Skessuhorn - 13.05.2020, Qupperneq 14
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 202014
Bjarnheiður Hallsdóttir var fyrir
helgi endurkjörin formaður Sam-
taka ferðaþjónustunnar til næstu
tveggja ára. Bjarnheiður var kjör-
in formaður SAF á vormánuð-
um 2018 og segir ekki annað hafa
komið til greina en að gefa kost á
sér áfram. „Það má eiginlega segja
að um leið og ég byrjaði hafi stóru
krísurnar skollið á ferðaþjónustuna,
hver á eftir annarri,“ segir Bjarn-
heiður og hlær. „Krónan var orðin
það sterk árið 2018 að það var farið
að bíta verulega og var það eigin-
lega fyrsta áskorunin mín sem for-
maður SAF,“ útskýrir hún. Ári eft-
ir að Bjarnheiður var kjörin for-
maður varð WOW air gjaldþrota
með tilheyrandi höggi fyrir ferða-
þjónustuna. „Þá voru vinnudeilur
og verkfallsaðgerðir sem beindust
að ferðaþjónustunni í fyrravor líka,
auk þess sem Boeing Max flugvél-
ar Icelandair voru kyrrsettar. Okk-
ur þóttu þetta allt svo stórir og
miklir atburðir, enda miklar krís-
ur í venjulegum skilningi. En í dag
setur maður þetta í allt annað sam-
hengi og við myndum glöð skipta
á núverandi ástandi og krísum fyrri
ára, ef það væri í boði,“ segir Bjarn-
heiður.
Berjast gegn
ólöglegri starfsemi
Samtök ferðaþjónustunnar eru
hagsmunasamtök sem hafa það
hlutverk að standa vörð um hags-
muni ferðaþjónustunnar í land-
inu en ferðaþjónustan hefur vax-
ið mjög hratt síðustu ár. „Laga- og
reglugerðaumhvefið, sem og upp-
bygging grunninnviða, hefur ekki
alveg haldið í við vöxt greinarinn-
ar. Það hefur verið að mörgu að
hyggja í þeim málum og komum
við frá SAF inn með ákveðið aðhald
til stjórnvalda. Við höfum sýn á at-
vinnugreinina sem löggjafarvaldið
hefur ekki og þegar það eru lögð
fram frumvörp eða slíkt komum við
með ábendingar og athugasemd-
ir. Við höfum til að mynda mikið
verið að berjast fyrir því að ólögleg
starfsemi í ferðaþjónustunni verði
stöðvuð, til dæmis svört gististarf-
semi og svo ekki síður allar þessar
erlendu rútur og erlenda starfsfólk
sem oft stunda félagsleg undirboð
og skekkir þar með samkeppnis-
stöðuna,“ útskýrir Bjarnheiður.
Gæta þess að fyrirtæki
fari ekki í þrot
Nú á tímum kórónuveirunnar er
ljóst að ferðaþjónustan hefur feng-
ið mikið högg á sig og enn á eftir
að koma í ljós hverjar afleiðingarn-
ar muni verða. En hvert er hlutverk
Samtaka ferðaþjónustunnar í þessu
ástandi? „Aðaláherslan hjá okkur er
að tryggja að það lifi nógu stór hluti
ferðaþjónustufyrirtækja þennan far-
aldur af. Það þurfa að vera fyrirtæki
starfandi og tilbúin þegar eitthvað
fer að gerast aftur, því það gæti
gerst hratt og það væri vonlaust ef
kannski 90% ferðaþjónustufyrir-
tækja væru orðin gjaldþrota. Það
tekur tíma að byggja upp ný fyr-
irtæki og ef við erum ekki tilbúin
að taka á móti ferðamönnum þeg-
ar landið og markaðir opnast mun
það kosta þjóðina mikla fjármuni,
störf og hafa alvarlegar samfélags-
legar afleiðingar. Okkar markmið
er að tryggja að þau fyrirtæki sem
allt benti til að hefðu blómstrað
undir venjulegum kringumstæðum,
verði tilbúin að hefja starfsemi um
leið og það rofar til,“ svarar hún.
