Skessuhorn


Skessuhorn - 19.08.2020, Síða 20

Skessuhorn - 19.08.2020, Síða 20
MIÐVIKUDAGUR 19. áGúSt 202020 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Pennagrein Fyrir stuttu birtist hér grein eftir bæjarfulltrúann Einar Brandsson sem bar heitið „Skipulagsslysfarir í Skógahverfi“. Í greininni er fullyrt að byggð eigi að koma svo gott sem upp að Garðalundi sem um leið myndi útiloka þann möguleika að tengja Garðalund saman við skógræktar- svæðið í Klapparholti. Meðfylgj- andi eru myndir til skýringar þar sem sjá má drög að nýju skipulagi eins og það hefur verið auglýst. Möguleiki á stækkun og tenging- ar þarna á milli eru svo sannar- lega til staðar eins og sjá má. Skipulag er í eðli sínu lifandi og þarf að geta tekið breytingum í takt við tíðaranda, á sama tíma þurfa íbúar að búa við ákveðna vissu. Í því skipulagi sem hér um ræðir var áður ýmislegt teiknað upp sem ekki á við í dag og þar af leiðandi þarf að vinna með skipulagið og sníða það að þróun byggðar. áform um hótelbygg- ingu, nýtt æfingasvæði, tjaldsvæði – sem síðar var sett niður við Kal- mansvík, eða nýjan kirkjugarð - sem ekki er lengur þörf á þar sem núverandi garður var stækk- aður. Allt var þetta á einhverjum tímapunkti hluti af svokölluðu Garðalundar skipulagi sem nú er verið að falla frá. Þess í stað koma meðal annars inn í skipu- lagið aukin skógrækt, opin svæði og matjurtagarðar. Þetta er dæmi um lifandi skipulag í takt við tíð- aranda. Í grein bæjarfulltrúa Einars Brandssonar segir: „Nú má meirihlutinn eiga það að hann gerir þetta með óbragð í munni og til þess að friða samvisku sína er ráðgert að dreifa grænum bleðlum hér og þar á milli húsa. Slíkir bleðlar eru og verða eng- um til gagns en eru bæjarfélög- um stór fjárhagslegur baggi. Póli- tískir samherjar meirihlutans í ná- grannasveitarfélagi einu hafa ný- lega leyst slíkt mál með því að fylla slíkt svæði með sjávarmöl.“ Það sem bæjarfulltrúi Einar kallar „græna bleðla hér og þar“ í grein sinni, er einmitt ein af megináherslum skipulagsbreyt- inganna. Göngu- og hjólastígar sem þvera hverfið og tengja sam- an við aðra hluta Skógahverfisins. Stígur sem gerir leik- og grunn- skólabörnum kleift að fara beint af skólalóð og upp í Garðalund án þess að þurfa að ganga í umferð. Blágrænar ofanvatnslausnir sem flytja regnvatn til sjávar og verða vonandi uppspretta ótal veiði- og vísindaferða, svo ekki sé nú talað um leikvöllur stíflusmiða framtíð- arinnar. Þessi framtíðarsýn á ekk- ert skylt við þær umferðareyjar sem vísað er til eða bleðla hér og þar sem verða engum til gagns. Hvað snýr að eftirsjá bæjarfull- trúa Einars eftir hóteluppbygg- ingu á svæðinu sem hann lýsir jafnframt í grein sinni, þá skýt- ur það skökku við að gagnrýna á sama tíma færslu íbúðabyggðar að hans mati of nærri Garðalundi. Hótelreiturinn á fyrra skipulagi er, eins og sjá má á mynd, þétt við inngang Garðalundar. Þá má á það benda að þó virðulegur bæj- arfulltrúi viti ekki til þess að menn hafi óskað eftir þessari breytingu, þá hefur undirritaður að sama skapi ekki vitneskju um það að óskað hafi verið eftir þessari lóð á mesta hótel-uppbyggingar- skeiði