Skessuhorn


Skessuhorn - 19.08.2020, Side 12

Skessuhorn - 19.08.2020, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 19. áGúSt 202012 Flestir sem stunda nám við Háskól- ann á Bifröst eru í fjarnámi og er skólinn í fararbroddi þegar kemur að slíku námsfyrirkomulagi. Skól- inn hefur lagt mikið upp úr því síð- ustu ár að kynna sig einmitt þannig að það sé skólinn sem kemur til þín og mætir þínum þörfum. „Stefnan hefur vissulega verið fjarnám. En við viljum líka undirstrika að hægt er að stunda fjarnámið hér á Bif- röst,“ segir Vignir Már Sigurjóns- son, umsjónarmaður húsnæðis hjá skólanum, við blaðamann Skessu- horns sem heimsótti háskólaþorpið í liðinni viku. „Hugmyndafræðin er að fólk geti komið á Bifröst, búið á Bifröst, sinnt námi á Bifröst og not- ið lærdómssamfélagsins sem hérna er,“ bætir Guðjón Ragnar Jónasson, forstöðumaður háskólagáttar og sí- menntunar skólans. Blaðamaður ræddi við Guðjón um framtíðarsýn skólans, við Vigni Má og Jóhönnu konu hans sem hafa búið á Bifröst í fimm ár, auk þess sem blaðamaður ræddi við nýflutt par frá Reykjavík sem er fullt tilhlökkunar fyrir nám- inu og nýja staðnum, Bifröst. Flott að búa á Bifröst „Við tölum um nám en ekki endi- lega fjarnám eða staðnám heldur einfaldlega, nám. Þú getur skráð þig í fjarnám hjá skólanum, búið hér á staðnum og fengið aðstöðu hjá skólanum til að vinna að nám- inu þínu á meðan því stendur,“ seg- ir Guðjón. „Hugmyndafræði náms, þessi fyrirlestrahugmynd, er sold- ið að klárast. Í dag eru nemendur að sinna náminu sínu hvar sem er og við höfum góða vinnuaðstöðu til þess. Bifröst er námssamfélag og námssamfélag byggir upp á því að hér geta nemendur verið hluti af samfélagi, lært og fengið aðstöðu til að sinna náminu í skólanum,“ bæt- ir hann við. Mikill kostur fylgir því að búa á Bifröst. Þar er hægt að fá góð- ar íbúðir í fallegu umhverfi gegn lágu leiguverði. Innifalið í leigu er rafmagn og hiti, internetið er frítt auk þess sem nemendur fá afnot af líkamsræktarstöðinni án endur- gjalds. Bifröst er einnig fjölskyldu- vænn staður. Leikskólinn Hraun- borg hefur notið vaxandi virðing- ar og velgengni undanfarin ár og leikskólinn er í göngufæri frá öll- um íbúðum í þorpinu. Grunnskóli Borgarfjarðar á Varmalandi er ein- ungis í tíu mínútna akstursfjarlægð frá Bifröst og Borgarnes innan seil- ingar. „Fólk veit kannski ekki hversu magnaður staðurinn er og við ætl- um nú að kynna hann betur. Við viljum kynna hversu gott er að búa á Bifröst. Við stefnum því á að laða fleira fólk að staðnum. Það er það sem við ætlum að gera, efla staðinn og gera gott samfélag enn betra. Það er mikill hugur og kraftur í fólki hér á Bifröst,“ segir Guðjón. Aldrei hafa verið jafnmargir nýir innritaðir á haustönn hjá skólan- um og eru aðstandendur skólans himinlifandi með aðsóknina. Við- skiptabrautin hefur verið vinsælust síðustu ár og engar breytingar þar á. Nokkrar nýjar námsleiðir eru að fara á flug í fyrsta skipti hjá skól- anum, þar á meðal skapandi grein- ar og segir Guðjón brautina koma sterka inn og bætir jafnframt við að með tilkomu nýrrar brautar kemur meiri fjölbreytni í nemendahóp- inn. Sælureitur Egill Örn Rafnsson og Bryn- dís Inga Reynis, ásamt hundinum Katli, fluttu nýverið upp á Bifröst og hafa þau nýtt vel síðustu vikuna í að taka upp úr kössum og koma sér fyrir í íbúð sinni á Bifröst og leynir sér ekki spenningurinn fyr- ir nýja staðnum. „Þetta er búið að vera æði. Maður getur rétt úr sér hérna,“ segir Egill en hann og Bryndís bjuggu áður í 40 fermetra kjallaraíbúð í miðborg Reykjavík- ur og segja þau viðbrigðin mikil að vera komin í 85 fermetra raðhús fyrir mun lægri leigu. „Það var ekki einu sinni pláss fyrir eldhúsborð. Svo þurfti ég alltaf að beygja mig til að komast inn á baðherbergi,“ segir Bryndís um kjallaraíbúðina í Reykjavík. „Það er æðislegt hvað er hátt til lofts hérna. Okkur líð- ur strax rosalega vel og sofum bæði eins og börn. Það er einmitt fínt að koma hingað núna í byrjun ágúst, koma okkur fyrir í rólegheitum og kynnast umhverfinu áður en skól- inn byrjar,“ bætir hún við. „Við tók- um allt upp úr kössunum og settum á sinn stað. Við nennum ekkert að breyta um íbúð né neitt svoleiðis og ætlum okkur að vera hér á meðan náminu stendur,“ segir Egill. „Við ákváðum að ef við ætlum að gera þetta þá myndum við gera þetta af alvöru.