Ægir - 2019, Side 10
10
Marás ehf. hefur tekið við
umboði hér á landi fyrir
spænska vinduframleiðand-
ann Ibercisa. „Með tilkomu
þessa umboðs getum við
boðið heildstæð stjórn- og
vindukerfi hér á markaðnum
en við höfum um árabil selt
„auto-troll“ vindustjórnbún-
að frá Scantrol í Noregi, bæði
í nýsmíðar í fiskiskipaflotan-
um og eldri fiskiskip,“ segir
Þorkell Guðmundsson, sér-
færðingur í Scantrol búnað-
inum hjá Marás.
Þorkell segir að auk sölu-
umboðs fyrir Ibercisa vindurn-
ar muni Marás hér eftir annast
alla viðhalds- og varahluta-
þjónustu fyrir þá fjölmörgu
notendur Ibercisa sem eru í
fiskiskipaflotanum. „Scantrol í
Noregi hefur um árabil unnið
með Ibercisa og því búum við
að mikilli reynslu í notkun
þessara kerfa. Þetta eru hvort
tveggja mjög þekkt merki og
mikið ánægjuefni fyrir okkur
að geta nú boðið heildstæðar
lausnir á þessu sviði fyrir allar
gerðir togskipa,“ segir Þorkell.
Scantrol tengjanlegt við
allar vindur
Vindustjórnbúnaður frá Scan-
trol segir Þorkell hafa þann
stóra kost að auðvelt sé að
tengja hann mismunandi
vindu búnaði, hvort heldur er
um að ræða vökvaknúnar há-
þrýsti- eða lágþrýstivindur
eða rafmagnsvindur. Framleið-
andinn leggi mikið upp úr að
kerfið geti þannig nýst sem
best, óháð því hvaða gerð af
vindum skip eru búin.
„Scantrol á sér langa sögu
og mörg íslensk skip eru með
kerfið en ég hef einnig komið
að uppsetningum á Scantrol-
kerfinu erlendis, m.a. í stór
stórum rússneskum vinnslu-
togurum sem fá viðhaldsþjón-
ustu í Suður-Kóreu. Tengi-
hæfni kerfisins og einfaldleik-
inn eru stóru kostir Scantrol
kerfisins. Svona „auto-troll“
kerfi hefur gjörbreytt vinnu
skipstjórnenda. Áður fyrr
köstuðu menn út trollinu og
treystu á bremsurnar en núna
er allt stillt inn í kerfið sem
síðan sér um að halda veiðar-
færinu nákvæmlega eins og
beðið er um, gefa eftir og hífa
inn eftir því sem átakið breyt-
ist. Og halda einnig réttri
stöðu í stjór og bak til að veið-
arfærið sé sem réttast eða þá
að stilla kerfið inn á ákveðna
skekkju ef þess gerist þörf og
þá sér Scantrol um að halda
henni.“
Scantrol sér um togið frá
upphafi til enda
Grunnvirknin er sú að kerfið
sér algjörlega um að halda
trollinu sem allra mest opnu
fyrir aftan skipið, sem að sjálf-
sögðu er lykilatriði í því að ná
árangri í veiðum.
„Þegar á að hífa er bara ýtt
á einn takka á skjánum og hífir
kerfið trollið inn sjálfkrafa og
stoppar þar sem það tók við,
þegar trollið var látið fara.
Maðurinn í brúnni tekur þá
við með fjarstýringunni og
klárar ferlið þaðan. Svona
vinnur þetta í grunninn;
stjórnar öllu ferlinu frá því
trollið er komið í sjóinn og þar
til það er komið upp að skipinu
á ný,“ segir Þorkell.
Hann segir „auto-troll“ hafa
gjörbreytt vinnu skipstjóranna
og ekki síður hlífi kerfið ýms-
um búnaði, s.s. vindum og
bremsum, að ónefndum veiðar-
færunum sjálfum.
„Í dag reynir enginn að
kasta veiðarfæri með gamla
laginu eftir að hafa notað
„auto-troll“. Þetta er ómissandi
tæki í nútíma fiskveiðum,“ seg-
ir Þorkell.
Marás með Ibercisa vindur
og Scantrol stjórnkerfi
■ Skjámyndir úr Scantrol vindustjórnkerfinu gera notendum
auðvelt að fylgjast með og stilla kerfið. Scantrol sér síðan
um togið frá upphafi til enda.
■ Togskip búið Ibercisa vindukerfi. Marás hefur nú tekið við um umboði fyrir þetta merki
hér á landi.
Veiðarfæri