Ægir

Árgangur

Ægir - 2019, Blaðsíða 21

Ægir - 2019, Blaðsíða 21
21 Bæta upp lágt verð með mikilli veiði Makrílaflinn hjá Unnsteinni var um 200 tonn í fyrra og segir hann að það eigi að duga til að afkoman verði ágæt, þ.e. ef afurðaverðið er eðlilegt. „Verðið féll á sínum tíma þegar ákveðið var að fylgja vesturveldunum í deilunni við Rússa og setja á þá viðskiptabann og þeir svöruðu í sömu mynt. Þar með var ekki hægt að selja makríl til Rússlands og við höfum ekki náð okkur á strik í verðum eftir þetta. Ákvörðunin kom illa við okkur og áhuginn almennt í smábátaflotanum á þessum veiðum minnkaði í kjölfarið. Verðið féll um meira en helming og þá þurfti að veiða ofboðslega mikið til út- gerðin væri raunhæf. Vegna þess þynnt- ist enn meira úr hlutfall okkar í veiði- reynslunni, því uppsjávarskipin héldu áfram veiðum og juku sína hlutdeild. Í mínum flokki voru það bara þeir hörð- ustu sem héldu áfram, höfðu trú á því að þetta væri hægt. Í kjölfarið var kominn kvóti á veiðarnar samkvæmt reglugerð. Veiði var þá mjög góð og við leigðum til okkar kvóta en margir sem höfðu litlar heimildir fóru ekki af stað. Við náðum afkomu með því að veiða nógu mikið.“ Unnsteinn segir að makrílverðið í fyrra hafi verið í kringum 70 til 80 krón- ur á kílóið. Það sé ekkert í líkingu við uppgripin 2012 þegar bátarnir voru að fá 120 til 130 krónur fyrir hann. Þá hafi verið hellings peningur í þessu. En sömuleiðis snúist þetta allt um hvernig veiðin sé, í hve mikinn kostnað þurfi að leggja til að sækja makrílinn. „Startið er dýrt og sérstaklega fyrir þá sem voru að byrja snemma eins og ég og þurftu að finna þetta allt upp sjálfir. Það er alltaf auðveldara fyrir þá sem eft- ir koma. Í upphafi fórum við til Noregs til að læra hvernig Norðmenn stunduðu makrílveiðarnar á smábátum. Svo þurfti að finna tæki í bátinn, asdik og fleira. Það var dálítið mikið lærdómsferli í þessu í upphafi og byrjunarkostnaður því samfara. Við smíðuðum allt sem til þurfti heima í skúr, rennur og fleira. Ég hafði trú á því að þetta væri hægt og gafst ekki upp á þessum fyrstu árum. Það var erfitt að láta þetta ganga upp fjárhagslega og réttlæta þá ákvörðun að standa í þessu.“ Sex vikna vertíð Vertíðirnar hafa með árunum verið að styttast. Menn hafa byrjað snemma í ágúst og verið að veiðum út september. Smábátar Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft. Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að þörfum hvers og eins viðskiptavinar. www.stolpigamar.is Hafðu samband 568 0100 Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík ■ Unnsteinn Þráinsson á löndunarkrananum. Honum hefur gengið vel á makrílnum undanfarin ár. Ljósmynd Hjörtur Gíslason.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.