Skessuhorn


Skessuhorn - 19.08.2020, Page 11

Skessuhorn - 19.08.2020, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 19. áGúSt 2020 11 Átt þú rétt á styrk ? Sjómennt er fræðslusjóður sjómanna og útgerðarfélaga Sjómennt styrkir starfsmenntun sjómanna beint til fyrirtækja í útgerð. Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum stéttarfélaganna. Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin um afgreiðslu þeirra í umboði Sjómenntar Kynntu þér rétt þinn á www.sjomennt.is Sjómennt Guðrúnartún 1 • 105 Reykjavík • Sími 599 1450 • sjomennt@sjomennt.is Þín leið til fræðslu Sveitamennt styrkir starfsmenntun beint til sveitafélaga og stofnana þeirra á landsbyggðinni. Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum stéttarfélaganna. Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin um afgreiðslu þeirra í umboði Sveitamenntar. Kynntu þér rétt þinn á www.sveitamennt.is Sveitamennt Guðrúnartún 1 • 105 Reykjavík • Sími 599 1450 • sveitamennt@sveitamennt.is Félagið Garðyrkjuskóli Íslands hef- ur verið stofnað. Að því stendur fagfólk í garðyrkju sem hefur flest verið eða er í forsvari fyrir hags- munafélög greinarinnar, að því er fram kemur í tilkynningu frá fé- laginu. tilgangur þess er að standa að faglegri og vandraðri fræðslu á sviði garðyrkju og tengdra greina. áhersla félagsins er að fræðsla og formleg menntun í garðyrkju verði í sem bestu samstarfi við atvinnu- lífið og starfandi aðila í greininni. Markmiðið með fræðslu og mennt- un skuli vera að búa nemendur sem best undir fjölbreytt störf á sviði garðyrkju og tengdra greina, nú eða áframhaldandi nám. Jafnframt miði starfsemi félagsins, fræðslan og námið að því að efla almenn- an áhuga, þekkingu og þátttöku í ræktun og skyldri starfsemi. Forsvarsfólk félagsins hefur óskað eftir viðræðum við menntamálaráð- herra með það fyrir augum að leita samninga um grunnnám í garð- yrkju, með svipuðu sniði og gert hefur verið fyrir nám á framhalds- skólastigi svo sem í Kvikmynda- skóla Íslands, Ljósmyndaskóla Ís- lands, Fisktækniskóla Íslands og tækniskóla Íslands. Ætlunin er að halda félagsfund og bjóða starf- andi garðyrkjufólki til þátttöku í fé- laginu, þegar aðstæður leyfa. Telja óeðlilegt að hafa námið undir háskóla Landbúnaðarháskóli Íslands varð til árið 2005 þegar Garðyrkjuskóli ríkisins var sameinaður Landbún- aðarháskólanum á Hvanneyri. Frá þeim tíma hefur nám í garð- yrkju verið kennt við LbhÍ á fram- haldsskólastigi, að Reykjum í Ölf- usi. Gunnar Þorgeirsson er einn stjórnarmanna Garðyrkuskóla Ís- lands og formaður Sambands garðyrkjubænda. Hann segir það mat fagfólks í garðyrkju að garð- yrkjunám á framhaldsskólastigi eigi ekki heima innan veggja há- skóla. „Okkur þykir óeðlilegt að vista framhaldsskólanám undir há- skóla og veltum fyrir okkur laga- legri stöðu námsins vegna þessa. Þetta hefur ekkert með starfsmenn landbúnaðarháskólans að gera eða nokkuð slíkt, bara fyrirkomu- lag námsins,“ segir Gunnar í sam- tali við Skessuhorn. Hann segir að garðyrkjunámið sé í dag skilgreint sem aðfaranám að háskólanámi, þar sem áhersla sé lögð á akadem- ík og undirbúning frekara náms á háskólastigi. Nemendur útskrifist ekki með stúdentspróf að því námi loknu. „Við höfum haft gríðarleg- ar áhyggjur af því að námið týnist í hinu akademíska umhverfi. Ég