Ánægð með aðgerðir
ríkisstjórnarinnar
Aðspurð segist Bjarnheiður sér-
staklega ánægð með aðgerðarpakka
þrjú sem ríkisstjórnin kynnti fyr-
ir síðustu mánaðamót. „Við urð-
um fyrir vonbrigðum með pakka
tvö og ákváðum þá að herða róð-
urinn og það skilaði sér. Við innan
ferðaþjónustunnar erum að ég held
flest mjög ánægð með pakka þrjú,
þó vissulega sumt eigi eftir að út-
færa. Það hafa margir nýtt sér það
úrræði að segja upp starfsmönnum,
þar sem ríkissjóður stendur undir
stórum hluta launagreiðslna á upp-
sagnarfresti. Það er kannski undar-
legt að tala um uppsagnir sem já-
kvæðar, en í ljósi ástandsins og erf-
iðrar lausafjárstöðu fyrirtækjanna
er nauðsynlegt að hægt sé að segja
upp fólki án þess að fyrirtækin sitji
eftir með kostnað við uppsagnar-
frestinn og fari því jafnvel á haus-
inn. Það er mikilvægt að muna að
þetta eru ekki uppsagnir sem bein-
ast að persónum starfsmanna held-
ur var fólki aðeins sagt upp af þeim
sökum að fyrirtækin geta ekki stað-
ið undir launakostnaði eins og er.
Það er að sjálfsögðu markmiðið að
ráða þetta sama fólk aftur til starfa
þegar starfsemi kemst aftur í gang,“
segir Bjarnheiður.
Íslendingar dropi í hafið
í stóra samhenginu
Hvernig sér Bjarnheiður sumarið á
Íslandi? „Það sveiflast dag frá degi
verð ég að segja. En ég hreinlega
„Ferðaþjónustan mun koma okkur
upp úr þessu aftur“
Rætt við Bjarnheiði Hallsdóttur formann Samtaka ferðaþjónustunnar
veit ekki hvernig þetta sumar mun
verða,“ svarar hún en bætir því þó
við að hún sé bjartsýn fyrir sumr-
inu. „Ég er sérstaklega bjartsýn á
að ferðaþjónustan fari fyrr af stað
en við höldum. Ég finn það sterkt,
bæði hér heima og um allan heim,
að fólk finnst orðið tímabært að
skoða hvernig hægt sé að koma öllu
af stað aftur. Ég er viss um að það
verði ekki allt opnað á einu bretti,
það verður gert hægt, en ég held
það fari að gerast fljótlega.“
Íslendingar hafa verið hvatt-
ir til að ferðast innanlands í sum-
ar og þannig sýna ferðaþjónust-
unni stuðning. En eru Íslending-
ar nógu margir til að geta komið
fyrirtækjum í ferðaþjónustunni til
bjargar? „Nei, innanlandsmarkað-
urinn er bara dropi í hafið miðað
við þann stóra hóp sem ferðaþjón-
ustan er vön. Við erum að tala um
kannski 200 þúsund manns miðað
við tvær milljónir. Það er vitað mál
að starfsemi ferðaþjónustunnar um
allt land verður skert í sumar, stóru
hótelkeðjurnar halda bara hluta
hótelanna opnum. Það er ekki enn
orðið ljóst hvernig opnun á ýmissi
afþreyingu kemur til með að vera,
þar spilar inn í bæði kostnaður og
sóttvarnarreglur. En það eru mörg
smærri ferðaþjónustufyrirtæki, fjöl-
skyldufyrirtæki sem ekki eru með
starfsfólk á launaskrá, sem gætu lif-
að af innanlandsmarkaðnum í sum-
ar. Íslendingar gætu kannski orð-
ið eins og plástur á sárið fyrir þá.
En innanlandsmarkaðurinn er því
miður ekki að fara að bjarga þessari
atvinnugrein. Svo má ekki gleyma
öllum þeim fjölmörgu ferðaþjón-
ustufyrirtækjum sem eingöngu hafa
þjónað erlendum ferðamönnum,
svo sem þær fjölmörgu ferðaskrif-
stofur, sem skipuleggja pakkaferðir
fyrir erlenda ferðamenn á Íslandi.