“ Bryndís segir einmitt mik- inn kost að fá að hengja upp myndir í íbúðinni til að búa til meiri heim- ilisstemningu, en yfirleitt er það ekki leyft í stúdentaíbúðum eins og í Reykjavík. „Okkur áskotnaðist þessi hundur í sumar. Ég hélt allt- af að það mætti ekki vera með dýr en það má hér svo við tókum hann með sem er geggjað,“ segir Bryndís um Ketil. Egill rifjar upp í kjölfarið að hafa heyrt frá nokkrum einstaklingum, áður en þau Bryndís fluttu á stað- inn, sem höfðu búið á Bifröst í ein- hvern tíma, að það hefði verið bestu ár lífs þeirra. „Ég hafði bara heyrt jákvætt. Ég skil það alveg núna þó þetta sé eiginlega ekki almennilega byrjað. Ég er farinn að sjá hvað þau meina.“ Bryndís tekur undir. „Það er einhver góð orka hérna.“ Af hverju að koma á Bifröst? „Mér datt þetta einhvern veginn í hug að koma á Bifröst og fara í nám hér. Ég var að klára frumgreina- deildina í HR í vor og var farin að hugsa um næstu skref. Ég þurfti heldur ekkert að sannfæra Egil um að koma með mér því um leið og hann sá skapandi greinar sem eina af námsleiðunum, þá var þetta eig- inlega borðleggjandi,“ segir Bryn- dís um ákvörðunina. Egill og Bryndís misstu bæði vinnuna sína þegar Covid skall á. Egill var að leiðsegja amerískum ferðamönnum um landið og Bryn- dís hefur verið að reka bar á hóteli. „Það var ekkert annað í boði en að koma í ódýrara húsnæði sem er eig- inlega lán í óláni,“ segir Egill um aðstæðurnar hjá þeim. Bryndís skráði sig í viðskiptafræði með áherslu á markaðssamskipti og samfélagsmiðla. „Mér fannst þessi námsbraut svo heillandi. Mig langaði líka mikið til að njóta þess að vera í námi. Ég kláraði ekki menntaskólann á tilteknum tíma heldur vann og vann og vann í stað- inn. Ég hætti að vinna um síðustu áramót með skólanum þegar ég var að klára í HR. Mér finnst að maður eiga að leyfa sér meira að vera bara í skóla og ekki alltaf í endalausri kvöldvinnu eða helgarvinnu sam- hliða því. Maður hefur alltaf gert þetta og það gleymist oft að skólinn er 100% vinna út af fyrir sig,“ seg- ir Bryndís staðráðin í að njóta þess að vera í námi. „Ég vil skila af mér góðum einkunnum og taka með mér út í lífið það sem ég læri hér. Ég er ótrúleg spennt fyrir þessu.“ Egill skráði sig í nýja námsleið, skapandi greinar, hjá háskólanum. „Ég þekki sjálfan mig það vel og það er ekki séns að ég færi að læra á kvöldin, ég er svo góður við sjálfan mig,“ segir Egill og hlær. „Nei, nei, þetta er eiginlega bara heppileg til- viljun. Það er langt síðan ég hef ver- ið í skóla vegna mikilla anna í vinnu síðustu ár, þangað til núna. Ég var að fara með Ameríkana í hringferð- ir um landið og fimm daga ferðir sömuleiðis. Það eru engir Amerík- anar að koma til landsins núna og hluti af mér er eiginlega bara feg- inn. Planið var upphaflega að vinna með náminu en í staðinn get ég verið hér að læra í rólegheitunum,“ útskýrir Egill en ásamt því að hafa verið að leiðsegja Ameríkönum þá er hann tónlistarmaður og spilar á trommur í þungarokkshljómsveit- inni DIMMU. Ég elska hér Parið segir ekkert mál að aðlagast sveitalífinu á Bifröst. „Við erum í rauninni búin að lifa eins og síg- aunar síðan 1. júní. Við sögðum upp íbúðinni okkar í Reykjavík og erum búin að búa í tösku og vera mest megnis úti á landi í allt sum- ar. Ég held við séum búin að keyra 10.000 kílómetra síðan í maí,“ segir Egill um líf þeirra síðustu mánuði. „Ég er sérstaklega spennt fyr- ir því að fara út fyrir rammann og temja mér aðrar venjur. Ég hef allt- „Það er mikill hugur og kraftur í fólki hér á Bifröst“ Háskólinn á Bifröst blæs til sóknar og vill fjölga íbúum á staðnum Á Bifröst búa rúmlega 100 manns en þar geta búið hátt í 350 manns á kosta kjörum. Ljósm. James E. Becker. Guðjón Ragnar Jónasson, forstöðumaður háskólagáttar og símenntunar hjá Háskólanum á Bifröst. Egill Örn og Bryndís Inga eru nýflutt á Bifröst. Þau eru bæði að hefja nám og eru spennt að nýta sér Bifröst sem búsetukost á meðan náminu stendum.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.