Skessuhorn - 11.03.2020, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 202026
Vísnahorn
Einhvern veginn verð-
ur það oft þannig að
sauðfjárbændur una sér
ekki annarsstaðar betur
en í fjárhúsunum og gætu
einhverjir illa þenkjandi haldið því fram að
þar fyndu þeir andlegan félagsskap. Nú frels-
arinn var líka lagður í fjárhúsjötu segir í forn-
um fræðum enda orti Onni á Kjörseyri:
Okkar leið er vörðuð von um
að víkja burt frá syndunum.
Menn frelsast helst í fjárhúsonum.
-Friður sé með kindunum.
Þó oft hafi veðrið verið leiðinlegt í vet-
ur hafa þó alltaf komið svona sæmilega fær-
ir dagar eða dagspartar inn á milli og raun-
verulega ekki margir mjög kaldir dagar. Fyrir
þá sem hefur orðið kalt í vetur, vil ég þó til
hughreystingar rifja upp vísu Eysteins Gísla-
sonar í Skáleyjum þegar Jóhannes Stefánsson
á Kleifum kvartaði undan kulda.
Þó að núna þér sé kalt
þarftu engu að kvíða.
Þér mun hitna þúsundfalt
þegar tímar líða.
Ýmislegt getur nú orðið okkur gagnlegt
í kuldum og þá ekki síst notadrjúgt að halla
sér að þokkalegum einstaklingi af gagnstæðu
kyni. Nú já eða sama kyni ef viðkomandi er
þannig sinnaður. Sveinbjörn Beinteinsson gaf
vinkonu sinni þennan vitnisburð:
Sortnar flest því sigin er
sól að vesturfjöllum,
ég á mest að þakka þér
þú ert best af öllum.
Að vísu geta slíkar upphitunaraðferðir haft
ákveðnar mannfjölgandi afleiðingar en ætli
þær teljist ekki oftast jákvæðar. Um þær kvað
Ragnar Ingi:
Við sett höfum upp þessa sjálfsögðu vörn,
þar sameinast allir flokkar
því auðvitað verður að búa til börn
til að borga skuldirnar okkar.
Dýrólína Jónsdóttir orti svo gullfallega um
sólina en rétt er að geta þess að fleiri orða-
lagsútgáfur eru til af þessari vísu en ég set hér
þá sem ég lærði fyrst og mér þykir best:
Sólin málar leiðir lands,
ljósin háleit skína.
Hennar strjálast geislaglans
gegnum sálu mína.
Ekki er langt síðan þessa vísu rak á mínar
fjörur án höfundar. Væri gaman að vita hvort
einhver lesenda minna kannast við hana og þá
jafnvel vissi um höfund en vísan er allavega
góð:
Víttu brigð en vektu ei styggð,
víktu hryggð úr sálum.
Hnýttu tryggð við dáð og dyggð,
deyddu lygð í málum.
Einhverjum þótti ég vera full afkastamik-
ill í hinum ljótari vísum Elivoga Sveins í síð-
asta þætti en það var fjarri því að það væri eina
hliðin á honum. Síðasta vísa hans sem hann
yrkir þegar hann kemur helsjúkur og dauð-
vona heim til konu sinnar gefur dálítið aðra
mynd:
Langa vegi haldið hef,
hindrun slegið frá mér,
hingað teygja tókst mér skref
til að deyja hjá þér.
Og eftirmæli hans um Skúla Thoroddsen:
Nú er Skúla komið kvöld,
kempan horfin vorum sjónum
Þó að hríði í heila öld
harðsporarnir sjást í snjónum.
Fyrir ljóðabók sinni Andstæðum hefur
Sveinn nokkurt forspjall og þar í eru meðal
annars þessar vísur:
Hugsun skæra hafa má.
Hlaupa á glærum ísum,
til að læra tökin á
tækifærisvísum.
Kvað ég hnjóð og kerskimál,
kvað um fróða presta,
kvað um glóð og kvað um stál,
kvað um góða hesta.
Á þingi Landssambands sauðfjárbænda fyr-
ir nokkrum árum minntist Sindri Sigurgeirs-
son á að vistmaður á elliheimili hefði kvart-
að undan því að fá óþarflega oft kjúklinga og
varð þessi ræðustúfur Guðbrandi á Staðar-
hrauni að yrkisefni:
Hann er talsmaður sauða og sjúklinga,
svangra, haltra og blindra.
Ef konan gefur þér kjúklinga,
kvartaðu bara við Sindra.
Margir kvarta undan ranglæti heimsins og
gera sér oft töluvert starf úr því. Auðvitað er
ekkert annað að gera en venja sig við það enda
er heimurinn bara ranglátur og þar við situr.
Man ekki betur en eftirfarandi vísur séu eftir
Heiðrek Guðmundsson:
Það er kalt í þessum heimi,
þar er valtur sess.
Lífið allt er öfugstreymi
ungur galt ég þess.
Þó að stundum þyki mér
þungur lífsins róður
þá er Guð í sjálfu sér
sínum börnum góður.
Björn Þorsteinsson (held að sá hafi verið
bankastjóri) orti eitthvert sinn sem útlitið var
eitthvað vafasamt í viðskiptaheiminum (löngu
fyrir hrun samt):
Viðskiptanna á mæðu morgni,
mitt í lána þönkunum,
gott er að eiga hauk í horni
og helst í öllum bönkunum.
Seinna bætti hann við:
Verðbólgan engu eyrir
þótt önnur sé reglan viss,
að græddur er geymdur eyrir
- ef geymslan er úti í Sviss.
Já það gengur sannarlega á ýmsu í heimi
viðskiptanna. Guðmundur Sigurðsson banka-
maður og gamanvísnahöfundur lýsti þessu
þannig á sínum tíma:
Á viðskiptanna vegaleysu
víða leynist klifið bratt.