Þau fyrirtæki hafa litla sem enga
möguleika á innanlandsmarkaðn-
um og eru því verkefnalaus, með-
an þetta ástand varir,” svarar Bjarn-
heiður.
Veskið opnara
í Disneylandi
Spurð hvað við þurfum að gera til
að bjarga ferðaþjónustunni í gegn-
um þetta tímabil segir hún mikil-
vægt að fyrirtækin geti lagst í dvala
og fái svigrúm til að vera í friði á
meðan ástandið varir svo þau get-
ið farið á fullt um leið og birtir til.
„Mörg fyrirtæki eru að reyna að
halda sér gangandi í sumar en það
er vitað mál að þau geta það ekki
öll. Við sjáum hótelin til dæmis vera
að bjóða ýmis tilboð og pakka núna.
En það er vitað mál að þetta er ekki
sjálfbær verðlagning til langs tíma
en getur kannski dugað til að halda
lífi í hlutunum, til að fá eitthvað upp
í fastan kostnað,“ segir Bjarnheiður
og bætir því við að ekki megi horfa
fram hjá því að tugþúsundir Íslend-
inga hafa misst vinnuna að hluta
eða öllu leyti síðustu vikur og því
orðið fyrir tekjuskerðingu sem get-
ur haft áhrif á útgjaldagetu þeirra.
„Það eru ekkert endilega allir sem
hafa efni á að ferðast um landið í
sumar,“ segir hún.
En er ferðaþjónusta á Íslandi þá
of dýr? „Við verðum að átta okkur
á að Ísland er hálauna- og háskatta-
svæði í alþjóðlegum samanburði
og þess vegna er ferðaþjónustan
hér dýrari en víða annars staðar.
En svo er það einfaldlega þann-
ig að við Íslendingar erum oft til-
búnari að opna veskið okkar í Dis-
neylandi í Flórída en til dæmis að
fara í hvalaskoðun á Íslandi, þó það
megi deila um hvort sé meiri upp-
lifun. Það kostar alltaf að ferðast en
hér heima virðumst við ekki tilbú-
in að borga jafn mikið og þegar við
förum út fyrir landsteinana,“ segir
hún.
Ætlaði sér alltaf
til Þýskalands
En hver er Bjarnheiður? „Ég er
fædd og uppalin á Akranesi, lauk
stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólan-
um á Akranesi, eins og hann hét þá.
Ég fór til Þýskalands í nám tvítug,
enn með stúdentshúfuna á hausn-
um,“ svarar hún. En af hverju til
Þýskalands? „Mig hafði dreymt um
að fara þangað í mörg ár og ákvað í
raun þegar ég var 15 ára að ég ætl-
aði til Þýskalands,“ svarar hún. Það
voru sjónvarpsþættirnir vinsælu um
Derrick sem spiluðu stórt hlutverk
í þeirri ákvörðun hennar. „Ég elsk-
aði þessa þætti. Svo var ég alltaf
að syngja í kór þar sem mikið var
sungið af þýskum textum og mér
þótti tungumálið ótrúlega fallegt.
Ég byrjaði að læra þýsku um leið og
ég gat og heillaðist bara enn meira
og það kom aldrei annað til greina
en að fara til Þýskalands um leið og
ég gæti,“ segir Bjarnheiður.
Valdi nám úr doðranti
Bjarnheiður flutti til Þýskalands
árið 1987 og bjó þar í sjö ár og
lærði rekstrarhagfræði með áherslu
á rekstur ferðaþjónustufyrirtækja.
Segir hún námsvalið hafa verið ein-
skæra tilviljun. „Markmiðið var að
fara til Þýskalands í nám, námsval-
ið kom svo bara á eftir,“ segir hún
og hlær. „Ég settist niður með risa
doðrant, þá var sko ekkert internet,
með námsframboði og valdi bara
það sem mér fannst hljóma best.“ Á
þessum tíma var ferðaþjónusta á Ís-
landi engin til að tala um svo hvað
var það við þetta nám sem heill-
aði? „Ég hafði aðeins ferðast sjálf
og fannst þetta heillandi heimur.
