Ægir

Árgangur

Ægir - 2019, Blaðsíða 6

Ægir - 2019, Blaðsíða 6
Fyrsta útgáfa Ægis á árinu 2019 er að stærstum hluta helguð veiðarfærum og veiðarfæragerð. Fiskiskip hefði lítið gildi án veiðarfæra og þau hafa alla tíð verið ríkur þáttur í árangri í veiðum. Ný og góð veiðarfæri eru þó ekki bein ávísun á árangur því þrátt fyrir allar tækniframfarirnar, tölvuskjáina, veiðarfæra- nemana, tækin og tólin þá er þekking og færni skipstjórnend- anna og sjómannanna alltaf ríkasti þátturinn í því að ná árangri við veiðar. Sumir hafa „nef“ fyrir því hvar fiskinn er að finna þann og þann daginn, aðrir ekki. Veiðarfæragerð hefur verið samofinn útveginum alla tíð og fullyrða má að það hefur verið gæfa greinarinnar hversu mikil þekking hefur byggst upp í þessari iðn hér heima. Líkt og þrautvanir netagerðarmenn rifja upp hér í blaðinu voru neta- gerðirnar til muna fleiri fyrir nokkrum áratugum og starfsmenn í hverri skiptu tugum, að minnsta kosti í stærstu útgerðarpláss- unum. Þá voru enda miklu fleiri bátar í útgerð en eru í dag og allir þurftu sína þjónustu. Tjón á veiðarfærum, festur í botni og alls kyns uppákomur á miðunum þóttu ekki sérstök tíðindi fyrr á árum en slíkt gerist sjaldan í dag. Með tilkomu plastefnanna sem tóku við af hampnum varð mikil bylting í veiðarfæragerðinni og skipti miklu fyrir greinina að Hampiðjan skyldi á sínum tíma fylgja tækninni í takti við það sem var að gerast úti í hinu stóra heimi. Frumframleiðsla neta er í dag á fjarlægum svæðum heimsins þar sem vinnulaun eru til muna lægri en hér og um þennan þátt veiðarfæragerðarinnar gilda sömu lögmál og um margt annað í iðnaðarframleiðslunni. Stærstu nætur eru framleiddar erlendis en minni togveiðarfæri eru alla jafna sett upp hjá innlendum netagerðum. Þó iðngreinin hafi með árunum tekið miklum breytingum þá er mikilvægi þekkingar á þessu sviði enn til staðar og þess vegna fagnaðar- efni ef tekst að laða fleira ungt fólk til náms í netagerð. Og líkt og bent er á í umfjöllunum hér í blaðinu þá ætti ekki síður að vekja athygli á þessu námi meðal ungra kvenna því nútíma netagerðarverkstæði er tæknivætt og því ekki spurning um lík- amlega burði í þessu starfi. Lykilatriði í dag er að veiðarfæri séu sem sterkust en jafn- framt sem léttust í drætti. Þar er horft til eldsneytiseyðslu skip- anna við veiðar og undirstrikar þetta hversu mikil hugsun er um þennan þátt í greininni, ekki aðeins út frá kostnaðarhliðinni heldur einnig út frá umhverfissjónarmiði. Það hversu nákvæm- lega skipstjórnendur geta fylgst með veiðarfærum í sjó er líka umhverfismál gagnvart umgengninni um lífríkið og hafsbotninn. Allt er þetta hluti af vöruþróun í veiðarfærum. En til þess að vöruþróun eigi sér stað þarf áhuga þeirra sem framleiða veiðar- færi til að gera breytingar, vilja til að prófa nýjungar og sitja þannig ekki í sama farinu. Í þessu efni er mikil gæfa hversu nýj- ungagjarnir Íslendingar eru, í sjávarútvegi ekki síður en á öðr- um sviðum þjóðfélagsins. Stundum reynast nýjungar afturför en stundum mikil framfaraskref. Þau síðarnefndu hafa verið miklu fleiri í gegnum árin og aldirnar á veiðarfærasviðinu og hafa þannig treyst þá keðju sem býr að baki þeim öfluga sjávarútvegi sem við byggjum á í dag. Jóhann Ólafur Halldórsson skrifar Mikilvægi veiðarfæragerðarinnar Vökvakerfislausnir Vökvadælur, vökvamótorar og stjórnbúnaður Danfoss hf. Skútuvogi 6, 104 Reykjavík, Sími: 510 4100 www.danfoss.is Stjórnbúnaður skipa. Tæknibúnaður sem ætlaður er til notkunar á sjó mætir erfiðustu hugsanlegu skilyrðum. Álag óblíðrar náttúru, miklar hitabreytingar og stöðugur ágangur af söltum sjó, eykur þörf viðskiptavina fyrir áreiðanlegan og skilvirkan búnað. Út gef andi: Ritform ehf. ISSN 0001-9038 Rit stjórn: Ritform ehf. Glerárgötu 24, Ak ur eyri. Rit stjór i: Jóhann Ólafur Hall dórs son (ábm.) GSM 899-9865. Net fang: johann@ritform.is Aug lýs ing ar: Inga Ágústsdóttir. inga@ritform.is Hönnun & umbrot: Ritform ehf. Suðurlandsbraut 30, Reykjavík. Sími 515-5200. Á skrift: Hálfsársáskrift að Ægi kostar 6800 kr. Áskriftar símar 515-5200 & 515-5205. Af Ægi koma út 10 tölublöð á ári. Eft ir prent un og ívitn un er heim il, sé heim ild ar get ið. Leiðari 6

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.