Ægir - 2019, Blaðsíða 9
9
okkar stöð verður sú full-
komnasta innan Egersund
Group. Það byggist meðal
annars á því að við erum með
öflugan hreinsibúnað fyrir sjó
sem notaður er í þvottinum og
þannig er vökvinn sem fer til
baka í sjó nánast drykkjar-
hæfur,“ segir Stefán en ráð-
gert er að þvottastöðin verði
tilbúin nú í febrúar og litunar-
stöðin tímanlega fyrir vorið.
„Við erum að efla okkur í
þjónustu við fiskeldisfyrirtæk-
in en við seljum að auki allan
búnað sem fiskeldið þarf á að
halda í samstarfi við systur-
félag okkar AKVA group. Í
raun allt annað en fiskinn
sjálfan. Við vonumst til að fá
til okkar poka í meðhöndlun
frá eldisfyrirtækjum víðar um
land þannig að við erum ekki
einvörðungu að horfa til Aust-
fjarða í þessum efnum,“ segir
Stefán.
Stórt hús lykilatriði
Aðspurður um verkefni í veið-
arfæraþjónustunni segir Stef-
án það vera lykilatriði að vera
með stórt hús og góða vinnu-
aðstöðu.
„Húsið hjá okkur er 130
metra langt og veitir ekki af
þegar veiðarfærin eru stöðugt
að stækka. Lengi vel vorum
við með troll í kringum 2000
metra með 48 metra möskva.
Síðan fóru menn að stækka
möskvana upp í 64 metra og
trollin upp í 2300 metra og á
síðasta ári settum við upp
troll fyrir Aðalstein Jónsson
sem var 2700 metrar þannig
að þróunin hefur mikið verið í
þá átt að veiðarfærin stækki.
En á sama tíma er líka verið
að glíma við að létta veiðar-
færin til að auðveldara sé að
draga þau. Og þar kemur til
framþróun á undanförnum ár-
um í efnum til veiðarfæra-
gerðar. En þróunin hefur líka
verið mikil í skipunum; þau
eru stærri og öflugri, betri
tæknibúnaður er kominn til að
stýra veiðarfærunum, léttari
og betri toghlerar, betri spil-
búnaður og þannig má áfram
telja. Allt spilar þetta saman í
eina heild,“ segir Stefán.
Næturnar geymdar við
bestu aðstæður
Í nótahóteli Egersund Ísland á
Eskifirði geyma útgerðir
loðnu- og síldarnætur sínar
við bestu aðstæður milli ver-
tíða og geta gengið að þeim
tilbúnum þegar á þarf að
halda. „Í hefðbundu árferði
geta verkefni okkar við nætur
verið frá tveimur upp í fjóra
mánuði, oftast þá á síðari
hluta ársins. Eftir vertíð er
farið yfir næturnar og skráð
niður hvað þarf að gera, pant-
að inn efni erlendis frá ef þarf
og síðan lögum við næturnar
tímanlega fyrir vertíð. Þar af
leiðandi eru það mjög slæmar
fréttir fyrir okkur, líkt og fyrir
útgerðirnar sjálfar, ef svo fer
sem litið hefur út fyrir að
brestur verði í loðnuveiðum í
ár. Við vonum í lengstu lög að
líkt og síðustu ár verði loðna
að einhverju marki veiðanleg
seint á vertíðinni. Mynstur
loðnunnar er greinilega nokk-
uð frábrugðið því sem við höf-
um þekkt mörg undanfarin
ár,“ segir Stefán.
■ Á vormánuðum áformar Egersund Ísland að ljúka framkvæmdum við þvotta- og litunarstöðina en framkvæmdirnar kosta
hátt í 300 milljónir króna. Þær koma til með að stórauka möguleika í þjónustu við fiskeldisfyrirtækin.
■ Stefán B. Ingvarsson, framkvæmdastjóri Egersund Ísland.
Veiðarfæri