er ekki að gera lítið úr akademík, en við verðum að halda utan um unga fólkið sem vill læra garðyrkju en langar ekkert endilega í frekara nám. Þess vegna höfum við lagt áherslu á að tengja nám í garðyrku öðru starfsmenntanámi, þannig að garðyrkjufræðingar útskrifist með stúdentspróf líka, eins og til dæm- is búfræðinemar gerta gert í dag í samstarfi við Menntaskóla Borg- arfjarðar,“ segir hann. „Þá stend- ur fólki opið frekara nám að loknu stúdentsprófi, ef það hefur áhuga á því,“ segir Gunnar Þorgeirsson að endingu. kgk Hlöðver Ingi Gunnarsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri fjölskyldu- sviðs Borgarbyggðar. Sveitarstjórn staðfesti ráðninguna á fundi sín- um síðastliðinn fimmtudag. Hlöð- ver var valinn úr hópi níu umsækj- enda. Hann er með BA gráðu í heimspeki, hagfræði og stjórnmála- fræði frá Háskólanum á Bifröst, MA gráðu í Evrópufræðum frá sama skóla og diplómu í kennslu- fræðum frá Háskólanum í Reykja- vík og diplómu í sterkari stjórnsýslu í endurmenntun frá Háskólanum á Bifröst. Hann starfaði sem grunn- skólakennari frá 2008 til 2012, þar til hann tók við starfi deildar- stjóra Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi frá 2012 til 2015 og var skólastjóri GBF í afleysingum til eins árs. Undanfarin þrjú ár hef- ur Hlöðver verið skólastjóri Auðar- skóla í Búðardal. Fullur eftirvæntingar „Ég er mjög spenntur að taka við nýju starfi. Ég hef náttúrulega taugar og tilfinningar til Borgar- fjarðar, eins og ég hef til Dalanna. En mér finnst ég pínu vera að koma heim,“ segir Hlöðver í samtali við Skessuhorn. „Ég er mjög spenntur bæði að vinna aftur með öllu þessu góða fólki í Borgarfirði og að kynn- ast nýju fólki líka,“ segir hann. Að- spurður segir Hlöðver ekki búið að festa nákvæmlega hvenær hann hef- ur störf hjá Borgarbyggð, en hann geri fastlega ráð fyrir að það verði núna í haust. Dásamlegur tími í Dölum En hvað kom til að hann ákvað að sækjast eftir starfi sviðsstjóra fjöl- skyldusviðs? „Það er nú bara fyrst og fremst áhugi fyrir starfinu. Ég hef reynslu af því að stýra skólum með fjölda deilda og það er áhuga- mál hjá mér að sjá svona stofn- anir og svið fúnkera saman. Svo hafa flottir hlutir verið að gerast í Borgarfirði, svo sem Heilsuefl- andi samfélag og Barnvænt sam- félag. Það eru flott og áhuga- verð verkefni sem eru undir fjöl- skyldusviði sem ég er spenntur að fara að vinna með,“ segir hann. „Það var ekki þannig að mér þætti vera kominn tími á mig í Dölun- um, engin þreyta eða neitt þann- ig. Ég sá bara annað tækifæri sem mig langaði að prófa að takast á við þegar ég sá starf sviðsstjóra auglýst og ákvað að prófa að sækja um. Þetta var ekki meira planað en svo,“ segir Hlöðver, sem lítur til undanfarinna ára sem skólastjóri Auðarskóla með miklum hlýhug. „tíminn í Dölunum er búinn að vera dásamlegur. Ég kom hérna einstæður karl og fer með fjöl- skyldu. Ég get ekkert verið nema glaður,“ segir hann ánægður „Mér þykir vænt um Dalina og fer þaðan stoltur og ánægður og vil Auðar- skóla allt hið besta,“ segir Hlöðver Ingi Gunnarsson að endingu. kgk Garðyrkjuskóli Íslands stofnaður Hlöðver Ingi Gunnarsson. Ljósm. úr safni/ kgk. Hlöðver Ingi ráðinn sviðsstjóri hjá Borgarbyggð Mun stýra fjölskyldusviði sveitarfélagsins

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.