Skessuhorn - 11.03.2020, Síða 29
MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2020 29
Borgarbyggð –
miðvikudagur 11. mars
Fyrri ritsmiðja af tveimur: Að skrifa
lífið. Fræðandi smiðja Sunnu Dísar
Másdóttur um ævisögur, sjálfsævi-
sögur, skáldævisögur og gráu svæð-
in þar á milli – hvað felst í því að
skrifa um eigið líf eða annarra? Lesin
verða brot úr ævisögum og gerðar
stílæfingar sem veita innblástur til
eigin skrifa. www.safnahus.is.
Stykkishólmur –
miðvikudagur 11. mars
Snæfell tekur á móti Grindavík í
Domino‘s deild kvenna í körfuknatt-
leik. Leikið verður í íþróttahúsinu í
Stykkishólmi frá kl. 19:15.
Grundarfjörður –
miðvikudagur 11. mars
Grundarfjörður fær Hauka B í heim-
sókn í 4. deild karla í körfuknattleik.
Leikið verður í Grundarfirði kl. 19:15.
Snæfellsbær –
miðvikudagur 11. mars
Ókunnugur - Lokasýning í Rifi.
Ókunnugur er krefjandi, óheflað
og fordómalaust samtal við áhorf-
endur. Aðaláhersla þessa samtals er
að ræða við ungt fólk um birting-
armyndir kynbundins ofbeldis og
samskipti kynjanna. Útgangspunkt-
ur verksins er sá að ungt fólk sé al-
mennt á móti ofbeldi, þó því hafi
ekki endilega auðnast að finna réttu
leiðirnar til að taka þátt í barátt-
unni gegn því. Þó svo að viðfangs-
efni verksins séu eldfim og þörfin
á breytingum mikil er verkinu ekki
ætlað að predika. Þess í stað er því
ætlað að vera hvetjandi, heiðarlegt,
fyndið og skemmtilegt og nálgunin
sniðin að því að allir geti tengt við
verkið, óháð því hvort áhorfendur
hafi reynslu af eða mikla þekkingu
á viðfangsefnum þess. Frystiklefinn,
í samstarfi við Kvennaathvarfið og
Þjóðleikhúsið. Höfundar: Gréta Krist-
ín Ómarsdóttir og Kári Viðarsson
Snæfellsbæ –
fimmtudagur 12. mars
Íþrótta- og æskulýðsnefnd Snæ-
fellsbæjar býður á áhugaverðan
fyrirlestur um bætta vellíðan með
Begga Ólafs í Grunnskóla Snæfells-
bæjar í Ólafsvík kl. 17:00. Beggi Ólafs
er fyrirlesari og knattspyrnumað-
ur sem stundar meistaranám í hag-
nýtri jákvæðri sálfræði og þjálfunar-
sálfræði og hefur mikla ástríðu fyrir
sálfræði og vellíðan. Frítt á fyrirlestur
og allir velkomnir!
Borgarnes –
fimmtudagur 12. mars
Myndamorgunn á vegum Héraðs-
skjalasafns kl. 10. Gestir aðstoða við
að greina ljósmyndir úr safnkosti.
Akranes – föstudagur 13. mars
ÍA og KR B mætast í 2. deild karla
í körfuknattleik. Leikið verður í
íþróttahúsinu við Vesturgötu frá kl.
19:15.
Borgarnes – föstudagur 13. mars
Skallagrímur körfubolti ætlar að
halda námskeið í grunnskólan-
um frá kl 19-21 þar sem farið er yfir
helstu störf og skyldur dómara í leik.
Námskeiðið er opið öllum. Fyrsta
skref í menntun dómara ef áhuga-
samir vilja prófa það, einnig mjög
gott fyrir leikmenn sem og áhuga-
sama áhorfendur til að skilja leikinn
ennþá betur. Einar Þór Skarphéðins-
son úrvalsdeildardómari til fjölda
ára og Þorkell Már Einarsson, dóm-
ari og lærður eftirlitsmaður munu
halda námskeiðið. Þessu námskeiði
fylgja engar hæfniskröfur og engar
kvaðir.
Akranes – laugardagur 14. mars
Laugardagar eru fjölskyldudag-
ar á bókasafninu. Skiptimarkaður á
púslum.
