Mosfellingur - 25.06.2020, Page 8
Ingólfur Hrólfsson formaður
s. 855 2085 ihhj@simnet.is
Úlfhildur Geirsdóttir varaformaður
s. 896 5700 bruarholl@simnet.is
Margrét Ólafsdóttir gjaldkeri
s. 863 3359 margretjako@gmail.com
Snjólaug Sigurðardóttir ritari
s. 897 4734 snjolaugsig@simnet.is
Kristbjörg Steingrímsdóttir meðstjórnandi
s. 898 3947 krist2910@gmail.is
Jóhanna B. Magnúsdóttir 1. varamaður
s. 899 0378 hanna@smart.is
Bragi Bergmann Steingrímsson
2. varamaður bbergman@hive.is
StJÓrn FaMoS
Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin eirhömrum • fram undan í starfinu
- Fréttir úr bæjarlífinu8
Skrifstofa félagsstarfsins er opin
alla virka daga kl. 13–16. Sími félags-
starfsins er 586-8014. Forstöðumaður
félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ
er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda-
og félagsmálafræðingur, s: 698-0090.
Skrifstofa FaMos á Eirhömrum
er opin alla fimmtudaga frá kl. 15–16.
FélaG aldraðra
í Mosfellsbæ og nágrenni
famos@famos.is
www.famos.is
Heilsársratleikur
opnar á sunnudag
Stórskemmtilegur heilsársratleikur
sem liggur úr Álafosskvos og um
Reykjalundarskóg verður opnaður
með pompi og prakt sunnudaginn
28. júní. Ratleikurinn er samstarfs-
verkefni Heilsueflandi samfélags
í Mosfellsbæ, Ferðafélags Íslands
og Framhaldsskólans í Mosfellsbæ.
Hugmyndin er sprottin upp úr
gjöfulu samstarfi Heilsueflandi
samfélags og FÍ sem lét gera ratleik
á svipuðum nótum í Heiðmörk
fyrir nokkrum árum. Íþrótta- og
lýðheilsukonurnar Íris Björk
Ásgeirsdóttir og Halla Heimisdóttir
útfærðu leikinn í Mosfellsbæ
og nutu þær dyggrar aðstoðar
nemenda úr FMOS. Útkoman er
glæsilegur heilsársratleikur fyrir
alla aldurshópa. Markmiðið er að
fá fjölskyldur, skólahópa, vinahópa
og einstaklinga á öllum aldri út til
að hreyfa sig í dásamlegu umhverfi,
uppgötva undur náttúrunnar
og njóta samvista með öðrum.
Vegalengd ratleiksins er um 2,5
km og á leiðinni eru 20 númeraðar
stöðvar þar sem finna má fróðleik,
verkefni og þrautir. Reikna má
með að þátttaka í ratleiknum taki
um 1-2 klst. Allir eru velkomnir á
opnun ratleiksins í Álafosskvos á
sunnudaginn.
SíðSuMarSFerð
11. áGÚSt 2020
Á vegum FaMos og Félagsstarfsins
Farið verður
að Flúðum á
mjög flottan
veitingastað hjá
Flúðasveppum
þar sem við fáum
kynningu á starf-
seminni þeirra
og snæðum svo
af þeirra flotta
sælkerahlaðborði
og kaffi á eftir.
Aðrir drykkir ekki innifaldir. Síðan verður
farið í hellaskoðun í Landssveit þar sem
aðgengi er mjög gott . Þar verður boðið
upp á kaffi og meðlæti á eftir.
Lagt verður
af stað frá
Eirhömrum
kl. 10,
heimkoma
milli kl. 17
og 18. Verð
í þessa ferð er 8.500 kr. á mann. Hægt er
að skrá sig hjá Elvu Björgu forstöðumanni
félagsstarfsins í síma 586-8014 /698-0090
eða hjá Margréti formanni ferðanefndar
FaMos í síma 863-3359.
SíðSuMarSHátíð
FaMoS
Verður í Harðarbóli laugardaginn
8. september kl. 16. Boðið verður upp á
veitingar og skemmtiatriði.
