Ægir

Árgangur

Ægir - 2019, Blaðsíða 12

Ægir - 2019, Blaðsíða 12
12 Þenslutengi sem eru einnig kölluð þenslumúffur, þanar eða bara tengi eru notuð víðsvegar og í margskonar útfærslum. Fyrirtækið MD Vélar ehf. sérhæfir sig í þenslutengjum og er komið sterkt inn á íslenska mark- aðinn í samstarfi við VM Kompensator A/S í Dan- mörku sem býður upp á fyrsta flokks þenslutengi. „Sérstaða VM Kompensator er að þeir bjóða alhliða þjón- usta frá a til ö. Þá fara þeir út í fyrirtækin, mæla, ráðleggja og sérhanna eftir þörfum. Þá bjóða þeir einnig uppsetningu fyrir viðskiptavininn,“ segir Laila Björk Hjaltadóttir, fjár- mála- og viðskiptastjóri MD Véla. Tengi sem þola mikið álag VM Kompensator framleiðir vef- og stáltengi eftir óskum og þörfum viðskipavinarins og er einnig með umboð fyrir gúmmítengi frá Trelleborg en í nóvember síðastliðnum fékk VM Kompensator vottun sam- kvæmt gæðakerfi ISO 9001. Stáltengin fást frá DN25 upp í DN5000 og hafa þá sérstöðu að öll tengi eru virkjuð, pressuð og teygð til að virkja allar bylgjur í belgnum. „Flestir sem hafa haft með stáltengi að gera kannast við að fyrstu bylgjurnar í hvorum enda eru viðkvæmastar og mæðir mest á þeim og þar slitnar tengið en með því að nota þessa tækni tekur allur belgurinn við hreyfingu og eykur það endingartíma teng- isins til muna. Veftengin eru sérhönnuð eftir þörfum, náið samstarf við viðskiptavininn er lykilatriði til að tryggja að tengin standist þær kröfur og aðstæður sem eru fyrir hendi. Hægt er að hanna tengi sem þola mikið álag frá alskyns Þjónusta MD Vélar ehf. Alhliða þjónusta í samstarfi við VM Kompensator ■ Fyrirtækið MD Vélar ehf. er til húsa að Vagnhöfða 12 í Reykjavík.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.