Skessuhorn


Skessuhorn - 19.08.2020, Qupperneq 14

Skessuhorn - 19.08.2020, Qupperneq 14
MIÐVIKUDAGUR 19. áGúSt 202014 „Ég er fæddur í Hafnarfirði, en al- inn upp í Vesturbænum og ættaður úr Vestmannaeyjum. Það er ástæðan fyrir því að ég er dálítið skrýtinn,“ segir Gísli Gíslason léttur í bragði í samtali við Skessuhorn. Hann læt- ur formlega af störfum sem hafnar- stjóri Faxaflóahafna í lok ágústmán- aðar, eftir að hafa gegnt þeirri stöðu frá því í nóvember 2005. Þar áður var hann bæjarstjóri á Akranesi um 18 ára skeið. Skessuhorn hitti Gísla að máli í síðustu viku og ræddi við hann um leik og störf undanfarinna áratuga og hvað framtíðin kann að bera í skauti sér. Gísli segir að hann telji skyn- samlegt að breyta um takt á þessum tímapunkti í lífinu, en hann varð 65 ára í sumar. „Og þegar maður er bú- inn að vera í svona daglegu ati í lið- lega 35 ár tel ég skynsamlegt að snúa sér að öðrum verkefnum. En ég er ekkert að setjast í helgan stein, er í alls konar verkefnum og það verður enginn skortur á þeim,“ segir hann. „Ég neita því ekki að viðveran á Skaganum hefur verið tiltölulega lítil undanfarin 15 ár. Ég hef áhuga á að finna skemmtileg verkefni hérna á staðnum þar sem maður getur orðið að einhverju gagni. Ég tók til dæmis að mér að vera í stjórn nýja þróunar- félagsins á Breið. Það fellur ágætlega að þessu og gæti orðið skemmtilegt og gagnlegt verkefni, sjáum hvað verður úr því. En ég vil gjarnan vera heima,“ segir Gísli. Tilviljunum háð Hann er mikill Skagamaður þó hann hafi slitið barnsskónum í höfuð- borginni. til Akraness flutti hann 1982, eftir að hann kynntist eigin- konunni Hallberu Jóhannesdóttur. Þar hafa þau búið allar götur síð- an. Gísli nam lögfræði og steig sín fyrstu spor í greininni á stofu Ragn- ars Aðalsteinssonar lögmanns. Eftir að hann flutti á Akranes opnaði hann sína eigin stofu áður en hann gerð- ist bæjarritari 1985. „Ég hélt alltaf að ég myndi bara vera í lögmennsku, en svo veit maður aldrei hvert lífið dregur mann,“ segir Gísli. „Eins og hann sagði, vinur okkar hann Forrest Gump; lífið er eins og konfektkassi, maður veit aldrei hvaða mola maður fær. Þannig að sumu leyti hefur það verið tilviljunum háð hvaða brautir maður hefur farið,“ segir Gísli. „Ég hef eiginlega ekki ennþá ákveðið hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór,“ bætir hann við og brosir. En þó hann hafi ekki ákveðið sig enn hefur hann engu að síður prófað ýmislegt. árið 1987 lét Ingimundur Sigurpálsson af störfum sem bæjar- stjóri á Akranesi, eftir fimm ár í starfi, og gerðist bæjarstjóri suður í Garða- bæ. „Auglýst var eftir bæjarstjóra og síðan komu menn að máli við mig og hvöttu mig til að sækja um – þó svo að ég væri „bara“ 32ja ára,“ segir Gísli. „Eftir hverjar kosningar kom síðan upp spurningin hvað maður gerði næst. En það endaði með því að maður var í starfi nánast út árið 2005,“ segir hann. Þá tók hann við starfi hafnarstjóra Faxaflóahafna, sem urðu til árið 2004 við samein- ingu hafnanna á Akranesi, Grund- artanga, Borgarnesi og Reykjavík. „Það hefði hvort sem er verið hollt að skipta um vettvang, þó maður hefði setið út kjörtímabilið, enda þá búinn að vera bæjarstjóri í 18 ár,“ segir Gísli. Tímabil breytinga á Skaga Aðspurður segir Gísli að Akra- nes hafi tekið miklum breytingum á þeim tíma sem hann var bæjarstjóri. „Framan af, frá 1987 til 1994 eða þar um bil, þá var dálítið á brattann að sækja bæði í efnahagslífi og atvinnu- lífi á Skaganum. En eftir það, þegar fer að hilla undir göng, þá fara hlut- irnir að breytast. Þegar göngin koma verða síðan veruleg kaflaskipti á Skaganum, sem eiginlega standa yfir enn,“ segir hann. „á sama tíma komu grunnskólamálin yfir til sveitarfélag- anna og seinna málefni fatlaðra. Þannig að starfsemin hjá bænum breyttist töluvert. Síðan náttúrulega með göngunum þá verður sú breyt- ing að fólk fer að sækja í miklu meira mæli bæði vinnu og nám til Reykja- víkur og getur gert það án þess að flytja. Það er nú kannski rótin af því að Skaginn hefur upp á góða kosti