lýðveldisins. Við getum þó kannski verið sammála um það að okkur Skagamenn sárvantar hótel en við eigum nú þegar frábæran reit niður við sjó, sem er hluti af nýju skipulagi Sementsreits. Bæjarfulltrúi Einar hefur ítrek- að haldið því fram að skipulagið sé keyrt áfram af meirihlutanum og við lestur fyrrnefndrar grein- ar mætti ætla að það væri gert í andstöðu allra í minnihlutanum. Sannleikurinn er sá að hann hef- ur einn greitt atkvæði gegn skipu- laginu á fyrri stigum þess. Mál- flutningur hans til þess að hreinsa hendur Sjálfstæðisflokksins af máli þessu hefur verið svo einbeittur að fulltrúi sama flokks í skipulags- og umhverfisráði sá sig knúinn til þess, á fundi bæjarstjórnar, að leiðrétta hann og benda á þá stað- reynd að í skipulags- og umhverf- isráði sætu fulltrúar allra flokka, sem sameiginlega hefðu unnið að þessari breytingu. Réttilega heimilaði bæjarráð að auglýsa skipulagið með tveimur atkvæðum meirihluta bæjarráðs þegar fulltrúi minnihluta kaus að sitja hjá við afgreiðslu máls- ins. Það er þó ekki þar með sagt að málið sé að fullu afgreitt því að auglýsingartíma loknum kemur málið aftur inn til bæjarstjórnar til umræðu og ákvarðanatöku. Allt tal um leyndarhyggju, illa ígrund- uð vinnubrögð eða að hér sé ver- ið að lauma einhverju í gegn er í hæsta máta hlægileg. Í grein sinni vísar bæjarfulltrúi Einar til kynningarfundar um málið. Það sætir furðu að sjá bæjarfulltrúann fara niður á það plan að leggja starfmönnum bæj- arins og skipulagshöfundi orð í munn og lýsa yfir takmörkuð- um skilningi þeirra á möguleik- um svæðisins. Þeirra hlutverk er einfaldlega að kynna drög að þeim skipulagsgögnum sem fyr- ir liggja. Sömu gögn hafa áður farið í gegn um pólitíska umræðu og ákvarðanatöku. Það var með- vituð ákvörðun undirritaðs að vera ekki viðstaddur fyrrnefndan kynningarfund þar sem tilgang- ur fundarins er að fara yfir stað- reyndir máls og fyrirliggjandi skipulagsgögn. Opinn kynning- arfundur er ekki til þess ætlaður að fara í pólitískt karp. Það hef- ur hins vegar ekki staðið á því að undirritaður hefur eftir fremsta megni rætt við hagsmunaaðila eða aðra áhugasama sem þess hafa óskað. Auðvitað er það svo að þegar skipulagið er lagt fram er það gert í þeirri trú að hér sé um bestu niðurstöðu að ræða. Mik- ilvægi skipulagsferlisins í heild hefur í þessu máli sannað sig og er þetta í annað sinn sem skipu- lagið er kynnt. á auglýsingatíma fyrri skipulagslýsingar bárust at- hugasemdir og ábendingar sem brugðist var við að miklu leyti, þó að ljóst sé að í málum sem þessum verði seint hægt að sætta öll sjónarmið. Ég er sannfærður um að sú vinna og það samtal sem hefur átt sér stað við útfærslu þessa skipulags muni færa okkur gott, spennandi og skemmtilegt svæði til þess að búa á og njóta. Ragnar Sæmundsson Höf. er bæjarfulltrúi fyrir Fram- sókn og frjálsa á Akranesi og formað- ur skipulags- og umhverfisráðs. Skýr framtíðarsýn í Skógahverfi Áhersla verður lögð á tengsl íbúðabyggðar og aðliggjandi útivistar- og skógræktarsvæða. Örvar sýna helstu göngustíga- tengingar byggðar og útivistarsvæða.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.