningu
Matvælastofnunar um atkvikiið
segir að gatið hafi uppgötvast við
neðansjávareftirlit og er viðgerð
lokið. Samkvæmt upplýsingum
Arctic Sea Farm var gatið um 99
cm rifa á 20 metra dýpi. Í þessari
tilteknu kví voru um 170.000 laxar
með meðalþyngd 2,4 kg, alls 408
tonn. Neðansjávareftirlit hafði síð-
ast áður verið framkvæmt 22. janú-
ar sl. og var nótarpokinn þá heill.
„Eftirlitsmaður Matvælastofn-
unar hefur skoðað aðstæður og
viðbrögð fyrirtækisins og er at-
vikið til meðferðar hjá stofnun-
inni. Arctic Sea Farm lagði út
net í samráði við Fiskistofu til að
kanna hvort strok hafi átt sér stað.
Netanna var vitjað bæði á sunnu-
dag og mánudag og enginn lax
veiddist og hefur veiðiaðgerðum
verið hætt,“ segir í tilkynningu frá
Mast.
mm/ Ljósm. af sjókvíaeldi úr safni.
Nokkur breyting varð á hlutdeild
stærstu viðskiptalanda Íslendinga
með sjávarafurðir á árinu 2019 frá
fyrra ári. Það má meðal annars rekja
til loðnubrests á síðasta ári. Var því
talsverður samdráttur í útflutningi
til þeirra landa sem flytja inn mikið
af loðnuafurðum, en þar eru Nor-
egur og Japan fremst í flokki. Af-
urðirnar sem fluttar eru út til þess-
ara tveggja landa eru afar ólíkar.
Noregur er stærsta viðskiptaland
Íslendinga með fiskimjöl og lýsi,
enda ein öflugustu fiskeldisþjóð í
heimi. Dróst útflutningur á sjávar-
afurðum til Noregs saman um rúma
4,9 milljarða króna á árinu 2019 frá
2018, eða sem nemur rúmum 23%
að nafnvirði. Þetta skýrist, að nán-
ast öllu leyti, af samdrætti í útflutn-
ingi á loðnu til Noregs. Fór hlut-
deild Noregs í útflutningsverðmæti
sjávarafurða í heild úr 9,0% í 6,4%
á milli áranna 2018 og 2019. Nor-
egur var fimmta stærsta viðskipta-
land Íslendinga á þann kvarða en
var í fjórða sæti á árinu 2018.
útflutningsverðmæti sjávaraf-
urða til Japans dróst saman um
rúma 4,6 milljarða króna á milli
áranna 2018 og 2019. Jafngild-
ir það samdrætti upp á tæp 53%
að nafnvirði. Fór hlutdeild Jap-
ans í útflutningsverðmæti sjávar-
afurða úr 3,7% í 1,6% á milli ára.
Japan er stærsta viðskiptaland Ís-
lendinga með frystar loðnuafurðir.
Voru Japanir 16. stærsta viðskipta-
þjóð Íslendinga með sjávarafurðir á
árinu 2019 en árið 2018 voru þeir í
tíunda sæti.
mm
Lögreglan á Vesturlandi hefur lagt
tillögu að nýrri lögreglusamþykkt
fyrir umdæmið fyrir sveitarfélögin
í landshlutanum. Þau eru tíu tals-
ins og hafa sveitar- og bæjarstjór-
nir þeirra ein af annarri verið að
afgreiða hana fyrir sitt leyti und-
anfarnar vikur. Er þetta fyrsta lög-
reglusamþykktin fyrir Vesturland
í heild eftir sameiningu lögreglu-
embættanna í landshlutanum 1.
janúar 2015. Frá þeim tíma hefur
lögreglan í landshlutanum starfað
eftir eldri samþykktum, sem hafa
verið í gildi frá því fyrir samein-
ingu embættanna.
úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri
á Vesturlandi, segir málið í ágætis
farvegi. „Vonandi tekst að klára af-
greiðslu málsins á þessu ári,“ seg-
ir hann í samtali við Skessuhorn.
En hvaða þýðingu hefur ný lög-
reglusamþykkt fyrir lögreglu og
íbúa landshlutans? „Það skipt-
ir auðvitað máli fyrir lögreglu og
íbúa og aðra að hér sé í gildi sam-
ræmt regluverk á þessu sviði,“ seg-
ir Lúðvík en bætir því við að ekki
sé ástæða til að segja meira um efni
nýrrar lögreglusamþykktar að svo
stöddu.
kgk/ Ljósm. úr safni/ kgk.
Aðfararnótt sunnudags gerði hvassa
vestanátt við Faxaflóa. Samhliða
hárri sjávarstöðu og miklu ölduróti
gekk talsvert á þegar brimið skall á
landi. Meðfylgjandi myndir voru
báðar teknar næsta morgun og sýna
grjót sem barst á land á Akranesi.
Annars vegar á strandlengjuna við
Langasand og hins vegar á Breið-
inni. mm
Unnið að nýrri lögreglusamþykkt
Loðnubrestur setur mark
á viðskiptalönd
Gat kom á sjókví með
408 tonnum af laxi
Grjót barst á land á Breiðinni.
Ljósm. Facebook/Hilmar Sigvaldason
Vestan sjógangur
Grjót gekk yfir Faxabrautina og göngustíginn við Langasand.
Ljósm. Facebook/Unnur Sigurðardóttir.