Ægir

Árgangur

Ægir - 2019, Blaðsíða 20

Ægir - 2019, Blaðsíða 20
20 „Mér list eiginlega bæði vel og illa á makrílfrumvarpið. Það eru ýmsir kostir í því eins og að fara að klára þetta endanlega. Loka máli sem er búið að vera hangandi yfir okkur eftir að þessi dómur féll í vetur. Ég fagna því að veiðunum verði komið í fastar skorður. Á móti kemur, eins og þetta hljómar núna, að þá felst í þessu mikil skerðing, sérstaklega fyrir þá sem hafa litla veiðireynslu. Ég er alls ekki sáttur við það og vonast til að það verði lagað í með- förum þingsins. Þetta er ekki alveg sanngjarnt gagnvart okkur á smá- bátunum,” segir Unnsteinn Þráins- son, eigandi og skipstjóri á Sigga Bessa SF frá Hornafirði, einn frum- kvöðla makrílveiða á smábátum hérlendis. Hörkuvinna á makrílveiðunum Unnsteinn segir að það hafi tekið nokk- ur ár að ná árangri á makrílveiðunum. „Ég byrjaði 2008 með litlum árangri en þá þurfti að fara alveg 50 mílur út í haf til að sækja makrílinn. Við á smábátun- um vorum í raun lítið sem ekkert með í veiðunum fyrr en árið 2012, sem var fyrsta árið sem við náðum einhverjum árangri. Það sem á undan kom var bara til að draga niður alla meðalveiðina hjá okkur. Verði það lagað er ég að öllu leyti sáttur við þetta makrílfrumvarp.“ Mjög vel hefur gengið hjá Unnsteini á makrílnum síðustu árin og reyndar flestum sem hafa sinnt veiðunum af al- vöru. „Ætli það séu ekki 20 til 30 bátar sem hafa náð ágætis árangri en það er hörkuvinna við makrílveiðarnar. Margir hafa komið inn í þær, prófað og horfið frá þeim aftur. Verðið á makrílnum skiptir líka miklu máli. Það hefur verið lágt og þá er engin afkoma af þessu, nema að veiða alveg óhemju mikið. Það hefur ekki öllum tekist.“ Unnsteinn Þráinsson útgerðarmaður Sigga Bessa SF vill að tímabil veiðireynslu verði endurskoðað Sáttur við kvóta- setningu á makríl ■ Siggi Bessa SF heldur úr höfn, vel búinn til makrílveiða.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.