Ægir

Volume

Ægir - 2019, Page 34

Ægir - 2019, Page 34
34 Polar Toghlerar - www.polardoors.com - Húsi Sjávarklasans - Grandagarði 16 - 101 Reykjavík - S: 898 66 77 Jupiter 2,7r Mercury 2,4r Mercury 2,0r Jupiter 2,7rHercules 1,5r Thor Toghlerar Á árinu 2018 lögðust samtals 1.475 skip að bryggju hjá Faxaflóahöfnum. Ef bornar eru saman tölur ársins 2018 við tölur 2017 þá nemur fækk- unin 41 skipakomu milli ára eða rúmlega 3%. Mest varð aukningin á ár- inu 2018 í komu farþegaskipa eða um rúmlega 12%. Um 4% aukning varð síðan á skipa- komum tankskipa og 3% aukn- ing komum rannsóknar- og varðskipa.  Komum fiskiskipa fækkaði um 8% á árinu miðað við fyrra ár og sömuleiðis voru flutn- ingaskipakomurnar færri sem nemur um 2%. Í flokki ann- arra skipa varð hins vegar mesta fækkunin, eða um 22%. Til hans teljast skútur, snekkj- ur og skip sem ekki falla undir flokka fiski- eða flutninga- skipa. Í samantekt Faxaflóahafna um umferð skipa á árinu 2018 kemur fram að hvað varðar stærð skipanna og samanburð við fyrra ár sjáist merkjanleg- ur munur. Brúttótonnafjöldi skipanna var þannig í heild 11.218.860 tonn árið 2017 en 12.143.107 tonn í fyrra. Með öðrum orðum koma færi skip en stærri og á það líkast til ekki síst við um skemmti- ferðaskipin. ■ Skipin eru bæði stór og smá sem njóta þjónustu Faxaflóahafna. Þrátt fyrir að skipakomum hafi fækkað í heild í fyrra jókst brúttótonnafjöldinn í heild þannig að skipin eru að meðaltali stærri sem koma í hafnirnar. Færri skip til Faxaflóahafna Fréttir

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.