Skessuhorn


Skessuhorn - 19.08.2020, Page 13

Skessuhorn - 19.08.2020, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 19. áGúSt 2020 13 Menntun skapar tækifæri Ríkismennt styrkir starfsmenntun beint til stofnana ríkisins á landsbyggðinni Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum stéttarfélaganna. Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin um afgreiðslu þeirra í umboði Ríkismenntar. Kynntu þér rétt þinn á www.rikismennt.is Ríkismennt Guðrúnartún 1 • 105 Reykjavík • Sími 599 1450 • rikismennt@rikismennt.is Landsmennt Styrkur þinn til náms Landsmennt er fræðslusjóður samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni. Sjóðurinn styrkir starfsmenntun beint til fyrirtækjanna sjálfra. Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin um afgreiðslu þeirra í umboði Landsmenntar. Kynntu þér rétt þinn á www.landsmennt.is Guðrúnartún 1 • 105 Reykjavík • Sími 599 1450 • landsmennt@landsmennt.is af búið í Reykjavík, ættingjar mín- ir eru bara í Reykjavík svo þetta er glænýtt fyrir mér að flytja út á land,“ segir Bryndís ánægð með að þessi hugmynd, að flytja á Bif- röst, hafi komið til sín. „Við erum duglegri að elda saman. Við nýtum tímann til þess að fara í göngutúra, tíma sem væri annars varið í umferð í Reykjavík,“ bætir hún við. „Það er einmitt aldrei umferð hérna. Bara að búa niðri í bæ, það tekur allt klukkutíma í bíl nánast sama hvað þú ert að gera. Einmitt þessi klukkutími nýtist okkur núna í göngutúr,“ bætir Egill samstundis við. „Ég var einmitt á rölti um dag- inn með Ketil og ég bara skil ekki af hverju það eru ekki allar íbúðir fullar. Ég bara skil það ekki! Sér- staklega eins og ástandið er á leigu- markaðinum í Reykjavík í dag, hann hefur verið sturlaður,“ segir Egill ennfremur. „Hér erum við í miklu stærra og ódýrara húsnæði. Við getum bæði verið á námslánum og samt átt rólegar nætur þar sem við þurfum ekki að hafa áhyggjur af leigupeningum ásamt því að geta leyft okkur eitthvað smá. Þetta snýst soldið um hvaða upplifun þú ætlar að gera fyrir þig úr þessu. Við vor- um ekki að koma hingað til að finna partí í hverju húsi. Við vildum finna rólegt og þægilegt námsumhverfi og njóta þess að vera saman. Allt annað er plús,“ segir Bryndís. „Við höfum allt sem við þurfum hér. Ef maður þarf virkilega að komast til Reykja- víkur þá bara skutlast maður.“ „Ég held einmitt að það sé auð- velt að selja þessa hugmynd að búa hérna þegar fólk er komið á stað- inn. Eina sem ég hef áhyggjur af er að þegar við flytjum héðan að ekk- ert verði nógu gott fyrir okkur. Ég held við segjum á hverjum einasta degi, ég elska hér,“ segir Egill kím- inn að lokum. Hafa það gott Vignir Már Sigurjónsson og Jó- hanna Marín Óskarsdóttir fluttu á Bifröst árið 2015. Vignir er í 50% starfi hjá skólanum sem umsjónar- maður húsnæðis ásamt því að vera í meistaranámi við háskólann á Bifröst. Jóhanna hefur starfað sem prófstjóri frá því í byrjun árs í fyrra. „Okkur þykir rosalega gott að búa hérna, virkilega þægilegt og stutt að sækja í náttúruna,“ segir Vign- ir en hann þurfti að sannfæra Jó- hönnu á sínum tíma um kosti þess að flytja á Bifröst. „Ég var eigin- lega bara í sjokki þegar hann kom með þessa hugmynd,“ segir Jó- hanna hlæjandi og rifjar upp þegar Vignir viðraði Bifrastarhugmynd- ina við sig. á þeim tíma bjó fjöl- skyldan á Sauðárkróki í Skagafirði. „Ég var í fínni stöðu á Króknum og við áttum einbýlishús þar. Svo kemur hann allt í einu og segir; heyrðu flytjum á Bifröst. Við, með pínulítil börn, að rífa okkur upp og flytja á Bifröst. Ég var ekki al- veg til í það, en hann náði að sann- færa mig.