Ætli það sé ekki bara ástæðan fyrir
þessu vali. Ég var líka alveg ákveð-
in í að hætta og fara í eitthvað ann-
að ef mér líkaði þetta nám ekki, en
það kom ekki til þess.“ Samhliða
náminu starfaði Bjarnheiður fyrir
þýskt ferðaþjónustufyrirtæki sem
seldi ferðir til Íslands. Eftir að hún
snéri heim á ný árið 1994 hélt hún
þeirri vinnu áfram í þrjú ár til við-
bótar. Árið 1997 ákvað hún ásamt
íslenskum skólabróður sínum að
stofna eigið ferðaþjónustufyrirtæki
á Íslandi og stofnuðu þau þá Kötlu
Travel.
Selur Þjóðverjum
Íslandsferðir
Í dag rekur Bjarnheiður annars
vegar fyrirtækið Katla Travel, sem
er staðsett í Þýskalandi og selur
Þjóðverjum einstaklingsferðir til
Íslands, og hins vegar Katla DMI,
sem er staðsett í Reykjavík og sér
um að skipuleggja hópa- og ein-
staklingsferðir fyrir þýskar ferða-
skrifstofur. En eins og fyrr segir var
fyrirtækið Katla Travel fyrst stofn-
að árið 1997, nokkru áður en ferða-
þjónusta varð stór atvinnugrein á Ís-
landi og má því segja að Bjarnheið-
ur hafi verið frumkvöðull í ferða-
þjónustu á Íslandi. „Þjóðverjar hafa
verið tryggir ferðamenn hér. Það
hefur verið hægt að kaupa Íslands-
ferðir í Þýskalandi í áratugi,“ seg-
ir Bjarnheiður. En hvernig sér hún
sumarið fyrir sér hjá Kötlu Tra-
vel og Kötlu DMI? „Það stoppaði
náttúrulega allt 15. mars. Þá voru
þeir sem voru staddir hér á landi
kallaðir heim af þýskum stjórn-
völdum og síðan þá höfum við ekki
gert annað en að afbóka. Starfsfólk-
ið okkar er komið á hlutabótaleið-
ina og vinnur ekki mikið þessa dag-
ana og það er ekki hægt að segja að
verkefnin séu mjög uppbyggileg hjá
okkur. Það eru reyndar þó nokkr-
ir að umbóka og það er svona ljós-
ið í myrkrinu fyrir okkur. Reyndar
þurfum við nú að fara að huga að
árinu 2021, sem við vonum auðvi-
tað að verði gott ferðaþjónustuár.
En það er óhætt að segja að þetta
sé í fyrsta skipti á ævinni sem ég er
ekki að drukkna í vinnu,“ segir hún
og brosir. „Við bíðum bara eftir að
allt fari af stað aftur og erum bjart-
sýn á að þá gangi vel. Við erum með
fastmótaða vöru sem hefur gengið
vel að selja og sjáum ekki ástæðu til
að óttast að þetta breyti því. Von-
umst bara til að krónan verði okk-
ur hagstæð svo við getum kannski
boðið betra verð en áður. En Þjóð-
verjar fara að ferðast um leið og
það er hægt, þeir taka sumarfríin
sín mjög alvarlega og eru ferðalög
mjög ofarlega á forgangslistanum í
þeirra neyslu,“ segir hún.
Skapað milljarða
í gjaldeyristekjur
Bjarnheiður segist hafa orðið vör
við neikvæða umræðu í garð ferða-
manna á Íslandi og segir umræðuna
sýna vanþekkingu og skammsýni
„Ég verð stundum bara reið. Eftir
hrunið var íslenska hagkerfið í rúst.