Akranes – laugardagur 14. mars
9. bekkur í Brekkubæjarskóla mun
standa fyrir sýningu á Bókasafni
Akraness dagana 14. - 31. mars. Verk
nemenda eru unnin með loftslags-
vanda heimsins í huga en með því
vilja nemendur vekja fólk til um-
hugsunar um þann raunverulega
vanda sem þeirra kynslóð stendur
frammi fyrir.
Snæfellsbær –
laugardagur 14. mars
Sýningin Varist eftirhermur með
Sóla Hólm í Frystiklefanum kl. 20:30.
Akranes – sunnudagur 15. mars
Leiksýningin Dýrin í Hálsaskógi verð-
ur frumsýnd í Bíóhöllinni á Akranesi
kl. 12. Forsala miða á Tix.is.
Akranes – þriðjudagur 17. mars
Opið hús verður í Fjölbrautaskóla
Vesturlands þriðjudaginn frá kl.
17-19. Kennarar, nemendur og
náms- og starfsráðgjafar verða á
staðnum. Kynning á námsframboði,
inntökuskilyrðum, heimavist, mötu-
neyti, félagslífi, afreksíþróttum og
fleira. Allir velkomnir - Sérstaklega
10. bekkingar og foreldrar/forráða-
menn þeirra.
Borgarbyggð –
miðvikudagur 18. mars
Bingó hjá Félagi aldraðra Borgar-
fjarðardölum í Brún kl. 13:30.
Hús í sveit eða bústaður
Óska eftir að leigja gamalt hús í sveit
eða sumarbústað í langtímaleigu
í póstnúmerum 301, 310 eða 320.
Hafið samband í tölvupósti: jons-
ragnh@gmail.com.
Óska eftir geymslu
Óska eftir geymslu í langtímaleigu.
Upplýsingar á netfanginu jons-
ragnh@gmail.com.
Raðhús til leigu
120 fm, þriggja svefnherbergi rað-
hús í Hvalfjarðarsveit til leigu frá
1. júní til 31. desember eða jafnvel
lengur. Húsgögn og tæki fylgja helst,
einnig yndisleg útikisa. Sendið línu í
tölvupósti á netfangið hus.i.hvalfjar-
darsveit@gmail.com til að fá frekari
upplýsingar.
Á döfinni
Markaðstorg
Vesturlands
LEIGUMARKAÐUR
Nýfæddir Vestlendingar
Getir þú barn þá birt-
ist það hér, þ.e.a.s.
barnið!
www.skessuhorn.is
Finna leiðir til að efla þig og styrkja•
Fá upplýsingar um nám og störf•
Fá færni þína metna•
Fá aðstoð við ferliskrá eða færnimöppu•
Takast á við hindranir í námi og starfi•
Finna hvar styrkleikar þínir liggja•
Komdu þá til okkar og fáðu viðtal við
náms- og starfsráðgjafa sem mun aðstoða
þig eftir fremsta megni.
Pantaðu viðtal:
vala@simenntun.is eða í síma 437-2391.
Langar þig að:
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
4. mars. Stúlka. Þyngd:
4.218 gr. Lengd: 54 cm.
Foreldrar: Alexandra Rut
Oddsdóttir og Ketill Vil-
hjálmsson, Akranesi. Ljós-
móðir: Helga Valgerður
Skúladóttir.
6. mars. Stúlka. Þyngd:
3.488 gr. Lengd: 51 cm.
Foreldrar: Júlía Shamar-
dina Alexandersdóttir og
Runólfur Óttar Kristjáns-
son, Borgarfirði. Ljósmóð-
ir: Ásthildur Gestsdóttir.
6. mars. Stúlka. Þyngd:
3.462 gr. Lengd: 51 cm.
Foreldrar: Svava Sjöfn
Kristjánsdóttir og Egill
Þórsson, Hvanneyri. Ljós-
móðir: Valgerður Ólafs-
dóttir.
7. mars. Stúlka. Þyngd:
3.912 gr. Lengd: 52 cm.
Foreldrar: Sigrún Ágústa
Helgudóttir og Rúnar
Freyr Ágústsson, Akranesi.
Ljósmóðir: Jóhanna Ólafs-
dóttir.
Frestun tónleika
Fyrirhuguðum tónleikum karlakóranna Svana,
Söngbræðra og Þrasta í Tónbergi á
Akranesi 14. mars nk.,
sem auglýstir voru í síðasta Skessuhorni,
hefur verið frestað um óákveðinn tíma.