Skessuhorn


Skessuhorn - 11.03.2020, Qupperneq 16

Skessuhorn - 11.03.2020, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 202016 Blaðamaður Skessuhorns fékk mjög vinalegar móttökur þeg- ar hann kom í heimsókn í Birki- móa í Skorradal fyrir fáeinum dögum. Það voru fjórir kátir ís- lenskir fjárhundar sem tóku á móti gesti ásamt eigendum sínum, Ágústi Elí Ágústssyni og Hrefnu Sigfúsdóttur. Þeg- ar hundarnir voru allir búnir að heilsa settumst við niður í eld- húsi þeirra hjóna og hundarn- ir lögðust niður og létu lítið fyrir sér fara en þeir voru ein- mitt erindi heimsóknarinnar. Við ræddum um ræktun íslenska fjárhundsins auk þess sem Ágúst sagði frá ljósmyndaáhuganum sem hefur spilað stóran þátt í lífi hans alla tíð. Borgarfjörðurinn fallegur Hrefna og Ágúst fluttu í Skorra- dalinn á síðasta ári en þau höfðu áður búið í raðhúsi í Reykjavík í 30 ár. Þegar dóttir þeirra og tengda- sonur keyptu húsið af þeim fyr- ir stuttu fluttu Hrefna og Ágúst í blokkaríbúð. „Það var ekkert gam- an að vera með hundana í blokk en við eigum bústað í Munaðarnesi og vorum því bara alltaf þar,“ seg- ir Hrefna. Það var frekar þröngt um þau í sumarbústaðnum svo þau ákváðu að kaupa sér hús í Skorradal en Hrefna á bróður og mágkonu í Borgarfirðinum. „Okkur þykir Borgarfjörðurinn fallegur og erum kunnug hér því við erum búin að vera mikið í bústaðnum okkar. Svo bara líður okkur vel í sveit og elsk- um alveg að vera flutt úr stress- inu í Reykjavík,“ segir Ágúst. „Það er æðislegt að vera hér, sérstak- lega með alla þessa hunda,“ bætir Hrefna við. Féll fyrir fyrsta hundi Hrefna eignaðist sinn fyrsta íslenska fjárhund fyrir rétt tæpum 50 árum, þegar hún var 13 ára gömul. „Ég var alltaf að suða í mömmu um að fá hund en hún var útivinnandi og sagði það bara ekki ganga. Þegar ég var svo 13 ára minnkaði hún við sig vinnuna og ég ákvað að prufa eina ferðina enn að suða og fékk þá já, en með því skilyrði að það yrði íslensk- ur fjárhundur. Mér var nú nokkuð sama um það, ég vildi bara hund,“ segir Hrefna og hlær. Hún heillaðist af tegundinni og þegar hún kynntist Ágústi heillaðist hann einnig. Fyrsta tíkin hennar Hrefnu var einn fyrsti ættbókarfærði íslenski fjárhundur- inn en tegundin er mjög ung. Hundarnir skipta mestu máli Hrefna og Ágúst ákváðu að hefja ræktun á íslenska fjárhundinum og kom fyrsta gotið hjá þeim árið 2002 og heitir ræktunin þeirra Dranga- ræktun. Í dag eiga þau fimm tíkur sem allar búa hjá þeim auk þess sem þau eiga einn rakka sem býr á fóð- urheimili, þ.e. þau eru skráðir eig- endur hundsins en fólkið sem hund- urinn býr hjá sér alfarið um hann. „Það er bara of erfitt fyrir okkur og hundana að hafa bæði rakka og tíkur saman, það er varla hægt,“ útskýr- ir Ágúst. Þau hafa ræktað samtals 43 hunda á 18 árum sem telst ekki svo mikið en í hverju goti koma venju- lega fjórir til fimm hvolpar. Síð- ast komu þau með got fyrir fimm mánuðum og býr einmitt ein tík hjá þeim úr því goti. „Við komum bara með got þegar það hentar, bæði fyr- ir okkur og tíkina. Það skiptir