Skessuhorn


Skessuhorn - 19.02.2020, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 19.02.2020, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 19. febRúAR 202018 Hann var kjötiðnaðarmaður að ævi- starfi en hefur unnið við fjölmargt á lífsins leið. Lauk þátttöku á vinnu- markaði í árslok 2018 og nýtti það sem kallað er snemmtækan lífeyri. flutti við starfslok heim í litla gula húsið sitt á Akranesi, minnsta skráða íbúðarhúsið á Vesturlandi, einung- is tæpir 25 fermetrar að grunnfleti. Sævar Þór Magnússon hefur búið einn frá því hann flutti úr foreldra- húsum, kom úr stórum systkina- hópi. Vegna áhrifa af vægðarlausu einelti sem hann varð fyrir allt frá barnsaldri segist hann aldrei hafa náð eða þorað að mynda félagsleg tengsl og stofnaði því aldrei til fjöl- skyldu. „Ég einfaldlega kunni það ekki, kunni ekki samskiptin við kon- ur. Því lét ég slíkt einfaldlega vera,“ segir hann. engu að síður kveðst hann vera mikill barnakarl og nýtur þess að fylgjast með frændsystkinum sínum vaxa úr grasi í leik og starfi. Hann kveðst búinn að vinna sig út úr þeim áhrifum sem eineltið hafði á sig, það hafi gerst eins og krafta- verk á fallegum síðsumarsmorgni þegar hann var 61 árs. „Ég stóð í eldhúsinu heima hjá mér og var að búa mig undir að mæta til vinnu. Þarna í útjaðri Húsavíkur horfði ég yfir miðbæinn. Þá rann upp fyrir mér að ég hafði aldrei verið í miðj- unni nokkursstaðar, sífellt á kant- inum og utan við eðlileg samskipti. Jafnvel þótt ég hafi tekið virkan þátt í íþróttum, var ég baktalaður um leið og ég sneri mér við. Svo gerð- ist það bara, á þessum fallega síð- sumarsmorgni norður við Skjálf- andaflóa, að ég náði sátt við sjálfan mig. Skömmin var ekki mín, hafði aldrei verið. Það rann upp fyrir mér að eineltið var ekki mér að kenna. Ég var vissulega fórnarlambið, en gerendurnir voru þeir sem þurftu og þurfa aðstoðar við,“ segir Sævar Þór. Í dag segist hann gjarnan vilja tala um þetta, slíkt geri ekkert ann- að en hjálpa. Segir að einelti sé böl sem ekkert samfélag, lítið sem stórt, eigi eða megi sætta sig við. Orðið einelti hafi hins vegar ekki verið til í orðabókinni þegar hann var ungur á sjötta og sjöunda áratugnum. Því var ekkert gert í því þá. Hann kveðst hins vegar gruna að slíkt grasseri enn á vissum stöðum og ekki sé ver- ið að kveða það niður, þótt orðið sé vissulega fyrir löngu komið í orða- bókina. fólk þurfi því kannski að kynna sér hvað það stendur fyrir. Erfið ár Sævar Þór byrjar að rifja upp fyrstu árin. Hann ólst upp í nágrenni við Andakílsárvirkjun í borgarfirði þar sem faðir hans starfaði. „foreldr- ar mínir höfðu kynnst í Andakíln- um. Pabbi minn hét Magnús Sigur- jón Guðmundsson. Hann kom ung- ur austan af Reyðarfirði til náms í bændaskólanum á Hvanneyri. Þar kynntist hann mömmu, Sigurbjörgu Oddsdóttur, sem ættuð var vestan af fjörðum. Hún hafði flust ásamt foreldrum sínum frá Álfadal á Ingj- aldssandi við Önundarfjörð. Afi var vélstjóri við virkjunina og hafði að mér skilst hrökklast að vestan vegna hegðunar sinnar,“ rifjar Sævar Þór upp. Hann segir að afi sinn hafi gert hluti sem bæði þá og nú eru ófor- svaranlegir, en þá var ekki tekið