TAKIÐ DAGINN FRÁ. Nánar auglýst síðar.
Verkefnið er ríkisstyrkt viðbótarverkefni í
félagsstarfi fullorðinna fyrir sumarið 2020
vegna COVID-19.
deMantaMyndIr
Ný sending
Erum að taka upp nýja sendingu af
demantamyndum sem verða til sölu í
handverksstofu eftir 29. júní. Mjög falleg-
ar myndir á góðu verði. Verið velkomin.
SuMarFrí í
FélaGSStarFInu
Verðum með lokað í handverksstofu
frá og með 27. júlí til og með 4. ágúst.
Sjáumst hress 5. ágúst:)
Mosfellsbær og Reitir fasteignafélag vinna
saman að deiliskipulagi fyrir nýjan atvinnu-
kjarna í landi Blikastaða.
Svæðið er við Vesturlandsveg á sveitarfé-
lagamörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæj-
ar. Á svæðinu er fyrirhuguð uppbygging
atvinnukjarna sem skipulagður verður
með náttúru, sjálfbærni og samnýtingu að
leiðarljósi. Náttúra og lífríki í ánni Korpu
og í skógræktinni í hlíðum Úlfarsfells skapa
vistlega umgjörð um hverfið. Deiliskipulag
tekur mið af náttúru, hugmyndum um sjálf-
bærni og samnýtingu innviða á svæðinu.
Vegtengingar eru greiðfærar og Borgar-
lína er fyrirhuguð gegnum svæðið sem er
mikilvægt fyrir eflingu atvinnulífs Mosfells-
bæjar.
atvinna, náttúra og sjálfbærni
„Okkar markmið er að svæðið byggist
upp í takt við þarfir fyrirtækja með atvinnu,
náttúru, sjálfbærni og samnýtingu að leið-
arljósi. Við viljum velta við hverjum steini
og hvetjum íbúa til að taka þátt í mótun
svæðisins og hjálpa okkur að finna því við-
eigandi nafn,“ segir Friðjón Sigurðarson,
framkvæmdastjóri þróunarsviðs Reita.
Væntingar standa til þess að deiliskipulags-
vinnu Blikastaðalandsins ljúki seinnihluta
árs 2020 og að gatnagerð og framkvæmdir
geti hafist árið 2021. Hraði uppbyggingar á
svæðinu mun m.a. ráðast af markaðsaðstæð-
um. Gera má ráð fyrir að það gæti tekið allt
að tíu til tólf ár frá því gatnagerð hefst þangað
til svæðið verður fullbyggt.
Nýr atvinnukjarni • 90 þúsund fermetrar af atvinnuhúsnæði á 15 hektara svæði
unnið að deiliskipulagi fyrir
atvinnukjarna í landi blikastaða
Hægt er að senda inn hugmyndir,
athugasemdir, spurningar og taka
þátt í samkeppni um nafn á svæðið á
reitir.is/blikastadir
Nafnasamkeppnin er opin til 30. júní og
verða veitt verðlaun fyrir besta nafnið.
nafnasamkeppni
horft í austur
í átt að úlfarsfelli DÆMi uM MÖGuleGa GÖtuMYND
@
b
la
c
b
o
x
p
iz
z
e
r
ia
Blackbox Borgartúni 26 / Blackbox Mosó háholt 13-15 blackboxpizzeria.is
við internetið
pantaðu á netinu
blackboxpizzeria.is
11:30-13:00 mán-fös
tilboð
eitt
pizza með tveimur
áleggjum & gos
2.000 kr.
take away
tilboð
Þrjú
3 pizzur af matseðli
ódýrasta pizzzan frí
take away
tilboð
fimm
2 pizzur af matseðli,
2 barnapizzur, 2 safar og
2l gos - 6.500 kr.
take away
tilboð
tvö
pizza af matseðli,
meðlæti & 2l gos
3.600 kr.
take away
tilboð
fjögur
2 pizzur af matseðli,
1 meðlæti og 2l gos
5.500 kr.
11:30-13:00 mán-fös
tilboð
sex
allar pizzur á matseðli
2.000 kr.