En þá sköpuðust loksins skilyrði
fyrir þessa atvinnugrein að vaxa
hér á landi bæði þar sem krónan
hrundi og svo vegna þeirrar gríð-
arlegu landkynningar sem við feng-
um með gosinu í Eyjafjallajökli. Þá
loksins gat þessi atvinnugrein orðið
alvöru gjaldeyrisskapandi grein og
hefur hún tekið fram úr bæði sjáv-
arútveginum og stóriðjunni og er
núna stærri en báðar þær greinar til
samans. Þetta er atvinnugrein sem
kom okkur upp úr þeim efnahags-
lega öldudal sem við lentum í eftir
hrun og gerði það hratt. Ferðaþjón-
ustan hefur á síðasta áratug skapað
okkur þúsundir milljarða í gjald-
eyristekjur og einfaldlega stórbætt
lífskjör í landinu, sem hafa aldrei í
sögunni verið betri. Hún hefur gert
okkur kleift að greiða niður skuldir
ríkisins á fádæma hraða, nánast út-
rýmt atvinnuleysi og skapað þennan
risastóran gjaldeyrisvaraforða sem
við eigum nú og mun nýtast okk-
ur vel í þeirri stöðu sem við erum í
núna,“ segir Bjarnheiður.
Örfáir staðir fullir
af ferðamönnum
„Lítil þorp og bæir sem voru við
það að deyja út eru margir hverj-
ir í blóma núna og er það ferða-
þjónustunni að þakka. Fólk hefur í
dag miklu meira val um búsetu en
áður var, því ferðaþjónustan stuðl-
ar að fjölbreyttri atvinnusköpun
um allt land,“ segir hún og bætir
við að viðhorf okkar til ferðaþjón-
ustunnar þurfi að breytast. „Þeg-
ar ég heyri fólk kvarta yfir því að
geta ekki ferðast um eigið land því
það sé fullt af ferðamönnum þá
verð ég hugsi, því þetta er nefni-
lega ekki rétt. Jú, það eru vissulega
örfáir staðir fullir af ferðamönn-
um, í nokkrar klukkurstundir á dag.
Gullni hringurinn, kannski Vík í
Mýrdal og Jökulsárlón. En hvað
með Vestfirði og Austfirði? Þar er
ekki troðfullt af ferðamönnum og
ótrúlega margt fallegt hægt að sjá
og gera. Ég blæs á þessa umræðu og
finnst hún ósmekkleg.“
Fjöldi veitingastaða
vegna ferðamanna
Vegna ferðaþjónustunnar hefur ver-
ið hægt að byggja upp fjölbreytta
þjónustu víða um landið og auka
þar með lífsgæði heimamanna og
tekur Bjarnheiður sem dæmi veit-
ingastaði og kaffihús sem lifa góðu
lífi vegna ferðamanna. „Ef við horf-
um til dæmis á Höfn í Hornafirði,
þar eru held ég níu eða tíu veitinga-
staðir, í þessu litla bæjarfélagi. Það
er ekki af því íbúar á Höfn séu svona
duglegir að fara út að borða. Ef við
berum það svo saman við Akranes,
töluvert fjölmennara samfélag, þá
eru þjónustuframboð hér t.d. hvað
varðar kaffihús og veitingastaði
ekki líkt því eins fjölbreytt. Skyldi
það vera af því að hingað hefur
ekki komið svo mikið af erlendum
ferðamönnum?“ segir hún og bætir
við að flugsamgöngur til og frá Ís-
landi væru ekki jafn umfangsmikl-
ar og raun ber vitni nema vegna
þess að ferðamenn eru að koma
til landsins. Icelandair hefur byggt
upp stórt leiðakerfi með tenging-
ar til bæði Evrópu og Bandaríkj-
anna með Keflavík sem miðpunkt,
þar sem við getum flogið beint til
margra áfangastaða. „Þetta væri
ekki mögulegt nema fyrir tilstilli
ferðaþjónustunnar,“segir hún.