máli að vanda sig við ræktun og leggja ekki of mikið á tíkurnar,“ segir Hrefna og Ágúst tekur undir það og bætir við að þau láti hverja tík aldrei eiga fleiri en þrjú got. „Hundarnir eru það sem skiptir mestu máli og þeirra heilsa og líðan er alltaf í for- gangi,“ segir Ágúst. Gott geðslag Hvað er það við íslenska fjárhund- inn sem heillar þau hjónin svo mik- ið? „Geðslagið í honum,“ er Ágúst fljótur að svara. „Íslendingurinn er bara eins og barnið þitt, hann elskar þig og vill vera hjá þér. Það hafa ver- ið ákveðnir fordómar fyrir tegund- inni og margir sem halda að þeir séu bara stanslaust gjammandi. En það er ekki þannig. Þeir taka vel á móti þér en svo er það búið og þá eru þeir svona,“ segir Ágúst og bendir á hundana fjóra sem liggja rólegir á gólfinu við fætur eigenda sinna. „Við bjuggum í 30 ár í raðhúsi í Reykja- vík og alltaf með hunda. Það hefði ekki verið hægt ef þeir væru alltaf gjammandi,“ bætir Hrefna þá við. „Eflaust eru flestir hundar svona, elska eigendur sína og vilja vera með þeim. Við bara þekkjum ekki annað en þennan íslenska og viljum ekki þekkja annað,“ segir Ágúst. Hafa þau þá aldrei átt aðra tegund? „Jú, við áttum einu sinni blöndu af Bor- der Collie,“ svarar Ágúst og bætir við að það hafi verið alveg nóg að prófa það einu sinni. „Það er stund- um sagt að þú eigir ekki að fá þér hund sem er betur gefinn en þú og þessi var það svo sannarlega,“ seg- ir hann og hlær. „Hann var erfiður fyrst en svo róaðist hann og var svo- sem alveg yndislegur hundur,“ bæt- ir Hrefna við og Ágúst tekur alveg undir það. Hika ekki við að neita fólki Hvernig er að vera með marga hunda saman á einu heimili, kem- ur þeim alltaf vel saman? „Já, það eru allir hundarnir hér góðir saman. Það getur alveg komið upp spenna en það hefur aldrei komið fyrir að þeir sláist þannig að einhver slas- ist,“ svarar Hrefna og bætir við að það geti verið sérstaklega erfitt að vera með marga rakka saman, sér- staklega ef það er líka tík í hópnum. „Það er líka bara ótrúlega erfitt að vera með rakka og tíkur saman. Það er ótrúlega mikil vinna og líka erf- itt fyrir rakkann þegar tíkin fer að lóða,“ segir Ágúst og bætir við að þau ráðleggi alltaf fólki sem er að fá hvolp hjá þeim að ef það er annar hundur á heimilinu að þau fái sama kyn og þau eiga fyrir. Spurð hvort það sé ekki erfitt að láta hvolp- ana frá sér og treysta ókunnugu fólki fyrir þeim, horfir Ágúst bros- andi á Hrefnu og segir: „Hún venst því allavega aldrei.“ Hrefna tekur undir það en bætir svo við að hún reyni alltaf að vera meðvituð um að hvolparnir komi til með að fara og er því ekki að bindast þeim of mikið. „Maður má ekki leyfa þeim að ná sér alveg því ekki getur maður átt alla Settust að í Skorradal og rækta íslenska fjárhundinn Rætt við hjónin Ágúst og Hrefnu um hundaræktun og ljósmyndun Ágúst og Hrefna með heimilishundana. Ljósm. arg Músarindill. Íslenski fjárhundurinn. Hestur að brosa fyrir myndavélina. Ferjukot í Borgarfirði. Krumminn á flugi.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.