Ægir

Árgangur

Ægir - 2019, Blaðsíða 14

Ægir - 2019, Blaðsíða 14
14 „Ég byrjaði að vinna fjórtán ára gamall hjá Netagerðinni Ingólfi árið 1974 og þá voru bæði fleiri sjálfstætt starf- andi netagerðir hér í Eyjum auk netagerða hjá útgerðun- um. Bátarnir voru mun fleiri á þeim árum hér í Eyjum, auk þess að á vertíðum var fjöldi aðkomubáta þannig að höfnin var full af skipum sem þurftu sína þjónustu,“ segir Birkir Agnarsson, netagerðarmeistari hjá Ísfelli í Vest- mannaeyjum sem á að baki 45 ára starfsferil í greininni. Hann starfaði alla tíð hjá Netagerðinni Ingólfi og var þar framkvæmdastjóri þegar Ísfell keypti starfsemina árið 2002 og hefur hann stýrt þeirri starfsstöð síðan. „Á þessum fyrstu árum mínum sinntum við veiðar- færaþjónustu út um allt land, bæði uppsetningu á veiðar- færum og viðgerðum. Hjá Netagerðinni Ingólfi voru allt upp undir 60 manns í vinnu þegar mest var og við önnuð- umst allt sem að veiðarfæra- þjónustu snýr. Efnin voru þá talsvert önnur en í dag, PE netið var fyrir stuttu síðan búið að leysa hampinn af hólmi en tilkoma þess var hvað stærsta byltingin í veið- arfæragerðinni á síðari hluta síðustu aldar,“ segir Birkir. Dynema ofurefnið breytti miklu Tveir lykilþættir þurfa að fara saman í veiðarfæragerðinni, þ.e. að veiðarfærin séu sem sterkust en jafnframt sem létt- ust í drætti. Þróun á efnum til veiðarfæragerðar hefur því stöðugt haldið áfram og segir Birkir að tilkoma dynema efn- isins á síðari árum hafi verið eitt stærsta framþróunar- skrefið. „Þetta er gjarnan kallað of- urefnið því það er sterkara en stálvír í sama sverleika. Í dag er dynema notað í nánast allt, hvort heldur eru hefðbundin troll, flottroll eða nætur. Með dynema nást þessir lykilþættir fram, þ.e. að á móti auknum stykleika efnisins er hægt að grenna þræðina og létta þannig veiðarfærið í drætti. Í dag er farið að klæðskera- sauma veiðarfæri fyrir hvert skip, ef svo má segja. Það auð- veldar mönnum vinnuna úti á sjó og sparar um leið bæði tíma og olíu,“ segir Birkir en hjá Ísfelli í Vestmannaeyjum segir hann unnið að fjöl- breyttum verkefnum enda heimaútgerðirinar öflugar bæði í trollveiðum, flottrolls- veiðum og nótaveiðum. „Starfstöð Ísfells er ekki síst þekkt fyrir þjónustu við nótaveiðiskipaflotann hér í Eyjum, hvort sem er uppsetn- ing eða viðhald. Í dag er þetta þó orðið þannig að við látum ■ Verkstjórar Ísfells Vestmannaeyjum. Frá vinstri: Birkir Agnarsson útibússtjóri, Alexander Matthíasson yfirverkstjóri, Birkir Yngvason verkstjóri og Birgir Guðjónsson verkstjóri. Veiðarfæri klæðskera- saumuð fyrir hvert og eitt skip í dag Birkir Agnarsson, netagerðarmeistari hjá Ísfelli í Vestmannaeyjum hefur starfað í greininni í 45 ár og verður 60 ára á þessu ári

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.