Skessuhorn - 13.05.2020, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2020 9
LANDBÚNAÐAR
K L A S I N N
Lumar þú á lausn?
Viðskiptahraðall fyrir nýjar lausnir í
landbúnaði, haftengdum iðnaði og smásölu.
Umsóknarfrestur til 15.júní
Laugargerðisskóli, Snæfellsnesi
auglýsir eftir starfsfólki
Við óskum eftir:
Mátráði til að sinna mötuneyti skólans. Um er að ræða 85%
starf. Hlutverk matráðar er m.a. að bjóða upp á næringarríkt
og hollt fæði á skólatíma í samræmi við manneldismarkmið.
Sjá um aðföng, þrif á eldhúsi og matsal, útbúa matseðla og
stýra starfsemi eldhússins í samráði við skólastjóra.
Við óskum eftir samstarfsliprum einstaklingi hvort heldur sem
er karli eða konu. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á því að
vinna með fólki á öllum aldri og hafa ánægju af samskiptum
við börn og unglinga.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar
en 13. ágúst 2020.
Íþróttakennara í 9 kennslustundir, viðkomandi þarf að •
hafa réttindi baðvarða.
Afleysingakennara í 6 mánuði frá miðjum ágúst til miðs •
febrúar 2021. Um er að ræða um 50% stöðu um-
sjónarkennara yngri deildar skólans.
Starfsfólk skólans sinnir bæði starfi og eða kennslu í •
leik– og grunnskóladeild.
Við leikskóladeild Laugargerðisskóla óskum við eftir:
Deildarstjóra í 80-100% starf.•
Leikskólakennara í 100% starf.•
Starfsmanni á leikskóla í 40% starf.•
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri, Ingveldur Eiríksdót-
tir í síma 768-6600, 435-6600 og í tölvupósti, skolastjori@
laugargerdisskoli.is
Áhugasamir vinsamlegast sendið umsókn til skólastjóra á
rafrænu formi með upplýsingum um náms- og starfsreynslu.
Umsóknarfrestur er til 22. maí 2020.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Í síðustu viku héldu félagar í Lions-
klúbbi Akraness fund í húsakynn-
um Heilbrigðisstofnunar Vestur-
lands á Akranesi. Búið var að opna
sjúkrahúsið fyrir gestakomum, en
fundir klúbbsins hafa legið niðri
síðan í mars þegar kórónaveiran
kom upp. Á fundinn mættu jafn-
framt forstjóri HVE og deildar-
stjórar á sjúkrahúsinu en klúbbur-
inn færði HVE fjögur ný tæki að
gjöf. Um er að ræða þrjá monitora
til vöktunar á líðan sjúklinga og
eina skilvindu sem starfsfólk rann-
sóknastofu notar við blóðrann-
sóknir. Gjafir þessar eru að and-
virði 3.470.000 krónur. Jóhanna
Fjóla Jóhannesdóttir forstjóri
HVE veitti gjöfunum viðtöku og
færði klúbbnum kærar þakkir fyrir
rausnarskap nú sem fyrr. Hún gat
þess að Lionsklúbbur Akraness gaf
tæki að andvirði 15 milljónir króna
árin 2017-2019 og nú bætist þessi
höfðinglega gjöf við þá upphæð.
Benjamín Jósefsson forseti
Lionsklúbbs Akraness segir að auk
gjafa til HVE hafi klúbburinn á því
starfsári sem nú er að líða styrkt
söfnun vegna Rauðu fjaðrarinnar
um 100 þúsund krónur, Björgun-
arfélag Akraness um 200.000 kr,
Mæðrastyrksnefnd um 150.000
krónur og gefið spjaldtölvur á
Höfða fyrir 248 þúsund krónur.
Þá hafa Lionsklúbbar á starfssvæði
HVE gefið fæðingarrúm og lagði
hver klúbbur fram 145 þúsund
krónur í það verkefni.
Ein helsta fjáröflunarleið Lions-
klúbbs Akraness er umsýsla og
leiga á ljósakrossum á leiði í Akra-
neskirkjugarði á aðventunni.
Benjamín segir að nú sé hafin end-
urnýjun á búnaði í kirkjugarðin-
um, en keyptir verða nýir krossar,
lagnir og annar búnaður að and-
virði rúm ein milljón króna. Þá gaf
klúbburinn til alþjóðahjáparsjóðs
Lions 215.000 krónur til minning-
ar um félaga þeirra Ófeig Gests-
son sem lést fyrir um einu ári síð-
an. „Þrátt fyrir að við séum að fjár-
festa í nýjum búnaði í kirkjugarð-
inn er ég ánægður með hvað við í
Lionsklúbbi Akraness höfum náð
að leggja mörgum góðum málefn-
um lið,“ segir Benjamín í samtali
við Skessuhorn.
mm
Fulltrúar HVE ásamt Benjamín Jósefssyni forseta klúbbsins við tæki svipað þeim mónitorum sem Lionsmenn gáfu nú.
Lionsmenn færðu HVE á
Akranesi góðar gjafir