Skessuhorn - 19.02.2020, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 19. febRúAR 202028
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Pennagrein
Næstkomandi laugardag
verður 74. ársþing Knatt-
spyrnusambands Íslands
haldið í félagsheimilinu
Klifi í Ólafsvík. Þingið var
síðast haldið utan Reykja-
víkur árið 2017, þegar það
var haldið í Vestmannaeyj-
um. Þar áður var það á Ak-
ureyri 2014 og var það í
fyrsta skipti í nærri áratug
sem þingið var haldið utan
höfuðborgarinnar. Akra-
nes, Selfoss og Reykjanes-
bær eru einu bæjarfélögin
til viðbótar þar sem þingið
hefur verið haldið síðustu
þrjátíu ár, utan Reykjavík-
ur. „Það er ánægjulegt að
KSÍ sé að koma hingað inn á okk-
ar svæði og við hlökkum til að taka
á móti þeim. Það er bæði tilhlökk-
un og heiður fyrir okkur hér í Snæ-
fellsbæ að svona stórt sérsamband á
sviði íþróttamála komi og haldi árs-
þing sitt hjá okkur. Við lítum á það
sem viðurkenningu á því góða starfi
sem hér hefur verið unnið á sviði
knattspyrnumála karla og kvenna,“
segir Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Snæfellsbæjar, í samtali við Skessu-
horn.
Allt til reiðu
„Nú er allt klárt og við bíðum bara
eftir fólkinu,“ segir Ólafur Hlynur
Steingrímsson í samtali við Skessu-
horn. Hann er einn þriggja sem
skipa undirbúningsnefnd á veg-
um knattspyrnudeildar Víkings Ó.
vegna þingsins. „Við byrjuðum að
undirbúa þetta í ágúst, tryggja gist-
ingu og fleira slíkt. Síðan höfum við
unnið jafnóðum við ýmislegt ann-
að, s.s. að ganga frá tæknimálum
og fleira sem tilheyrir svona þingi,“
segir Ólafur. „Við viljum að allt
verði eins gott og kostur er og sýna
að vel sé hægt að halda svona við-
burði annars staðar en í Reykavík.
Það er nefnilega allt hægt ef viljinn
er fyrir hendi,“ segir hann.
Von á stórum hópi
Rétt rúmlega 150 manns eiga rétt
til setu á ársþingi KSÍ en auk þess er
búist við að makar fylgi hluta hóps-
ins til Ólafsvíkur. Ólafur á
von á að nálægt 200 manns
sæki bæinn heim vegna
þingsins. „fyrstu starfs-
menn KSÍ koma á fimmtu-
dagskvöld og megnið af
fólkinu á föstudag. flestir
gista fleiri en eina nótt, því
þingið byrjar snemma á
laugardagsmorgun,“ segir
hann. „Á meðan þinginu
stendur fara makar stjórn-
armanna KSÍ í smá skoð-
unarferð um Snæfellsbæ
sem við höfum skipulagt.
Við viljum gera þetta með
stæl, því fyrst og fremst
er þetta góð kynning fyr-
ir bæinn,“ segir Ólafur en
bætir því við að auðvitað sé heil-
mikil á bakvið viðburð sem þenn-
an. „Við fengum Lionskonur hér í
Ólafsvík til að sjá um súpu og brauð
í hádeginu og kaffi á þingdeginum
sjálfum. Sömuleiðis munu þær sjá
um veitingar á stjórnarfundi KSÍ
á föstudeginum, fyrir þingdag.
Við ákváðum að leita til þeirra og
þar með býðst þeim tækifæri til að
afla sér tekna, við vildum fá sem
flesta í bæjarfélaginu til að koma
að þessum viðburði með einhverj-
um hætti,“ segir hann. „Ég hlakka
bara til að sjá þetta gerast, vona að
vel takist til hjá öllu því úrvalsfólki
sem vinnur að þessu og að allir fari
glaðir og kátir heim,“ segir Ólafur
Hlynur Steingrímsson að endingu.
kgk/ Ljósm. úr safni/ KSÍ.
Skallagrímur vann góðan sigur á
Snæfelli, 74-71, þegar liðin mætt-
ust í spennandi Vesturlandsslag í 1.
deild karla í körfuknattleik á mánu-
dagskvöld. Leikið var í Stykkis-
hólmi.
Hólmarar höfðu undirtökin í
upphafi og skoruðu fyrstu sjö stig
leiksins. eftir það tóku borgnes-
ingar góða rispu og komust í 13-15
seint í fyrsta leikhluta. en Snæfell
átti lokaorðið í upphafsfjórðungn-
um og leiddi með fjórum stigum að
honum loknum, 19-15. Hólmarar
héldu nokkurra stiga forystu framan
af öðrum leikhluta. Þá sneru Skalla-
grímsmenn taflinu við, komust yfir
og höfðu fimm stiga forskot í hálf-
leik, 36-41.
Snæfell minnkaði muninn í eitt
stig í upphafi síðari hálfleiks en
Skallagrímsmenn stóðust áhlaupið
og héldu forystunni. Þeir tóku síðan
góða rispu undir lok þriðja leikhluta
og höfðu ellefu stiga forskot fyrir
lokafjórðunginn, 51-62. Snæfelling-
ar minnkuðu muninn um helming
snemma í fjórða leikhluta og þann-
ig var staðan þar til stutt var eftir af
leiknum. Snæfellingar gerðu lokatil-
raun til að stela sigrinum í blálok-
in en höfðu ekki erindi sem erfiði.
