Ægir

Árgangur

Ægir - 2019, Blaðsíða 28

Ægir - 2019, Blaðsíða 28
28 „Það skiptir miklu máli fyrir okkur að vera með starfsstöðvar út um landið, vera nálægt útgerðarfyrirtækjunum og geta þannig brugðist við þegar þau þurfa á þjónustu að halda með stuttum fyrirvara,“ segir Jónas Þór Friðriks- son, deildarstjóri togveiðideildar Ísfells sem rekur átta starfsstöðvar á land- inu, þ.e. í Hafnarfirði, Vestmannaeyjum, Þorlákshöfn, á Flateyri, Sauðárkróki, Akureyri, Húsavík og í Ólafsfirði. Hann segir fyrirtækið veita þjónustu á öll- um sviðum togveiðarfæra og nótaveiða, bæði uppsetningu nýrra veiðarfæra og viðhaldi en á síðari árum hafi umsvifin helst aukist á uppsjávarsviðinu. Ísfell býður einnig upp á allt sem varðar línu- og netaveiðar og er jafn- framt umboðsaðili Mustad Autoline en beitningarvélabúnaður frá Mustad er um borð í um 70 skipum víðsvegar um landið. Ísfell býður einnig upp á hágæða línu og beitu og er beitan geymd í nokkr- um landshlutum og því auðvelt að nálg- ast hana hvar sem menn eru staðsettir á landinu. Ísfell er einnig með Mustad um- boðið á Grænlandsmarkaði og hafa farið þangað á annan tug beitningarvélakerfa ásamt línu undanfarin þrjú ár. Ísfellslín- an hefur reynst mjög vel og er seld mjög víða, t.d. Noregi, Kanada, Grænlandi og hefur einnig mjög mikla markaðshlut- deild hér heima. Rússnesku flottrollin komið vel út „Við höfum verið að efla okkur í flottroll- um fyrir uppsjávarveiðar allra síðustu ár og það byggist aðallega á samstarfi sem við tókum upp við rússneska fyrir- tækið Fisheries Service. Við seljum og þjónustum flottrollin þeirra hér á landi og hafa makríltrollin frá þeim verið að koma sérstaklega vel út. Síðan hefur verið góð þróun hjá þeim í trollum fyrir kolmunnaveiðar og eru fyrstu trollin að fara í prufu á næstu vikum hérlendis en Góð veiðarfæri eru lykill að ár- angri í veiðum segir Jónas Þór Friðriksson, deildarstjóri togveiðideildar Ísfells ■ „Áhersluefnið í allri veiðarfæraþróun undangenginna ára hefur snúist um að reyna eftir megni að létta veiðarfærin og spara með því olíu en jafnframt að veiðarfærin séu sterkari og endingarbetri á sama tíma,“ segir Jónas.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.