á slíku eins og gert væri í dag. „Hann var pervert, gerði hluti sem ekki eru réttlætanlegir,“ segir Sævar, en kveðst ekki vilja fara nánar út í þá sálma hér og nú. „enn eru nokk- ur barna hans á lífi,“ segir hann til nánari útskýringar. en hegðun afans spurðist út og hafði áhrif á fjölskyld- una og það viðhorf sem í garð henn- ar ríkti. „Þegar við flytjum úr Anda- kílsvirkjun árið 1958 var ég fimm ára og við orðin nokkur systkinin. Ég man það eins og það hefði gerst í gær að þá, aðeins fimm ára gamall, fannst mér að litið hafi verið á mig og fjölskylduna mína eins og þriðja flokks þegna í samfélaginu. Ég er ekki í nokkrum vafa um að hegðun afa míns hafði mótað þá skoðun sem samfélagið gerði sér upp um okkur. Þetta orðspor afa var látið yfir okkur skyldfólk hans ganga; foreldra mína, systkini mömmu og okkur börn- in. eineltið varð hins vegar miklu meira eftir því sem árin liðu og í raun versnaði það eftir að við flutt- um á Akranes.“ Aulinn fékk tíu! Sævar Þór á sjö alsystkini auk hálf- bróðir sem nýlega er látinn. „ein- eltið fylgdi okkur á Skagann, en við systkinin fóru misjafnlega illa út úr þessu og vorum misgóð að standa þessa ágjöf af okkur. Í mínu tilfelli var einhvern veginn stöðugt reynt að innprenta það í mig að ég væri vitleysingur. Þetta gekk svo langt að ég var farinn að trúa því sjálfur. Því var það sumum jafnöldrum mínum svolítið áfall þegar ég var eitt sinn færður upp um bekk í gagnfræða- skóla. Þegar þangað var komið tók hins vegar ekkert betra við; það tók holskefla á móti manni. Mér er minnisstætt að eitt sinn vorum við látin taka skyndipróf í stærðfræði. Þegar kennarinn kynnti niður- stöðu úr prófinu sagði hann að einn hefði fengið tíu. „Það var einn ykk- ar sem kom skemmtilega á óvart,“ sagði kennarinn. Þegar hann svo nafngreindi mig, heyrðist undrun- ar „HA!“ í bekknum, þetta átti ekki að geta átt sér stað. Vitleysingurinn átti ekki að geta fengið fullt hús fyr- ir próf, en aðrir lægri einkunn. Þetta var að ég held það hræðilegasta sem gat gerst fyrir mig. Að finna hvern- ig bekkjarfélagarnir voru sannfærð- ir um að ég væri hreinræktaður asni, þessi tía mín í stærðfræði gæti ein- faldlega ekki staðist. en engu að síð- ur: Í kjölfarið komu tveir drengir til mín sem höfðu verið þátttakend- ur í stríðninni og buðu mér að vera með í árgangakeppni í handbolta. Mér fannst það dálítil uppreist æru. Ákveðin upphefð og lét því til leið- ast að vera með. Þetta var leið þess- ara tveggja stráka til að biðja mig af- sökunar þó aldrei hafi þeir gert það berum orðum.“ Sævar segir að þar með hafi þátt- taka hans í íþróttum byrjað og náði hann árangri í þeim, keppti í hand- bolta fyrir Knattspyrnufélag Akra- ness. „Mér leið vel í íþróttum og fann mína fjöl ef svo má segja. Um svipað leiti ákvað ég einnig að hvorki áfengi né tóbak yrðu mínir lífsförunautar. Var sautján ára þeg- ar ég tók þá ákvörðun og lærði auk þess að vinna gegn matarfíkn sem ég óttaðist. fannst eins og hún byggði á sömu genunum og gera fólk háð áfengi og tóbaki. Ég hafði átt fyrir- myndir í lífinu sem voru svona víti til að varast,“ segir Sævar. Fann sig í old boys Þrátt fyrir að taka virkan