að bjóða í þjónustu sinni við íbúa, sem og í afþreyingu og útivist,“ segir Gísli. „Það, ásamt í rauninni almennt góðum bæjarmóral, skilar því meðal annars að íbúum fjölgar. Því þarf að fylgja á eftir með þjónustu, hún þarf að vera í lagi. Íbúinn er stærsta auð- lindin í hverju sveitarfélagi og sam- félagið þarf að búa til góða umgjörð um þá sem þar búa. Það finnst mér bæjaryfirvöld á Akranesi alla jafnan hafa gert mjög vel, bæði í minni tíð, fyrr og síðar,“ segir Gísli. „á þessum tíma sem bæjarstjóri fannst mér allt- af vera samhugur um góð verkefni í bæjarstjórn og hefur að mér sýn- ist yfirleitt verið þannig síðan. Það skiptir býsna miklu máli, því mað- ur hefur séð á sveitarfélögum þegar verða illvígar deilur að þær eru mjög íþyngjandi. Við höfum sem betur fer verið laus við slíkt að öllu leyti, þótt auðvitað geti og hafi komið upp ágreiningsmál,“ segir Gísli. Göngin stærsta einstaka verkefnið Eftir að hann lét af starfi bæjarstjóra kveðst Gísli einkum hafa merkt breyttar áherslur í sveitarstjórnar- málunum einkum er lýtur að skipu- lags- og umhverfismálum. „Það á ekki bara við um Akranes heldur sér maður það í sveitarfélögum víða, sérstaklega þó á suðvesturhorninu, að áherslan er að færast mikið yfir á skipulags- og umhverfismál, en í gamla daga var hún fyrst og fremst á atvinnumál,“ segir Gísli. „Það var auðvitað gríðarlega mikilvægt fyrir Akranes fyrir göng að vera sjálfbært með atvinnu. Það hefur svo aftur kannski breyst með öllu þessu flæði fólks undir Hvalfjörðinn á hverjum degi,“ bætir hann við. Er þá óhætt að segja að tilkoma Hvalfjarðarganga hafi verið stærsta breytingin í hans bæjarstjóratíð? „Já, ég held að það sé óhætt að segja. Það var ótrúlega skemmtilegt verkefni að fá að taka þátt í, með tiltölulega fáum góðum mönnum,“ segir Gísli, en hann var stjórnarmaður í Speli alla tíð og for- maður rekstrarfélagsins sem átti og rak göngin frá 1996 þar til félagið var afhent Vegagerðinni en göng- in voru afhent ríkinu í september- lok 2018. Skemmtilegast í kringum íþróttirnar Þó göngin hafi líklega verið stærsta verkefnið sem hann tók þátt í sem bæjarstjóri á Akranesi er ekki þar með sagt að það hafi verið skemmti- legast. Hvað þótti honum skemmti- legast, persónulega? „Ég hef allt- af verið mikið í kringum íþrótt- ir, alla mína ævi og sit í stjórn KSÍ. Ég neita því ekki að samskiptin og þátttakan í knattspyrnulífinu hefur verið mjög gefandi og skemmtileg þó misjafnlega hafi gengið,“ segir hann. „Þó verð ég að segja að það var einstaklega ljúft á tímabilinu 1992 til 1996 þegar Skagaliðið var yfirburðalið á landinu og vakti at- hygli langt út fyrir landsteinana, einmitt á tíma þegar var á brattann að sækja á Akranesi og skipti miklu máli fyrir bæjarímyndina og bæjar- sálina að gengi vel í íþróttum,“ bæt- ir hann við. „Það sama má segja um sundið. Það var einstaklega glæsi- legt þegar Ragnheiður Runólfsdótt- „Hef eiginlega ekki ennþá ákveðið hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór“ - segir Gísli Gíslason, sem lætur formlega af störfum hafnarstjóra Faxaflóahafna í lok ágúst Gísli Gíslason. Hér við höfnina á Akranesi. Ljósm. kgk. Gísli, þá bæjarstjóri á Akranesi, við mynni Hvalfjarðarganga örfáum dögum fyrir vígslu þeirra í júlí 1998. Göngin nefnir Gísli sem stærsta einstaka verkefnið sem hann kom að sem bæjarstjóri. Ljósm. úr safni Skessuhorns/ Gísli Einarsson. Með stjórn Faxaflóahafna haustið 2013, eftir fund í Borgarnesi og heimsókn í Grímshúsið í Brákarey. Ljósm. úr safni Skessuhorns/ Heiðar Lind Hansson. Gísli lét fara vel um sig þegar Hollvinasamtök HVE færðu stofnuninni tólf sjúkrarúm að gjöf í október á síðasta ári. Ljósm. úr safni/ kgk. Sem stjórnarmaður í KSÍ fékk Gísli það hlutverk að afhenda Káramönnum bikarinn eftir að liðið sigraði í 3. deildinni í knattspyrnu keppnistímabilið 2017. Að öðrum verkefnum ólöstuðum segir Gísli að sér hafi þótt hvað skemmtilegast að taka þátt í verkefnum tengdum íþróttalífinu. Ljósm. úr safni/ gbh.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.