Mammon bakar mörgum hneisu
manni sem í byrjun reisu
gróðaveginn gengur hratt.
Samvizkuna sumir flekka.
Í sýndargengi kapp er þreytt.
Blankir menn á börum drekka.
borga síðan allt með tékka
akkúrat á ekki neitt.
Í fjármálanna ys og erjum
ýmsa grípur hik og fát.
Á réttvísinnar skreipu skerjum
skakkafall er búið hverjum
sem fer þar ei með fullri gát.
Með þökk fyrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Víttu brigð en vektu ei styggð - víktu hryggð úr sálum
Félags- og barnamálaráðherra,
framkvæmdastjóri UNICEF á Ís-
landi og formaður fræðsluráðs
Borgarbyggðar hafa undirrit-
að samstarfssamning þess efnis að
Borgarbyggð innleiði Barnasátt-
mála Sameinuðu þjóðanna og stefn-
ir að því að verða barnvænt sveit-
arfélag. Sveitarfélögin Akureyrar-
bær, Kópavogur og Hafnarfjörð-
ur hafa undirritað slíkan samning
áður. „Barnasáttmálinn er áttavit-
inn sem allt starf með og fyrir börn
á að byggja á,“ segir Ásmundur
Einar Daðason, félags- og barna-
málaráðherra. „Það er afar gleði-
legt að sjá Borgarbyggð setja mál-
efni barna og fjölskyldna í svo skýr-
an forgang,“ bætir hann við.
Það voru nemendur og starfs-
menn Kleppjárnsreykjadeild-
ar Grunnskóla Borgarfjarðar sem
lögðu fram erindi til sveitarstjórn-
ar fyrr á árinu, þar sem skorað var
á Borgarbyggð að hefja formlegt
innleiðingarferli á samningi Sam-
einuðu þjóðanna um réttindi barns-
ins. Tók sveitarstjórn vel í erindið
og byggir þátttaka Borgarbyggð-
ar í verkefninu þannig á frum-
kvæði barna sem hér búa,“ sagði
Magnús Smári Snorrason formað-
ur fræðsluráðs Borgarbyggðar af
þessu tilefni.
Þau sveitarfélög sem taka þátt
munu fá aðgang að mælaborði
um velferð barna, en það hefur að
geyma safn mælinga úr rannsókn-
um á velferð og stöðu barna og
ungmenna innan sveitarfélagsins,
mælingarnar eru 80 talsins. Nánari
upplýsingar um Barnvæn sveitar-
félög eru aðgengilegar á vefsíðunni
barnvaensveitarfelog.is og geta
áhugasamir einstaklingar, kjörnir
fulltrúar og starfsfólk sveitarfélaga
nálgast þar allar nauðsynlegar upp-
lýsingar um innleiðingu Barnasátt-
málans.
mm
Í ljósi þeirrar óvissu sem uppi er
vegna kórónaveirunnar á Íslandi
ákvað Orka náttúrunnar í síðustu
viku að loka tímabundið Jarðhita-
sýningunni í Hellisheiðarvirkjun.
„Starfsemi Jarðhitasýningarinn-
ar er ólík annarri ferðaþjónustu að
því leyti að hún er í sama húsi og
virkjunarrekstur. Starfsfólk Hellis-
heiðarvirkjunar sinnir mikilvægri
grunnþjónustu með því að halda
starfsemi virkjunarinnar gangandi
og er gripið til lokunarinnar til að
draga úr líkum á að lykilstarfsfólk
veikist. Ekki er grunur um smit og
er því eingöngu um varúðarráð-
stöfun að ræða. Lokunin er ein af
aðgerðum OR og dótturfyrirtækja
til að fyrirbyggja að grunnþjónusta
fyrirtækjanna raskist,“ segir í til-
kynningu.
Yfir vetrartímann koma hátt í
200 gestir á sýninguna á degi hverj-
um. Lokunin sýningarinnar tók
gildi 5. mars.
mm
Stjórn Samfés, samtaka félagsmið-
stöðva og ungmennahúsa á Íslandi,
hefur tekið þá ákvörðun að fresta
SamFestingnum 2020 vegna CO-
VID-19. SamFestingurinn, sem fara
átti fram 20.-21. mars í Laugardals-
höll, er stærsti unglingaviðburður
Íslands þar sem allt að 4.600 ung-
menni af öllu landinu koma sam-
an. Undirbúningur fyrir viðburð-
inn hefur staðið yfir í fleiri mánuði
og tilhlökkunin mikil. Frestun við-
burðar af þessari stærðargráðu þýð-
ir endurskipulag á dagskrá hjá fé-
lagsmiðstöðvum á landsvísu. Sam-
Festingurinn, sem fyrst var haldinn
árið 1991, er mikilvægasti viðburð-
urinn í rekstri samtakanna. „Ver-
um ábyrg, stöndum saman og setj-
um velferð okkar allra í fyrsta sæti,“
segir í tilkynningu.
SamFestingurinn mun fara fram
22.-23. maí í Laugardalshöll. „Við
hjá Samfés fylgjumst áfram vel með
stöðunni og fylgjum leiðbeiningum
og tilmælum landlæknis og heil-
brigðisyfirvalda.“ mm
Borgarbyggð mun inn-
leiða Barnasáttmála SÞ
Á myndinni eru frá vinstri Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráð-
herra, Magnús Smári Snorrason formaður fræðsluráðs Borgarbyggðar og Berg-
steinn Jónsson framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.
Samfés frestar stærsta unglingaviðburði á Íslandi
Loka jarðhitasýningu í Hellisheiðarvirkjun