Skessuhorn - 19.08.2020, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 19. áGúSt 202018
árlegur hittingur íslenskra eld-
smiða fór fram um liðna helgi en
félagar koma víða að og hittust á
Byggðasafninu í Görðum á Akra-
nesi frá föstudegi fram á sunnu-
dag.
Yfirleitt hefur verið mikið húll-
umhæ í kringum hittinginn en í
ljósi aðstæðna í samfélaginu þá
þurfti að breyta fyrirkomulaginu
í ár. „Þetta er alltaf mikil hátíð og
gaman þegar við eldsmiðirnir kom-
um saman og það var það vissulega
einnig nú um helgina. Við höfum
yfirleitt komið saman fjóra daga
yfir sjómannadagshelgina. Það var
allt lokað í vor svo við frestuðum
þessu til haustsins,“ segir Guð-
mundur Sigurðsson, eldsmiður frá
Akranesi í samtali við Skessuhorn.
Gestir á hátíðinni hafa yfirleitt
fengið að spreyta sig í eldsmíðinni
en í ár þurftu þeir að láta sér nægja
að fylgjast með úr fjarlægð. „Það var
einhver smá reitingur sem fylgdist
með okkur og gátu þá kíkt inn um
dyrnar. Það voru að vísu ókláraðar
vegaframkvæmdir við Byggðasafn-
ið svo það voru einhverjir sem röt-
uðu ekki til okkar þar sem gleymst
hafði að merkja hjáleiðina. Yfirleitt
höfum við verið með örnámskeið
þar sem gestir fá að læra hand-
tökin. Gestir hafa einnig fengið
að ganga á milli stöðva og tekið
myndir í leiðinni. Í ár var það bara
tveggja metra reglan og grímur en
allt með afslappaðra móti svosem,“
bætir Guðmundur við.
Íslandsmeistaramótið í eldsmíði
fer ávallt fram þegar eldsmiðirnir
koma saman en keppnin var slauf-
uð svo Íslandsmeistarinn frá því í
fyrra, Beate Stormo úr Eyjafirði,
fær að halda titlinum í allavega eitt
ár til viðbótar.
Félag íslenskra eldsmiða var
stofnað 2011 og eru 15 meðlimir
í félaginu. Eldsmiðir hafa mikla
ástríðu og unun af því að stunda
fagið sitt en þó hefur enginn þeirra
lifibrauð sitt af þessu eins og stað-
an er í dag. „Þetta er áhugamál.
Við tökum að okkur eitt og eitt
verkefni en eins og ég segi, þá lifir
enginn af þessu. Við smíðum sitt
lítið af hverju, allt frá blómum og
upp í pönnur. Við erum stöðugt að
æfa okkur og bíðum tilbúnir eftir
stóra verkefninu þegar það kem-
ur,“ segir hann léttur að lokum.
glh Ljósm/ki.
Borgnesingarnir Hjalti Rósinkrans
Benediktsson og Jón Arnar Sig-
urþórsson voru meðal keppanda í
100 km hlaupi í Bretlandi síðastlið-
inn laugardag. Þrátt fyrir óþarflega
mikla rigningu gekk hlaupið eins og
best verður á kosið og þeir félagar
komu í mark vel framan við miðjan
hóp á tímanum 12:40:07 klst.
Hlaupið sem um ræðir nefnist
SVP100 og fylgir gönguleiðinni
Stour Valley Path sem byrjar í bæn-
um Newmarket í Suffolk og endar
í Cattawade í Essex, skammt norð-
austur af London, eða nánar tiltek-
ið suðvestan við Ipswich. Lengst af
er hlaupið meðfram ánni Stour og
reyndar liggur leiðin u.þ.b. 30 sinn-
um yfir ána. Stór hluti leiðarinnar
fer um sveitir og akra og á laugar-
daginn var færið víða frekar þungt
eins og gjarnan gerist þegar saman
fara mikil úrkoma og leirblandaður
jarðvegur.
Leiðin sem um ræðir liggur m.a.
fram hjá nokkrum kennileitum sem
þekkt eru úr málverkum 18. aldar
málaranna thomas Gainsborough
og John Constable. Merki hlaups-
ins er svartur hundur sem oftast
gengur undir nafninu Shuck. Um-
ræddur hundur er afturganga sem
kemur víða fyrir í þjóðsögum frá
þessu svæði. Hann er auðþekktur
af illilegum logandi rauðum augum
(einu eða tveimur) og heldur sig
helst á fáförnum og skuggsælum
göngustígum. Reyndar er kvikind-
ið sagt frekar meinlaust og jafnvel
hjálplegt ef fólk villist af leið. Ekk-
ert sást til Shuck á laugardaginn svo
vitað sé.
Þátttaka Hjalta og Jóns Arnars í
SVP100 var engin skyndihugdetta,
enda krefst viðfangsefni af þessu
tagi verulegs undirbúnings. Þeir
skráðu sig í hlaupið í byrjun des-
ember á síðasta ári og í mars hóf-
ust markvissar æfingar undir fjar-
leiðsögn ofurhlauparans Þorbergs
Inga Jónssonar. Dagskipunin fyr-
ir hlaupið sjálft var skýr, þ.e. að
fara nógu hægt af stað, fylgjast að
og ljúka hlaupinu á u.þ.b. 13 klst.
Þessi áætlun gekk fullkomlega upp
og tíminn varð enn betri en stefnt
var að, 12:40:07 klst. eins og áður
segir. Þetta skilaði þeim félögum
sætum nr. 44 og 45 í hlaupinu, en
samtals komust 107 hlauparar alla
leið í mark. Upphaflega voru 165
manns skráðir til leiks en eitthvað
um 140 lögðu af stað frá Newmar-
ket á laugardagsmorgninum.
Framkvæmd hlaupsins var eðli-
lega með óhefðbundnum hætti
vegna kórónuveirufaraldursins.
Þannig voru hlauparar ræstir í 1-6
manna hópum með u.þ.b. 3ja mín-
útna millibili og þess vandlega gætt
að aldrei væru fleiri en 30 saman-
komnir í einu. Grímuskylda var á
drykkjarstöðvum, auk margra ann-
arra takmarkana.
SVP100 var langlengsta keppn-
ishlaup þeirra félaga til þessa, en
áður höfðu þeir lengst hlaupið
Laugaveginn (53 km) á síðasta ári.
Með afreki sínu fá þeir inngöngu í
Félag 100 km hlaupara á Íslandi, en
þar eru fyrir tveir af félögum þeirra
úr Hlaupahópnum Flandra í Borg-
arnesi, þeir Jósep Magnússon og
Gunnar Viðar Gunnarsson.
SG
Eldsmiðir komu saman
Tveir Borgnesingar hlupu 100 km í Bretlandi
Góðviljaði óvætturinn Shuck fyrir
utan dómkirkjuna í Bury St Edmunds.
(Ljósm. Hjalti).
Jón Arnar og Hjalti í Newmarket rétt áður en þeir lögðu af stað í hlaupið.
Ljósm. Margrét Katrín Guðnadóttir.
Færið á ökrunum var sums staðar frekar þungt. Ljósm. Jón Arnar.
Merki hlaupsins. (Af heimasíðu).
Marksvæðið í Cattawade. (Af heimasíðu).