“ Blaðamaður spyr í kjölfarið hvernig hann hafi náð að sannfæra hana og Vignir svarar um leið. „Ég bara stoppaði ekki!“ Þau hlæja bæði. „Við fengum ársleyfi frá vinnunum okkur, leigðum húsið og komum hingað og prófuðum. Jóhanna fór að kenna tónment í Grunnskólanum í Borgarnesi og fór síðar í meistaranám í menning- arstjórnun. „Það er líka svo gott að hafa stuðninginn hjá samnemend- um sínum þó maður sé í fjarnámi. Það er ekki eins að spjalla enda- laust í gegnum tölvu. Námið snýst líka um það að læra saman, spjalla saman og kynnast hvert öðru. Það er stór partur af náminu og Bifröst er frábær staður til þess,“ segir Jó- hanna um sína reynslu af náminu. Það sem átti að vera eitt ár er því orðið að fimm árum hjá fjölskyld- unni. „Við höfum það mjög gott og okkur liggur ekkert á að fara,“ segir Vignir hæstánægður. Ómetanlegur stuðningur Vignir og Jóhanna búa ásamt börnunum sínum þremur á Bifröst sem nú eru öll komin í Grunnskól- ann á Varmalandi. tveir strákar og ein stelpa í miðjunni, sex, sjö og níu ára. „Þeim hefur liðið rosa- lega vel að alast upp hérna. Þetta er yndislegt umhverfi og það er ekkert áreiti. Þú ert ekki endalaust að þessu skutli út og suður og svo- leiðis. Við erum rosalega heppin með leikskólann okkar, hann er al- gjör demantur hérna. Starfsfólk- ið á leikskólanum er yndislegt og hefur reynst okkur ofboðslega vel á alla kanta. Nú eru öll börnin okk- ar komin í grunnskólann á Varma- landi,“ segir Jóhanna. „Við eigum tvö langveik börn sem eru með genagalla og þau eru m.a. lögblind. Þau greindust á meðan við vorum í námi og þurfa að læra táknmál og punktaletur vegna heyrnaskerð- ingar. Leikskólinn hérna er geggj- aður hvað þetta varðar og bæði grunn- og leikskólinn hafa staðið sig hreint út sagt frábærlega við að koma til móts við þarfir barnanna okkar. Þau hafa alveg tekið utan um okkur og hjálpað okkur sem er alls ekki sjálfgefið,“ bætir Vign- ir við. Háskólaþorpið Þegar Vignir og Jóhanna fluttu á Bifröst árið 2015 þá var búið í flestum húsum í þorpinu og seg- ir Vignir hæglega hægt að endur- vekja þennan sjarma sem ríkti yfir háskólaþorpinu á Bifröst fyrir ekki svo löngu síðan. „Ég hugsa að eft- ir tíu ár þá verður allt fullt af fólki hérna og meira líf. Það er þannig andi yfir fólkinu hérna og mikill samhugur. Stefnan hefur vissulega verið fjarnám en við megum ekki gleyma að hægt er að stunda fjar- námið hér á Bifröst, staðurinn hef- ur kannski ekki verið nægjanlega vel auglýstur og lítið verið talað um staðinn sjálfan síðustu ár,“ út- skýrir Vignir, en á Bifröst búa í dag rúmlega 100 manns og segir hann að það geti búið hátt í 350 á staðn- um. „Við erum að fókusera á stað- inn og vekja athygli á búsetu hér. Það eru jákvæðir tímar framund- an. Við mælum hiklaust með að fólk búi hérna og sé með börnin sín hérna. Hér er allt til alls,“ segir Vignir að lokum. glh Háskólaþorpið er í fallegu umhverfi í Norðurárdal í Borgarfirði. Ljósm. James E. Becker. Vignir Már og Jóhanna hafa búið á Bifröst í fimm ár og liggur ekkert á að fara.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.