þátt í handboltanum fannst Sævari hann þó áfram vera utan gátta í hópnum. „Þótt ég æfði og spilaði með lið- inu á unglingsárum var ég þó allt- af á kantinum. Var aldrei einn af hópnum og baktalið hófst um leið og ég sneri mér undan. Það hef- ur mér oft verið sagt. Þess vegna á ég enga vini frá þessum tíma, ein- ungis kunningja, fólk sem ég heilsa á götu, en lítið meira. Á síðari árum fór ég að æfa og spila handbolta með old boys hópi, b-liði Vals í Reykja- vík. Þar var mér tekið sem jafningja og fékk að kynnast þeirri tilfinningu að vera einn af hópnum, fullgild- ur félagi. Þar ríkti allt annar and- blær. Þarna var ég kominn yfir þrí- tugt og spilaði með öðrum roskn- um íþróttamönnum, meðal annarra Hermanni Gunnarssyni. Kynnt- ist hinni blíðu manneskju sem hann hafði að geyma, þrátt fyrir alla sína breiskleika. Mér finnst vænt um að hafa kynnst persónunni Hemma, sem var allt önnur en fígúran sem hann spilaði þegar hann var á sjón- varpsskjánum.“ Eðlileg samskipti fjarri heimahögum Sævar segist vera í eðli sínu félags- lyndur og glaðlyndur er hann vissu- lega í spjalli við blaðamann, þótt umræðuefnið sé alvöruþrungið. „Vegna þessa endalausa eineltis fékk ég aldrei að umgangast fólk á mín- um forsendum. Góð samskipti þurfa nefnilega að virka á báða bóga. ef ég reyndi að kynnast fólki, kannski á dansleik eða í gleðskap, rakst ég sí- fellt á veggi. Náði því ekki að mynda vináttu við fólk af hvoru kyninu sem var. Ég stundaði íþróttir, en fékk ekki að vera þátttakandi í þeim félagslega hluta sem því á að fylgja, myndaði því aldrei vinatengsl. eðli- legum samskiptum við fólk kynnt- ist ég því ekki fyrr en ég var flutt- ur í burtu. Held að ég geti sagt að það hafi fyrst gerst sumarið 1976 á Húsavík. Var að vinna þar í tvö sum- ur og var m.a. fenginn ásamt fleirum til að mála appelsínugult hús í bæn- um, sem heitir bjarnahús. Þá var fólk sem stoppaði, sneri sér að mér og fór að spjalla á eðlilegum nótum. Þarna fékk ég í fyrsta skipti að kynn- ast heilbrigðum þorpsbrag, þar sem fólk sýndi mannlega gæsku í sam- skiptum við ungan mann sunnan af landi. Ég man þetta eins og það hefði gerst í gær.“ Bitur reynsla Sævar vann við ýmis störf á sínum yngri árum, einkum á Akranesi, en um tíma í Svíþjóð. „Ungur var ég sendur í sveit og var meðal annars í Neðri-Hrepp hjá einari og Jó- hönnu. Mér hefur alltaf líkað sveita- lífið vel og hefði örugglega keypt mér jörð og farið að búa hefði ég átt á því tök. Ég hef einnig haldið góðum tengslum við frændfólk mitt á Sigmundarstöðum í Þverárhlíð og reyni að hjálpa til við verkin þar á vorin og haustin þegar ég hef getað komið því við.“ Kjötiðn varð ævistarf Sævars. „Ég lærði þá iðn árin 1981-85 þegar ég starfaði fyrir Sláturfélag Suðurlands sem þá var með rekstur hér á Akra- nesi. Vann auk þess ýmis tilfallandi „Ætla mér að ganga keikur inn í sólarlagið“ Sævar Þór var þolandi áralangs eineltis en hefur náð sátt í dag Sævar Þór Magnússon. Framan við litla húsið sitt við Suðurgötu á Akranesi. Meistaraflokkur ÍA í handknattleik karla veturinn 1979-1980. Sævar í markmannstreyjunni fyrir miðri mynd.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.