Skessuhorn - 11.03.2020, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2020 31
Skallagrímur vann nauman sigur
á Snæfelli í dramatískum Vestur-
landsslag í Domino‘s deild kvenna
í Borgarnesi á miðvikudagskvöld.
Eftir spennandi lokamínútur voru
heimakonur stigi yfir þegar loka-
flautan gall, 70-69 og fóru því með
sigur af hólmi.
Snæfell réði ferðinni í upphafi
leiks og skoraði ellefu stig gegn
tveimur fyrstu sex mínúturnar. Þá
tóku Skallagrímskonur við sér og
náðu að jafna metin áður en fyrsti
leikhluti var úti, 13-13. Þær höfðu
síðan yfirhöndina í öðrum fjórð-
ungi, tókst að slíta sig aðeins frá
Snæfelli áður en leikhlutinn var
hálfnaður og leiddu með ellefu
stigum í hálfleik, 39-28.
Snæfellskonur komu til baka eft-
ir hléið. Hægt en örugglega gerðu
þær forystu Skallagríms að engu í
þriðja leikhluta. Undi lok leikhlut-
ans komust þær síðan yfir og leiddu
með tveimur stigum fyrir lokafjórð-
unginn, 53-55, en hann átti eftir að
verða æsispennandi. Skallagríms-
konur minnkuðu muninn í tvö stig
en Snæfell jók forystuna á nýjan
leik. Þá áttu Hólmarar slæman kafla
þar sem boltinn vildi ekki ofan í. Á
sama tíma náðu Skallagrímskon-
ur að komast yfir. Snæfell minnk-
aði muninn í eitt stig þegar örfáar
sekúndur lifði leiks en nær komust
þær ekki. Skallagrímur sigraði með
minnsta mögulega mun, 70-69.
Keira Robinson átti stórleik fyrir
Skallagrím, skoraði 30 stig, tók tíu
fráköst og gaf átta stoðsendingar.
Emilie Hesseldal var með 19 stig og
13 fráköst, Maja Michalska skoraði
tíu stig, Mathilde Colding-Poulsen
var með fjögur stig og fimm fráköst,
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir skoraði
þrjú stig og gaf fimm stoðsending-
ar og Gunnhildur Lind Hansdóttir
skoraði tvö stig.
Emese Vida var atkvæðamest í
liði Snæfells með 25 stig og tólf frá-
köst. Amarah Coleman skoraði 18
stig, tók sjö fráköst og gaf sex stoð-
sendingar, Veera Pirttinen skoraði
13 stig og gaf sex stoðsendingar,
Rebekka Rán Karlsdóttir skoraði
fimm stig, Gunnhildur Gunnars-
dóttir var með þrjú stig og fimm
stoðsendingar, Björg Guðrún Ein-
arsdóttir skoraði þrjú stig og Anna
Soffía Lárusdóttir skoraði tvö stig.
Staða liðanna í deildinni er þann-
ig að Skallagrímskonur sitja í þriðja
sæti með 30 stig, jafn mörg stig og
Keflavík í sætinu fyrir neðan en
hafa leikið einum leik betur.
Snæfell siglir lygnan sjó í sjötta
sæti deildarinnar með 14 stig, átta
stigum fyrir ofan Breiðablik en 14
stigum á eftir Haukum.
Bæði lið leika í kvöld, miðviku-
daginn 11. mars. Skallagrímur
mætir KR á útivelli en Snæfell fær
Grindavík í heimsókn í Stykkis-
hólm. kgk/ Ljósm. Skallagrímur.
Snæfell beið lægri hlut gegn Álfta-
nesi þegar liðin mættust í 1. deild
karla í körfuknattleik á sunnudags-
kvöld. Leikið var í Stykkishólmi.
Eftir jafnan og spennandi fyrri
hálfleik tóku gestirnir stjórnina í
þeim síðari og sigruðu að lokum
með 13 stigum, 77-90.