Skallagrímur fór með þriggja stiga
sigur af hólmi, 74-71.
Anders Gabriel Andersteg var at-
kvæðamestur Snæfellinga í leiknum
með 23 stig. brandon Cataldo var
með 15 stig og 13 fráköst, Ísak Örn
baldursson skoraði 15 stig og tók
sex fráköst, Guðni Sumarliðason
var með sjö stig og níu fráköst, Aron
Ingi Hinriksson skoraði sjö stig og
benjamin Kil var með fjögur stig.
Hjalti Ásberg Þorleifsson var
stigahæstur Skallagrímsmanna með
27 stig og sjö fráköst að auki. Ken-
neth Simms skoraði 17 stig og reif
niður 21 frákast. Kristján Örn Óm-
arsson var með níu stig og tíu frá-
köst, Isaiah Coddon var með sjö
stig, Davíð Guðmundsson skoraði
fimm stig, Davíð Ásgeirsson skoraði
fjögur, Arnar Smári bjarnason var
með þrjú og Marinó Þór Pálmason
skoraði tvö stig.
Með sigrinum lyfta Skallagríms-
menn sér upp í sjöunda sæti deildar-
innar. Þeir hafa sex stig og tveggja
stiga forskot á Sindra og Snæfell-
inga, sem sitja nú á botninum með
fjögur stig.
Skallagrímur leikur næst á morg-
un, fimmtudaginn 20. febrúar, þeg-
ar liðið mætir Vestra í borgarnesi.
Hólmarar mæta hins vegar Hamri
í Hveragerði á föstudaginn, 21.
febrúar.
kgk/ Ljósm. úr safni/
Skallagrímur.
Hér er settur fram þankagang-
ur um endurnýtingu viðar. Hér á
landi er miklu magni af viði hent
árlega í formi húsgagna og innrétt-
inga. Þarna leynast margar viðar-
tegundir sem erfitt er að fá með
öðrum hætti og eða mjög kostnað-
arsamt að ná til. Hvað húsgögnin
varðar þá er ef til vill ekki um stór
viðarstykki að ræða en það geta
verið allmikil verðmæti í bútunum
sem skólar og handverksfólk geta
auðveldlega notað. Nefna má sem
dæmi fætur af gömlum sófaborð-
um, fætur, setur og arma af stól-
um. Það er ekki bara að um gaml-
an við sé að ræða heldur var og er
enn notaður úrvalsviður til hús-
gagnagerðar. Í innréttingum má
finna góða viðarbúta t.d. í gömlum
skápum svo eitthvað sé nefnt.
Þessar viðartegundir sem ég er að
horfa til eru tegundir eins og palis-
ander, rósaviður, hnota, álmur, eik,
askur, tekk og mahogany svo eitt-
hvað sé nefnt en þessar viðarteg-
undir hafa allar runnið sitt tísku-
skeið hér á landi gegn um árin. Það
má heldur ekki gleyma glugga- og
hurðaefninu en þar leynist margur
gullmolinn eins og gulgreni, göm-
ul sænsk fura og rauðfura. Oftar en
ekki eru þessi viðarstykki máluð
og er þá auðveldast að saga sig og
hefla frá málningunni frekar en að
leysa hana af með kemískum efn-
um.
Hvað er svo hægt að gera úr
þessu gamla rusli spyr einhver?
Það þarf t.d. ekki stór viðarstykki í
rennda hálsfesti né renndan penna
eða hnífsskefti og slíður. Tilvalið er
að saga niður efni í þunnar sneið-
ar í jólaskraut. Þykkara efni er til-
valið í rennibekkinn þar sem verða
til skálar, bollar, staup og stjakar
og svo eru endalausir möguleikar
í útskurði. Rekaviðurinn er og
ónefndur en að sjálfsögðu er hægt
að vinna úr honum allt milli him-
ins og jarðar en erfitt getur reynst
að halda biti í vélum og verkfærum
svo vel sé vegna þess að oftar en
ekki er viðurinn búinn að hnoðast
jafnvel árum saman í fjörunum og
því hafa steinar og sandur þrýstst
langt inn í viðinn.
Rétt er að hafa í huga þegar gam-
all viður er endurnýttur að gæta
þarf vel að nöglum og skrúfum
áður en viðurinn er sagaður niður í
vélum eins og bandsög eða hjólsög.
Yfirleitt er viðurinn frekar þurr og
neistar frá nöglum geta auðveld-
lega tendrað bál þegar minnst varir
í sogkerfum svo skemmast sagar-
blöðin mikið við að fara í nagla og
skrúfur. Í mínum huga eigum við
að bera virðingu
fyrir náttúrunni í
heild sinni en ekki
í pörtum. Við eig-
um að fullnýta það
sem við getum. Parta umhverfis-
hugsjónir eiga ekki rétt á sér, við
eigum að horfa til náttúrunnar sem
einnar heildar og halda utan um
hana þannig. Það er mín skoðun
að okkur beri að fullnýta náttúru-
afurðir eins og við, eins og kostur
er áður en við förum að brenna
hann, hakka niður í spæni eða urða
eins og við gerum í dag.
Trausti Tryggvason
Borgnesingar sigruðu
Vesturlandsslaginn
Þankagangur um endurnýtingu viðar
Ársþing KSÍ haldið í Ólafsvík
á laugardaginn