Sjósund einstakt
En hvað er það sem Bjarnheiður
gerir þegar hún er ekki að hrær-
ast í ferðaþjónustunni? „Ég syng
í tveimur kórum, les mjög mik-
ið, stunda líkamsrækt, geng á fjall
og syndi í sjónum,“ svarar hún, en
Bjarnheiður gengur á Akrafjall eins
oft og tíminn leyfir. Þá hefur hún
stundað sjósund í um sjö ár og er
meðlimur í Sjóbaðsfélagi Akraness.
Hún hafði fylgst með sjósundsfólki
í eitt ár þegar hún ákvað að demba
sér sjálfri í sjóinn. „Ég fór og keypti
mér allar græjur áður en ég próf-
aði, flestir gera þetta nú öfugt en
ég var fullviss um að sjósund væri
eitthvað frábært og ég hafði sko á
réttu að standa,“ segir hún og bros-
ir. En hvað fær mann til að fara í
út í ískaldan sjó við Ísland? „Upp-
lifunin,“ segir hún og brosir. „Það
er einstök upplifun að gera þetta.
Maður finnur mjög fljótlega hvað
það er gott og endurnærandi að
fara í sjóinn og hvað manni líður
vel á eftir. Ég hef oft sagt að þetta
sé eins og endurræsa andlegu hlið-
ina, maður fer kannski útí í vondu
skapi en kemur alltaf brosandi upp-
úr aftur,“ segir hún. „Sjórinn gef-
ur manni steinefni og svo er maður
að fara út í lifandi umhverfi, nátt-
úrulegan öldugang og svo er útsýn-
ið stórkostlegt, sérstaklega hér við
Langasand. Ég get sagt og stað-
ið við það að Langisandur er lang-
besti sjóbaðsstaðurinn á landinu og
það er bara engu líkt að fara í sjóinn
þar,“ segir Bjarnheiður.
Ferðaþjónustan mun
bjarga okkur
Aðspurð segist hún sjálf ætla að
ferðast um Ísland í sumar en von-
ast þó fyrst og fremst til að þurfa að
fara að sinna venjulegum verkefn-
um að nýju. „Ég hef alltaf reynt að
ferðast um landið okkar á sumrin.
Í gegnum tíðina hafa fótboltamót
oftast stjórnað áfangastöðunum,“
segir hún og brosir. Bjarnheiður á
þrjá syni á aldrinum 14-29 ára og
hefur í gegnum árin varið sumarfrí-
um á fótboltamótum víða um land-
ið. „Þetta verður öðruvísi sumar
en ég mun eitthvað ferðast, ætla til
dæmis í gönguferð austur á fjörð-
um og örugglega fara í hvalaskoð-
un,“ segir hún og bætir við að hún
hafi farið í hvalaskoðun á hverju ári
í mörg ár. „Það er frábært að fara í
hvalaskoðun og það er eitthvað sem
allir verða að prófa. En ég bíð bara
eftir því að geta farið að vinna af
fullum krafti aftur. Ég er viss um að
það verður ferðaþjónustan sem nær
okkur af stað aftur, út úr þessari
kreppu. Það hefur mikið verið talað
um nýsköpun og skapandi greinar
og að núna þurfi að leggja áherslu á
þá málaflokka, sem er bara fínt. En
það tekur mörg ár að þróa nýjungar
þar til þær fara að skila verðmætum
og það er því ekkert nýtt að fara að
bjarga okkur núna. Ferðaþjónust-
an er það sem mun koma okkur af
stað aftur og þess vegna verðum við
að huga vel að ferðaþjónustufyrir-
tækjunum okkar og starfsmönnum
þeirra á meðan þetta ástand varir,“
segir Bjarnheiður að endingu.
arg
Í hvalaskoðun með Láka Tours í Grundarfirði. Ljósm. úr safni/ tfk.
Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Katla Travel TMI og formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.
Bjarnheiður í hópi félaga sinna í Sjóbaðsfélagi Akraness. Ljósm. úr safni/ Guðni
Hannesson.
„Þetta er atvinnugreinin sem kom okkur upp úr þeim efnahagslega öldudal sem
við lentum í eftir hrun og gerði það hratt.“ Svipmynd úr Stykkishólmi.
Ljósm. úr safni/gbh.