Jafnræði var með liðunum fram-
an af fyrsta leikhluta og þau skipt-
ust á að leiða. Snæfellingar luku
upphafsfjórðungnum með góðum
kafla og höfðu sex stiga forskot að
honum loknum, 20-14. Gestirnir
komu sér alveg upp að hlið Hólm-
ara snemma í öðrum fjórðungi og
náðu síðan forystunni. Snæfell-
ingar fylgdu þeim eins og skugg-
inn síðustu mínútur fyrri hálfleiks
og aðeins munaði einu stigi á lið-
unum í hléinu. Álftanes leiddi með
47 stigum gegn 46 stigum Snæfell-
inga.
Gestirnir juku forystu sína í fjög-
ur stig í upphafi síðari hálfleiks áður
en Snæfellingar minnkuðu muninn
í eitt stig í stöðunni 49-50. Eftir
það skildu leiðir. Hólmarar skor-
uðu aðeins fimm stig til viðbótar
það sem eftir lifði þriðja leikhluta
gegn 24 stigum gestanna. Álftanes
leiddi því með 20 stigum fyrir loka-
fjórðunginn, 54-74. Snæfellingar
reyndu hvað þeir gátu að vinna á
forystu gestanna, náðu að minnka
muninn í tíu stig þegar fjórði leik-
hluti var hálfnaður en nær kom-
ust þeir ekki. Að lokum fór svo að
Álftanes sigraði 77-90.
Anders Gabriel Andersteg var at-
kvæðamestur í liði Snæfells með 24
stig og átta fráköst. Brandon Ca-
taldo skoraði 16 stig, tók tólf frá-
köst og varði fimm skot, Ísak Örn
Baldursson skoraði 14 stig, Benja-
mín Ómar Kristjánsson og Aron
Ingi Hinriksson voru með átta stig
hvor, Guðni Sumarliðason skoraði
sex stig og tók sex fráköst og Ell-
ert Þór Hermundarson skoraði eitt
stig.
Samuel Prescott jr. fór fyrir liði
Álftnesinga með 30 stig og fimm
stolna bolta. Vilhjálmur Kári Jens-
son skoraði 14 stig og tók sjö frá-
köst, Dúi Þór Jónsson skoraði tólf
stig og tók tíu fráköst og Brynjar
Magnús Friðriksson var með ellefu
stig og níu fráköst.
Snæfellingar sitja á botni deild-
arinnar með fjögur stig, jafn mörg
og Sindri í sætinu fyrir ofan en hafa
leikið tveimur leikjum meira. Næst
leika Hólmarar gegn Breiðabliki á
útivelli á morgun, fimmtudaginn
12. mars.
kgk/ Ljósm. úr safni/ sá.
Skallagrímsmenn máttu játa sig
sigraða gegn Hamri eftir tvífram-
lengdan leik, 109-122, þegar lið-
in mættust í 1. deild karla í körfu-
knattleik. Leikið var í Borgarnesi á
sunnudagskvöld.
Gestirnir frá Hveragerði höfðu
heldur yfirhöndina í upphafi leiks
en Skallagrímsmenn fylgdu fast
á hæla þeirra. Þegar komið var
fram yfir miðjan fyrsta leikhluta
náðu Borgnesingar góðum kafla og
leiddu með ellefu stigum eftir upp-
hafsfjórðunginn, 30-19.
Skallagrímur leiddi með tíu stig-
um eða svo lengst af öðrum leik-
hluta, eða allt til loka fyrri hálfleiks.
Þá gerðu gestirnir áhlaup, minnk-
uðu muninn í tvö stig en Borgnes-
ingar skoruðu síðustu körfu hálf-
leiksins og leiddu með fimm stig-
um í hléinu, 52-47.
Skallagrímur jók muninn í ell-
efu stig í upphafi síðari hálfleik en
þá tóku Hamarsmenn við sér. Þeir
áttu góðan kafla um miðbik þriðja
leikhluta og komust fjórum stigum
yfir í stöðunni 66-70. En Borg-
nesingar áttu lokaorðið í leikhlut-
anum og fóru með fimm stiga for-
ystu inn í lokafjórðunginn, 77-72.
