Ægir - 2019, Page 20
20
Nýjar rafmagnstogvindur
frá íslenska vindufram-
leiðslufyrirtækinu Naust
Marine voru settar í frysti-
togarann Blæng NK undir
lok síðasta árs og hafa þær
reynst vel, að sögn Helga
Kristjánssonar, markaðs-
stjóra Naust Marine. Raunar
eru þetta fyrstu vindurnar
frá Naust Marine sem fara í
íslenskt fiskiskip eftir að
fyrirtækið hóf framleiðslu á
Spáni undir eigin merkjum á
síðasta ári eftir að hafa ver-
ið með vinduframleiðslu um
tíma í Serbíu. Fram að því
hafði fyrirtækið sérhæft sig
í framleiðslu á stjórnkerfum
fyrir rafmagnsvindur.
Rafmagnsvindur í staðinn
fyrir vökvavindurnar
Naust Marine hefur frá því
fyrirtækið var stofnað árið
1993 lagt áherslu á kosti raf-
drifins sjálfvirks togvindu-
kerfis, ATW CatchControl og
framleitt sjálft stjórnbúnað
fyrir kerfin. Með tilkomu eigin
framleiðslu á vindunum sjálf-
um urðu því þáttaskil í þjón-
ustu fyrirtækisins á þessum
markaði.
„Við getum nú boðið heild-
stæð rafmagnsvindukerfi
undir okkar merkjum og höf-
um á að skipa þrautreyndu
fólki bæði í stjórnkerfafram-
leiðslunni hér heima og í
vindu smíðinni á Spáni. Við
framleiddum vindukerfi á síð-
asta ári í stórt vinnsluskip í
Bandaríkjunum en vindurnar
í frystitogarann Blæng voru
þær fyrstu sem við framleið-
um fyrir íslenskan markað,“
segir Helgi en um borð í
Blæng er 22 ára gamalt vindu-
stjórnkerfi frá Naust Marine
sem hefur staðið sig prýðilega
og var ákveðið að nota það
áfram.
Undir vinduframleiðsluna
falla fjölmargar gerðir af
vindum, s.s. togvindur, kapal-
vindur, grandaravindur,
aukavindur, akkerisvindur og
fleiri. Naust Marine framleiðir
einnig stjórnkerfi fyrir víra-
röðun, aflstjórnkerfi fyrir vél-
arrúm (samkeyrsla á rafölum),
viðvörunarkerfi og fleira.
Stórt verkefni í Rússlandi
í farvatninu
„Stærstu tækifærin fyrir okk-
ar framleiðslu eru sem fyrr á
erlendum mörkuðum. Það
stefnir í að við setjum stjórn-
og vindukerfi í stórt vinnslu-
skip í Bandaríkjunum síðar á
þessu ári og sömuleiðis er
spennandi verkefni hjá okkur
í nýju vindukerfi í hollenskan
dragnótabát sem stundar
veiðar syðst í Norðursjó. Við
vitum af fleiri slíkum útgerð-
um í Hollandi sem fylgjast með
hver reynslan verður.
Síðan eru verkefni í sjón-
máli í Rússlandi, beggja vegna
ef svo má segja. Bæði skip sem
eru á austurströnd Rússlands
þar sem við höfum sett tals-
Naust Marine
Nýjar vindur settar
frystitogarann í Blæng NK
■ Ný kapalvinda frá Naust Marine í bandaríska vinnsluskipinu Seafreeze America.