Ægir - 2019, Page 26
26
Nú um áramótin var öll
starfsemi Hampiðjunnar
sem snýr að veiðarfæra-
gerð, sölu og þjónustu á Ís-
landi sameinuð starfsemi
Fjarðanets ehf. í Neskaup-
stað og nafni félagsins
breytt í Hampiðjan Ísland
ehf. Jón Oddur Davíðsson,
sem áður var sölu- og mark-
aðsstjóri Hampiðjunnar tók
við framkvæmdastjórn nýja
félagsins og segir hann
þessar skipulagsbreytingar
skerpa enn frekar áherslu
Hampiðjunnar á þjónustu
við viðskiptavini sína hér-
lendis.
Fimm starfsstöðvar og 70
starfsmenn
„Hampiðjan hefur um árabil
verið meirihlutaeigandi
Fjarðanets en keypti allt
hlutafé félagsins á síðasta ári
og í kjölfarið var öll starfsem-
in sameinuð í eitt félag. Mark-
miðið er að auka samvinnu
milli okkar starfsstöðva, miðla
þekkingu og verkefnum, nýta
betur mannskapinn en um leið
erum við að efla þjónustunet
Hampiðjunnar út um landið og
færa okkur enn nær við-
skiptavinunum. Það er lykilat-
riði að þeir geti gengið að
okkar þjónustu í sinni heima-
byggð,“ segir Jón Oddur.
Í heild verða starfmenn
Hampiðjunnar Ísland ehf. um
70 talsins en auk netagerðar
og annarrar starfsemi í
Reykjavík rekur félagið starfs-
stöð í Vestmannaeyjum til
viðbótar netaverkstæðunum á
Ísafirði, Akureyri og Neskaup-
stað sem áður tilheyrðu
Fjarðaneti.
Nýtt hús í Neskaupstað
tilbúið í vor
„Hér í Reykjavík rekum við
stórt og mjög öflugt netaverk-
stæði en á fyrri hluta þessa
árs reiknum við með að taka í
notkun nýbyggt og mjög vel
búið hús í Neskaupstað þar
sem auk fullkomins netaverk-
stæðis verður mjög góð að-
staða til geymslu á nótum.
Það er ákveðin bylting fyrir
okkur að geta boðið viðskipta-
vinum slíka þjónustu. Við stát-
um því af tveimur mjög
stórum og velbúnum neta-
verkstæðum þegar húsið í
Neskaupstað verður tilbúið,
sem ég vona að verði í vor
eða byrjun sumars,“ segir Jón
Oddur.
Við þessar breytingar tók
Árni Skúlason við starfi fram-
leiðslustjóra nýja félagsins,
Jón Einar Marteinsson stýrir
útibúinu í Neskaupstað, Her-
mann Guðmundsson er rekstr-
arstjóri á Akureyri og Snorri
Sigurhjartarson rekstrarstjóri
á Ísafirði. Jón Oddur segir
áherslur einstakra útibúa
verða með svipuðum hætti og
verið hafi. „Lykilatriði er að
veita sem besta þjónustu í
byggðarlögunum en sem fyrr
mun útibúið fyrir austan
verða með mikla áherslu á
þjónustu við uppsjávarveið-
arnar og með sama hætti eru
öflugar útgerðir á Norðurlandi
og Vestfjörðum sem útibúin í
þessum fjórðungum munu
þjónusta. Vonandi verður
þetta til mikilla hagsbóta fyrir
útgerðirnar, það er okkar
markmið,“ segir Jón Oddur.
Byggt á langri samfylgd
með íslenskum
sjávarútvegi
Sem fyrr segir Jón Oddur
mikla samkeppni ríkja í sölu
veiðarfæra og þjónustu en
Hampiðjan hafi af að státa
mjög langri sögu í íslenskum
sjávarútvegi.
„Verð, þjónusta og gæði eru
áhersluefni sem þurfa að fara
saman. Vöruþróun er sífellt í
gangi og á því sviði hefur
Hampiðjan alla tíð verið leið-
andi, hvort heldur er þróun í
efnum eða uppsetningu veið-
arfæra. Við höfum að baki
okkur öfluga framleiðslu
Hampiðjunnar í Litháen en
það hefur líka verið okkar
gæfa í gegnum tíðina að eiga í
góðu samstarfi við skipstjórn-
endur og fyrirtæki hér á landi
um vöruþróun og prófanir á
nýjum hugmyndum. Stöðugt
eru nýjungar að koma fram í
togveiðarfærum og við erum
þakklátir fyrir hversu viljugir
skipstjórnarmenn eru að gefa
sér tíma til að prófa nýja hluti
fyrir okkur. Með því að færa
starfsemina á Íslandi í eitt fé-
lag undirstrikum við það
markmið okkar að vera áfram
leiðandi í vöruþróun og þjón-
ustu á veiðarfærasviðinu hér
á landi,“ segir Jón Oddur.
„Markmiðið að vera áfram leið-
andi í vöruþróun og þjónustu“
segir Jón Oddur Davíðsson, framkvæmdastjóri Hampiðjunnar Ísland ehf.
■ Jón Oddur Davíðsson. ■ Unnið í djúpnót á netaverkstæði Hampiðjunnar Ísland ehf.
í Reykjavík.
■ „Vöruþróun er sífellt í gangi og á því sviði hefur Hamp-
iðjan alla tíð verið leiðandi, hvort heldur er þróun í efnum
eða uppsetningu veiðarfæra,” segir Jón Oddur.
Veiðarfæri