Gestirnir komust yfir þegar fjórði
leikhluti var rúmlega hálfnaður og
upphófust þá æsispennandi loka-
mínútur þar sem liðin skiptust á
að skora. Þegar 20 sekúndur lifðu
leiks var Hamar tveimur stigum
yfir en Borgnesingar jöfnuðu met-
in af vítalínunni í 95-95. Meira var
ekki skorað í venjulegum leiktíma
og því þurfti að grípa til framleng-
ingar.
Hvergerðingar byrjuðu fram-
lenginguna betur og skoruðu sjö
stig í röð. Borgnesingar svöruðu
með 9-2 kafla og og jöfnuðu met-
in í 104-104 þegar fimm sekúnd-
ur voru eftir á klukkunni svo grípa
þurfti til annarrar framlenging-
ar. Þar áttu Hamarsmenn einfald-
lega meira eftir. Borgnesingar hittu
ekki úr skotum sínum og skoruðu
aðeins tvö stig í annarri framleng-
ingu. Á meðan sigldu gestirnir
fram úr og sigruðu að lokum með
13 stigum, 109-122.
Arnar Smári Bjarnason átti stór-
leik fyrir Skallagrím og skoraði
34 stig. Hjalti Ásberg Þorleifsson
skoraði 20 stig og gaf níu stoðsend-
ingar, Kenneth Simms skoraði 16
stig, tók 18 fráköst, gaf átta stoð-
sendingar og varði sex skot. Krist-
ófer Gíslason var með ellefu stig,
Davíð Guðmundsson skoraði tíu
stig, Kristján Örn Ómarsson var
með átta stig og fimm stoðsend-
ingar, Bergþór Ægir Ríkharðsson
sjö stig og fimm fráköst og Almar
Örn Björnsson skoraði þrjú stig.
Everage Lee Richardson var at-
kvæðamestur í liði Hamars og setti
upp þrennu. Hann skoraði 32 stig,
tók 14 fráköst og gaf ellefu stoð-
sendingar. Ragnar Jósef Ragnars-
son skoraði 28 stig og tók fimm
fráköst, Michael Philips skoraði
20 stig, tók 15 fráköst og varði sex
skot, Pálmi Geir Jónsson var með
17 stig, níu fráköst og sjö stoðsend-
ingar, Matej Buovac skoraði 16 stig
og tók níu fráköst og Björn Ásgeir
Ásgeirsson skoraði níu stig.
Skallagrímur situr í sjöunda sæti
deildarinnar með sex stig, tveimur
stigum meira en Sindri og Snæfell í
sætunum fyrir neðan en tíu stigum
á eftir Selfyssingum. Næsti leikur
Skallagríms er útileikur gegn topp-
liði Hattar á morgun, fimmtudag-
inn 12. mars.
kgk
Dramatískur
Vesturlandsslagur
Leiðir skildu í seinni hálfleik
Tap eftir tvíframlengdan leik
Arnar Smári
Bjarnason gerist
aðgangsharður við
körfu Hvergerðinga.
Ljósm. Skallagrímur.
Nýverið greindi Fimleikasamband
Íslands frá þjálfarahópi landsliðsins
fyrir Evrópumótin í hópfimleikum
2020. Þórdís Þráinsdóttir, yfirþjálf-
ari Fimleikafélags Akraness, er þar
á meðal þjálfara í teymi blandaðs
liðs unglinga.
Evrópumótið verður haldið í
Ballerup Super Arena í Kaup-
mannahöfn dagan 14.-17. október
næstkomandi. Fimleikasamband
Íslands stefnir að því að senda tvö
fullorðinslið til keppni; kvenna-
lið og blandað lið, auk stúlknaliðs
í unglingaflokki og blandaðs liðs
unglinga.
kgk
Þórdís Þráinsdóttir, yfirþjálfari
FIMA og landsliðsþjálfari í fim-
leikum.
Ljósm. Fimleikasamband Íslands.
Þórdís í landsliðsþjálfarateymið