Skessuhorn - 19.02.2020, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 19. febRúAR 2020 13
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Hlutverk og ábyrgðarsvið:
• Ber ábyrgð á íþrótta-, æskulýðs- og tómstunda-
málum í Snæfellsbæ
• Hefur umsjón með íþróttamannvirkjum í Snæfellsbæ
og sér um starfsmannahald í íþróttahúsi, sundlaug
og félagsmiðstöð
• Fjárhagsáætlanagerð og fjárhagslega umsýsla
• Skipulag hátíða á vegum Snæfellsbæjar í samvinnu
við markaðs- og kynningarfulltrúa
• Situr fundi íþrótta- og æskulýðsnefndar og
ungmennaráðs
• Stendur einstaka vaktir í íþróttahúsi og sundlaug
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Æskilegt að íþrótta- og æskulýðsfulltrúi hafi
háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af sambærilegum verkefnum
• Reynsla af stjórnun verkefna og starfsmannahalds
• Frumkvæði og metnaður er kostur
• Reynsla og þekking á stjórnsýslu og málefnum
sveitarfélaga er kostur
• Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
• Góð almenn tölvukunnátta
Snæfellsbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í 100% starf íþrótta- og æskulýðsfulltrúa.
Viðkomandi þarf að hafa þekkingu, reynslu og áhuga á íþrótta- og æskulýðsmálum, forvörnum og ungmennastarfi.
Við hvetjum alla, óháð kyni, til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar nk.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst, eigi síðar en 1. apríl.
Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga við Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu.
Umsækjendur eru beðnir að senda umsókn á neðangreind
netföng. Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur
fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsækjendur eru beðnir að
tilgreina a.m.k. tvo umsagnaraðila í umsókn sinni.
Öllum umsóknum verður svarað. Snæfellsbær áskilur sér rétt
til að taka eða hafna öllum umsóknum.
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri, kristinn@snb.is
Lilja Ólafardóttir, bæjarritari, lilja@snb.is
Snæfellsbær | Klettsbúð 4 | 433 6900 | snb.is
félagar í hestamannafélaginu Dreyra
á Akranesi standa í stórræðum þessa
dagana. Síðastliðinn laugardag var
gamalt parket á gólfi félagsheimilins
á Æðarodda tekið upp og um næstu
helgi verður lagt nýtt parket á um 140
fermetra. Starfsemi er mikil í félags-
heimilinu, bæði á vegum hestamanna
sjálfra en einnig er talsvert um útlán á
húsinu fyrir veislur og mannfagnaði.
mm/ Ljósm. Ragnheiður
Helgadóttir.
Magnús Karl Gylfason að leggja lokahönd á verkið ásamt félögum sínum í Dreyra.
Undirbúa fyrir nýtt gólfefni
á félagsheimilið Æðarodda
Gamla parketið tekið upp.
Embætti ríkisskattstjóra og tollstjóra
sameinuðust þann 1. janúar 2020 undir
heitinu Skatturinn.
Markmið sameiningarinnar er bætt
þjónusta við almenning og atvinnulífið.
Afgreiðslustaðir á höfuðborgarsvæðinu
verða áfram á Laugavegi 166 vegna
almennra skatta og fyrirtækjaskrár og í
Tryggvagötu 19 vegna tollamála og
innheimtumála á höfuðborgarsvæðinu.
Skatta- og innheimtumál
442 1000
rsk@rsk.is
Tollamál
560 0300
upplysingar@tollur.is
Við sameinumst
undir einu heiti