Ægir

Árgangur

Ægir - 2019, Blaðsíða 31

Ægir - 2019, Blaðsíða 31
31 Lítill hagnaður af hvalveiðum og hvalaskoðun Skýrsluhöfundar fullyrða í niðurstöðum sínum að hagnaður af hvalaskoðun og hvalveiðum hafi verið lítill síðustu ár. „Í báðum greinum hefur því stærsti hluti virðisaukans verið laun og launatengd gjöld. Laun og launatengd gjöld allra hvalaskoðunarfyrirtækja á Íslandi námu 1.635 milljónum kr. á árinu 2017, en laun og launatengd gjöld Hvals hf. námu 1.034 milljónum króna. Fleiri vinna við hvala- skoðun en hjá Hval hf., en laun starfs- manna Hvals hf. eru mun hærri. Með- almánaðarlaun í hvalaskoðun námu um 460 þús. kr. á mánuði 2017 en meðallaun hjá Hval hf. reikningsárin 2015/2016 og 2016/2017 námu um 1,1 milljón á mánuði. Tekjur af hrefnuveiðum hafa ekki verið miklar síðastliðin ár, en þær gætu aukist ef erlendir markaðir opnast.“ Hvalaskoðun er eðlileg auðlindanýting Skýrsluhöfundar gera hvalaskoðun að sérstöku umræðuefni og segja hana eðli- lega nýtingu á náttúruauðlindu, engu síður en hvalveiðar. „Eðlilegt er að um hana gildi reglur sem tryggja hagkvæma nýtingu með sjálfbærni og virðingu fyrir náttúrunni að leiðarljósi. Ef of mörg hvalaskoðunarfyrirtæki elta hvali á litlu svæði er hætt við að hvalir forðist svæð- ið og afkomu greinarinnar sé stefnt í hættu. Mikil umræða hefur verið innan Alþjóðahvalveiðiráðsins um það hvort hvalaskoðun sé sjálfbær. Rannsóknir sýna að hún getur haft áhrif á hegðun hvala og truflað þá í fæðuleit. Alþjóða- hvalveiðiráðið hefur gefið út handbók með verklagsreglum sem miða að því að draga sem mest úr truflunum af völdum hvalaskoðunar. Mörg lönd hafa sett regl- ur um hvalaskoðun. Bæði náttúrvernd- arsamtök og Hafrannsóknastofnun bentu á það í umsögnum um frumvarp til laga um hvali árið 2009 að eðlilegt og æskilegt væri að setja lög eða reglur að þessu tagi. Þörfin á lagasetningu hefur ekki minnkað.“ Miðað við varfærið mat á stofnstærðum og áti hvala, éta hvalir við Ísland 7,6 milljónir tonna af fiski, smokkfiski og krabba- dýrum (ljósátu) (þar af eru 2,9 milljónir tonna af fiski). Þetta er u.þ.b. sjöfalt það magn sem allur íslenski fiskiskipaflotinn veiðir. Hvalveiðar Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft. Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að þörfum hvers og eins viðskiptavinar. www.stolpigamar.is Hafðu samband 568 0100 Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.